Morgunblaðið - 08.02.1995, Blaðsíða 1
KÖRFUKNATTLEIKUR: HAMBORGARAR, ÖSKUR OG KÖRFUBOLH / C2
JMörjnintlitf&ifö
1995
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR
BLAD
Þórður frá í
tvo mánuði
Þórður Guðjónsson, landsliðs-
maður hjá þýska úrvalsdeild-
arliðinu Bochum, leikur ekki knatt-
spymu næstu sex til átta vikum-
ar. Meiðsl tóku sig upp hjá honum
á æfingu hjá Bochum í æfíngaferð
liðsins á Spáni og í dag verður
tekin ákvörðun um hvort hann
verði að fara í uppskurð á ný.
„Þetta er ekki skemmtilegt,"
sagði Þórður við Morgunblaðið,
sem fór heim til Þýskalands á und-
an liðinu vegna meiðslanna. „Ég
fór í uppskurð í desember og taldi
að ég væri búinn að ná mér, æfði
á fullu í síðustu viku og gekk mjög
vel. Svo var það á síðustu æfing-
unni að ég ætlaði að verja skot en
HNEFALEIKAR
við það gaf liðfestingin á vinstri
ökklanum sig aftur, rifnaði upp
eins og um páskana í fyrra. Það
vom 30 sekúndur eftir af æfing-
unni en fýrsta greining gerir ráð
fýrir að ég þurfi að minnsta kosti
sex til átta vikur til að jafna mig
og jafnvel lengri tíma ef ég þarf
að fara í uppskurð."
Þórður sagði að búið væri að
taka röntgenmyndir af ökklanum
og framhaldið réðist í dag. „Það
er ljóst að mikil endurhæfing er
fyrir höndum, hvort sem ég verð
skorinn eða ekki. Þetta er bölvað
en vonandi verð ég kominn á fullt
aftur um páskana."
SAMHERJAR fagna markl ÞórAar fyrir Bochum.
Andrés Guðmundsson byrjarvel í Las Vegas í Bandaríkjunum
Fyrsti mótherjinn steinlá
Andrés Guðmundsson
kraftakappi hefur fengið
eldskímina í hnefaleika-
hringnum, en hann reynir nú
fyrir sér í hnefaleikum í Las
Vegas í Bandaríkjunum.
Fyrstu viðureign hans lauk
með því að andstæðingur hans
steinlá í gólfínu. Þjálfari Andr-
ésar vildi sjá styrk hans í
hringnum og iét hann í æf-
ingakeppni gegn einum kepp-
enda, sem er skráður í undan-
keppnina. Sá er 115 kg og
reyndist Andrési lítil fyrir-
staða. „Ég var stressaður áður
en ég fór í hringinn, en var
búinn að fá góð ráð, ef ég lenti
á andstæðingi sem vildi hanga
á mér. Ég barði kappann sund-
ur og saman, á endanum
steinlá hann í gólfínu í lok
annarrar lotu, tvöfaldur í
framan," sagði Andrés í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég
fann mig vel og kappinn náði
aldrei að koma höggi á höfuð-
ið á mér. Þessi bardagi gaf
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
UMBOÐSMAÐUR Andrésar GuAmundssonar seglr ís-
lendlnglnn höggþyngrl en Georg Foreman, núverandl
þungavlgtarmelstara í hnefalelkum.
mér aukið sjálfstraust og John
Black umboðsmaður minn var
ánægður með viðbrögð mín í
hringnum og er búinn að píska
mig út daglega, bæði í tækni-
legum æfingum og þrekæfing-
um. Ég sofna örþreyttur eins
og lítið barn eldsnemma á
kvöldin. John vil meina að ég
sé höggþyngri en Georg Fore-
man, en hann hefur æft hjá
honum.
Ég hef ellefu daga til að
undirbúa mig fyrir fýrsta al-
vöru bardagann, mun æfa stíft
fram að keppninni, en hvíla
þijá síðustu dagana. Ég er
alinn á kóngafæði og líður
vel. Las Vegas er ótrúleg borg,
það eru spilavíti alls staðar,
jafnvel á salernum eru spila-
kassar. Þegar ég fer í morgun-
mat er fólk þegar byijað að
spila. Ég gæti mín á því að
fara ekki í spilavítin, það er
nóg að leggja allt undir í
hnefaleikunum að sinni,“
sagði Andrés.
