Morgunblaðið - 05.02.1995, Qupperneq 1
REYNSL UAKSTUR Á OPEL VECTRA 4X4 -
í FRÖNSKU ÖLPUNUM Á NISSAN PATROL
1995
SUNNUDAdTTR /» FEBRÚAR
BLAÐ
Toyota Corolla
1.199.000
Corolla Hatchback, 3ja dyra.
Nú geturðu eignastToyota Corolla
á verðifrá 1.199.000 kr.
® TOYOTA
Tákn um gœöi
BÍLASÝNINGIN í AMSTERDAM
Framsvipurinn
sver sig í ætt til
Suzuki.
MITSUBISHI
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
BALENO stallbakurinn er hannaður með þarfir Evrópubúa að leiðar\jósi.
SUZUKI
BAIENO
- í slaginn í apríl
LÍNURNAR í hlaðbaknum eru ekki ósvipaðar
og á Swift en hlutföll öll eru stærri.
NÝR Suzuki fólksbíll var frumkynnt-
ur á bílasýningunni í Amsterdam síð-
astliðinn þriðjudag. Bíllinn, sem
nefnist Baleno, er í sama stærðar-
flokki og Toyota Corolla, Opel Astra,
Ford Escort, VW Golf, Renault 19,
NiSsan Sunny og Peugeot 306. Mik-
ið var lagt í kynninguna í Forum-sal
sýningarhallarinnar í Amsterdam og
meðal viðstaddra var Osamu Suzuki,
stjómarformaður Suzuki Motors
Corporation, umboðsmenn frá 23
löndum auk fréttamanna.
Suzuki ætlar bílnum stóran hlut á
evrópskum markaði og verður hann
boðinn á lægra verði _en bílar keppi-
nautanna, að sögn Úlfars Hinriks-
sonar, framkvæmdastjóra Suzuki
bíla á íslandi. Báleno kemur a mark-
að í Evrópu í vor og segir Úlfar að
hann verði til sölu á Islandi í apríl
næstkomandi.
Tvær útfærslur voru kynntar af
Baleno, fernra dyra stallbakur og
þrennra dyra hlaðbakur. Fyrstu við-
kynni af Baleno, sem voru eingöngu
sjónræn, voru skemmtileg. Stallbak-
urinn er sterklegur bíll og minnir að
nokkru leyti á evrópska bíla litið á
hann frá hlið. Að framan eru línum-
ar hreinræktaðri, fjölskyldusvipurinn
leynir sér ekki, afturendinn stuttur
en hár og farangursrými allgott.
Baleno er stærsti bíllinn frá Suzuki
í fólksbílaflokki, tekur fimm manns
í sæti og er tiltölulega rúmgóður að
innan.
rIVær útfærslur verða boðnar af
stallbaknum, þ.e. 1,3 1 GL og lúxus-
útfærslan 1,6 GLX. Þijár útfærslur
verða af hlaðbaknum, 1,3 GL, 1,6
GL og sportútfærslan 1,6 GS. GLX
og GS eru með rafdrifnar rúður,
samlæsingu, hæðarstillanlegt stýri
og rafstýrða útispegla sem staðal-
búnað. Vökvastýri er staðalbúnaður
í 1,6 1 bílunum en valbúnaður í 1,3
1 bílunum.
Sjálfskipting meö
þremur stllllngum
Vélarnar eru fjögurra strokka ál-
vélar með 16 ventla tækni og fjöl-
innsprautun. 1,3 1 bíllinn er sagður
eyða 5,2 1 á hveija 100 km miðað
við 90 km meðalhraða á klst. Báðar
eru vélarnar nýjar frá Suzuki, sú
minni afkastar 85 hestöflum við
6.000 snúninga og sú stærri 98. Við
hönnun á Baleno var lögð rík áhersla
á að draga úr vélarhljóðum og titr-
ingi með sérstökum vélarfestingum.
Baleno er boðinn með fimm gíra
handskiptingu en með 1,3 1 vélinni
fæst einnig þriggja þrepa sjálfskipt-
ing og fjögurra þrepa með 1,6 1 bíln-
um. Fjögurra þrepa sjálfskiptingin
ætti að koma sér vel við ís-
lenskar aðstæður.
Þrjár stillingar sjá ^■09
til þess að hún
nýtist sem best,
„normal“-still-
ing til sparn-
aðaraksturs,
„power“-stiliing
til hraðaksturs og
„snow-mode“ til akst-
urs í hálku. í þeirri stillingu skiptir
billinn sér ekki sjálfkrafa upp í
hæsta gír ef hjólin spóla.
