Morgunblaðið - 03.02.1995, Blaðsíða 1
ÍttorpmMððifö
C
1995
FOSTUDAGUR 3. FEBRÚAR
BLAD
llya Kulik
meistari í
listhlaupi
ILYA Kulik, sautján ára Moskvubúi, varð í gær
Evrópumeistari í listhlaupi karla á skautum í
Dortmund í Þýskalandi. Þetta er ífyrsta skipti
sem Kulik tekur þátt íEvrópumeistaramótinu.
Hann hefði forystu eftir grunnæfingarnar í
fyrrakvöld, og þegar kapparnir framkvæmdu
frjálsu æfingarnar í gærkvöldi kom hann
skemmtilega á óvart; framkvæmdi níu þreföld
skrúfustökk, og sigraði glæsilega.
ulik, sem varð heimsmeistari unglinga í list-
hlaupi fyrir aðeins tveimur mánuðum, varð í gær
annar til að vinna til Evrópumeistaratitils í einstakl-
ingskeppninni í fyrstu tilraun síðan í síðari heimsstyij-
öldinni. Dmitri Dmitrenko fagnaði sigri í fyrstu til-
raun 1993, en hann varð sjöundi í gær.
Tvö af níu þreföldum skrúfustökkum Kuliks þóttu
ekki hafa tekist fullkomnlega, en Kulik sýndi þó og
sannaði að það var engin tilviljun að hann var í fyrsta
sæti eftir fyrri hluta keppninnar — bestur í hópi
margra frábærra þátttakenda.
Kulik skautaði geysilega vel í gærkvöldi, en landi
hans, Ólympíumeistarinn Alexej Urmanov, stóð sig
þó best allra. Honum gekk ekki vel í grunnæfingun-
um, var í sjötta sæti eftir þær, en skautaði
frábærlega í gær við tónlist úr Svanavatn-
inu; framkvæmdi átta þreföld skrúfustökk
og var sá eini sem fékk 6,0 — hæstu mögu-
legu einkunn — fyrir listræna tilburði. Ur-
manov skaust upp í annað sætið með
frammistöðunni og nældi þar með í silfur-
verðlaun.
Viacheslav Zagorodniuk frá Úkraínu hlaut
bronsið, en Frakkinn Philippe Candeloro,
sem varð annar á heimsmeistaramótinu í
fyrra og þriðji á Ólympíuleikunum í Lille-
hammer, og talinn var sigurstranglegur í
Dortmund, varð fjórði. Honum gekk ekki vel
í gær, gerði tvenn slæm mistök í stökkum.
Sábesti
RÚSSINN Ilya Kulik í fijálsu
æfingunum á svellinu í Dort-
mund í gær; hann er aðeins
sautján ára og varð Evrópu-
meistari í gær í fyrstu tilraun.
Hann hafði forystu eftir
grunnæfingarnar í fyrrakvöld
og sýndi í gærkvöldi að
frammistaðan í fyrri hluta
keppninar var engin tilviljun.
KNATTSPYRNA
Hlynur líklega til Örebro
Quðni Bergsson verður að svara forr-
áðamönnum sænska félagsins
Örebro í síðasta lagi næsta mánudag,
skv. heimildum Morgunblaðsins, hvort
hann ætli sér að leika með liðinu eða
ekki næsta keppnistímabil. Ef svar Guðna
verður neikvætt verður gengið til samn-
inga við Hlyn Birgisson, sem fór utan í
vikunni og leikur æfingaleik með Örebro
í kvöld.
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar
hjá Tottenham í Englandi, að Guðni væri
þar til reynslu í tvær vikur og ekkert
yrði ákveðið í hans málum fýrr en eftir
þann tíma. Það þýðir að Guðni getur
varla svarað sænska félaginu á mánudag-
inn því hann á eftir að vera þar í viku í
viðbót. Það má því reikna með að Hlynur
verði leikmaður Örebro næsta sumar og
leiki þar við hlið Arnórs Guðjohnsens og
Hlyns Stefánssonar. Sænska deildar-
keppnin hefst 12. apríl og því telja for-
ráðamenn sænska félagsins sig ekki geta
beðið lengur eftir svari frá Guðna.