Ahorfandi skotinn
til bana í Frakklandi
fara áttu fram I París og nágrenni um helg-
ina, var frestað eftir að 22 ára áhorfandi lést
af skotsárum i gær. Skotið var á unga mann-
inn þegar áhorfendum ienti saman á ieik
dag. Leik Red Star í París og Ales í 2. deUd
var einnig frestað en 1. deiidar leikur PSG og
Metz verður á settum tima um helgina.
Guðni og Hlynur
enn í óvissu
GUÐNI Bergsson hefur ekki enn fengið ákveð-
in svðr um stöðu sina hjá enska úrvalsdeildar-
liðinu Tottenham. Hann hefur æft hjá félaginu
að undanförnu en er með tilboð frá sænska
félaginu Örebro sem hann þarf að svara sem
fyrst og hafði reyndar aðeins frest frá Svíunum
til dagsins í gær. Þegar Morgunbiaðið ræddi
við Guðna í gærkvðldi sagði hann að ekkert
hefði gerst en vonandi kæmist máiið á hreint
á næstu dðgum. Hlynur Birgisson i Þ6r kom
heim frá Örebro um helgina og ef dæmið geng-
ur ekki upp þjá Guðna og Örebro fer hann
aftur út á mánudag. Hann hefur gert munn-
iegt samkomulag um að leika með sænska lið-
inu í tvð ár en rætt hefur verið um að samning-
urinn yrði endurskoðaður eftir eitt ár.
90.000 miðar pant-
aðir í43.000 sæti
GÍFURLEGA mikill áhugi er á æfingaleik ír-
lands og Englands í Dubiin í næstu viku. Leik-
vangurinn tekur 43.000 áhorfendur en þegar
hafa 90.000 miðar verið pantaðir. Terry Vena-
bles stjórnar liði Englands i sjöunda sinn en
hinir sex leikirnir hafa allir farið fram á
Wembley í London. Leikurinn verður sýndur
beint hjá Sky-sjónvarpsstöðinni og fær Knatt-
spyrnusamband írlands 150.000 pund fyrir sýn-
ingarréttinn. Miðasalan gefur þvi 450.000 pund
og gefa þessir tveir liðir sambandinu þvi sem
samsvarar um 64 millj. kr.
Beckenbauer vill fá
Otto Rehhagel
sem þjálfara Bayern
FRANZ Beckenbauer, formaður Bayern Míinc-
hen, sagði í gær að hann vildi heist að Otto
Rehhagel tæki við þjálfun þýska meistaraliðs-
ins og fyrst yrði talað við hann um stöðuna,
en eins og greint hefur verið frá hefur ítaiinn
Giovanni Trapattoni sagt að hann vilji helst
hætta í vor og jafnvel fyrr ef eftirmaður finnsL
„Við ætlum fyrst að tala við Rehhagel,'* sagði
Beckeubauer I gær. „Hann er sérfræðingur í
þýska boltanum, hefur þjálfað í 25 ár og náð
frábærum árangrí." Rehhagel, sem er 56 ára,
hefur verið þjálfari Werder Bremen síðan 1981
en í samningnum er ákvæði um að hann verði
að segja upp fyrir 31. desember til að geta
tekið við ððru liði næsta tímabU á eftir. Brem-
en varð Evrópumeistari bikarhafa undir hans
stjórn 1992.
Körfuboltamaður
í NBA-deildinni
réðst á áhorfanda
VERNON Maxwell, skotbakvörður hjá banda-
ríska körfuboltaliðinu Houston i NBA-deUd-
inni, á kæru yfír höfði sér eftir að hafa ráðist
á áliorfanda og slegið hann. Atvikið átti sér
stað i þriðja leikhluta í leik Portland og
Houston í fyrrinótt. Að sögn bróður fórnar-
lambsins létu þeir leikmanninn lieyra Jmð og
aUt í einu stökk hann upp í stúku, hijóp upp
gangveginu og sló piltinn í andlitið. Lögreglan
fylgdi Maxwell inn í búningsklefa en stráknum
varð ekki meint af. Þess má geta að umræddir
piltar sátu í röð L en raðirnar eru í stafrófs-
röð og er A-röð fremst.