Baleno er með sjálfstæðri fjöðrun
á öllum hjólum og í dýrustu útfærsl-
unum verður tölvustýrð fjöðrun í
boði. Meðal valbúnaðar verða líknar-
belgir fyrir ökumann og farþega í
framsæti auk fjögurra rása ABS-
hemlalæsivamar. ■
CARISMA er vel skipulagður
að innan með auðskiljan-
legum mælum og
stjórnrofum.
HEIMSFRUMKYNNING var á
Mitsubishi Carisma á bílasýningunni
í Amsterdam, en þetta er bíll sem
lengi hefur verið beðið eftir enda til
hans stofnað með óvenjulegum hætti.
Carisma er samstarfsverkefni
Mitsubishi Motors, Volvo og hol-
lenskra stjórnvalda og er fyrsti bíll-
inn sem Mitsubishi á þátt í að fram-
leiða að öllu leyti í --------------
Evrópu. Carisma fer í
framleiðslu í maí
næstkomandi og á
markað í Mið-Evrópu
í júlí. Bíllinn fer á
markað á Norður-
löndunum í byijun ______
næsta árs. Viðstaddir
kynninguna á Okura-hótelinu í
Amsterdam voru m.a. Dr. Hans Vij-
ers efnahagsmálaráðherra Hollands,
Dr. Hirokazu Nakamura, stjómarfor-
maður Mitsubishi Motors og Lennart
Jeansson aðstoðarforstjóri Volvo AB.
Carisma ér ný kynslóð bíla sem
er hönnuð fyrir Evrópubúa og er
smíðuð í sameiginlegri verksmiðju
Mitsubishi, Volvo og hollenskra
stjómvalda, NedCar í Born í Hol-
landi. Til NedCar var stofnað árið
1991 og er eignarhlutur hvers aðila
einn þriðji. Fjárfesting vegna fram-
leiðslunnar er nálægt 136 milljarðar
ISK. 85% af framleiðslunni er evr-
ópskt en bensínvélar og sjálfskipting
koma frá Japan.
Carisma er stærri en Lancer en
minni en Galant og er fimm dyra
hlaðbakur. Bíllinn er einkum ætlaður
fjölskyldufólki á þrítugs- og fertugs-
aldri með börn og er hönnun innan-
rýmis miðuð við slíka notkun.
Carisma er straumlínulagaður,
lágur að framan en afturendinn er
fremur stuttur og hár. Vindstuðullinn
er 0,29 Cd sem er með því lægsta í
bíl af þessari stærð. Bíllinn er 4.435
mm á lengd og 1.695 mm á breidd.
FJOLSKYLDU-
HLAÐBAKUR
FRÁ NEDCAR
INVECS II
Meðal helstu nýjunga í Carisma
er fjögurra þrepa INVECS II sjálf-
skipting Mitsubishi sem fram til
þessa hefur einvörðungu verið í FTO
sportbílnum sem eingöngu er fram-
leiddur fyrir Japansmarkað.
INVECS II er það sem kemst næst
því að vera vitræn sjálfskipting því
------------ hún skiptir um gíra
samkvæmt ástandi
vegar og akstursein-
kennum hvers öku-
manns. Allar vélar-
gerðir eru fáanlegar
með fimm gíra hand-
____________ skiptingu.
Carisma er boðin
með þremur vélargerðum, fjögurra
strokka, 16 ventla 1,6 1 og 1,8 1
SOHC og 1,8 1 DOHC. Minnsta vélin
skilar 88,5 hestöflum og uppgefinn
hámarkshraði er 180 km á klst.
Uppgefin eyðsla er 8,5 1/100 km í
bæjarakstri. 1,8 I SOHC vélin er 114
hestafla og uppgefinn hámarkshraði
er 200 km á klst. Uppgefin eyðsla
er 8,7 1/100 km í bæjarakstri. 1,8 1
DOHC (með tveimur ofanáliggjandi
knastásum) fæst eingöngu með
handskiptingu. Hún er 138 hestöfl
og uppgefinn hámarkshraði er 215
km á klst. Uppgefin eyðsla í bæjar-
akstri er 9 1.
Bíllinn verður fáanlegur með
margvíslegum öryggisbúnaði eins og
t.d. hliðarlíknarbelgjum, ABS, spól-
vörn og krumpusvæði eru bæði fram-
an og aftan á bílnum. Þá verður
þjófavörn í bíllyklinum.
Mitsubishi Carisma verður fram-
leiddur í 100 þúsund eintökum á ári
en Volvo-útfærslan, B14, kemur á
markað eftir eitt ár og verður fram-
leidd í sama magni. ■
CARISMA er straumlínulagaður,
lágur að framan en aftur-
endinn er fremur
stuttur og hár.
.i'.
VV
<4
CARISMA