Ólafur
með
aftur
ÓLAFUR Stefánsson,
vinstrihandar skytta úr
Val, verður í leikmanna-
hópi félagsins í bikarúr-
slitaleiknum gegn KA á
morgun. Ólafur hefur
ekkert spilað það sem
af er vetri vegna meiðsla
en er nú óðum að ná
sér. „Ég get alla vega
sagt að hann mun hita
upp fyrir leikinn. Það
verður svo að koma í þ'ós
hvað gerist í framhaldi að því,“ sagði Þorbjörn
Jensson, þjálfari Vals.
Valgarð Thoroddsen, homamaður Vals-
manna, sem einnig hefur verið á sjúkralista
er orðinn góður og verður tilbúinn í slaginn á
morgun.
Háskólamenn í
Manchester
bandamenn
Cantonas
ERIC Cantona, franski knattspyrnumaðurinn
hjá Manchester United sem réðst á áhorfanda
í leik gegn Crystal Palace í síðustu viku, og var
í kjölfarið settur í leikbann út keppnistimabilið
af félagi sínu, eignaðist í gær óvænta banda-
menn. Fræðimenn við Metropolitan háskólann
í Manchester hvöttu þá til þess að tekið yrði á
máli leikmannsins af sanngirni, þegar aga-
nefnd enska knattspyrnusambandsins kveður
upp úrskurð sinn í næstu viku.
Derek Wynne, forstöðumaður stofnunar
skólans um alþýðumenningu, hvatti til þess að
aganefndin hefði huga að í niðurstöðu hennar
fælust skilaboð til leikmanna, áhorfenda og
knattspyrnufélaga. „Á að gera Cantona og
Manchester United að blórabögglum vegna
atviks sem þekktur kynþáttahatari og glæpa-
maður, dæmdur fyrir tilraun til vopnaðs ráns,
kom af stað? Knattspyrausambandið verður
að huga vel að þvi að ákvörðun þess óvirði
ekki keppni vetrarins með því að það lýsi yfir
stuðningi við svivirðingar á sviði kynþátta- og
útlendingahaturs,“ sagði Wynne.
Guðmundur
búinn að tilkynna
ákvörðun sína
GUÐMUNDUR Benediktsson, knattspyrnu-
maður úr Þór á Akureyri, tilkynnti í gær að
hann hefði ákveðið að ganga til liðs við KR
fyrir næsta keppnistimabil.
Mörg félög höfðu áhuga á að fá Guðmund
í herbúðir sínar, en hann gaf þeim síðustu af-
svar í gær og þar með varð opinberlega Ijóst
að KR yrði fyrir valinu, eins og Morgunblaðið
greindi reyndar frá á laugardag að yrði raunin.
Enn hafa ekki borist þau gögn sem beðið
er eftir frá belgíska féiaginu Ekeren, en Guð-
mundur var atvinnumaður hjá því félagi, áður
en hann kom aftur heim sl. vor, og er bundinn
því til vors 1996, haldi hann utan á ný. Forráða-
menn Ekeren gáfu honum leyfi fyrir síðastlið-
ið keppnistimabil að leika með Þór, og tóku vel
í það á dögunum að hann gæti skipt úr Þór í
KR fyrir næsta tímabil. Þar var um munnlegt
vilyrði að ræða, en skriflegs er enn beðið. Sam-
komulag Guðmundar við KR er þvi gert með
þeim fyrirvara að svar forráðamanna Ekeren
verði í samræmi við það sem þeir höfðu áður
gefið í skyn.
Val
KORFUBOLTI: STOCKTOIM BÆTTISTOÐSENDIIMGAMETIÐ / C2