Morgunblaðið - 09.02.1995, Síða 10
10 B FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Windows 95
borið saman
við OS/2 Warp
Tölvur
Tölvunotendur hafa lengí átt draum um
sameiginlegt notendaumhverfi. Með nýjustu
útgáfunum af Windows og OS/2 virðumst við
vera að nálgast þennan draum segir
Marinó G. Njálsson.
OS/2 Warp og Windows 95. Það
verður bara ekki hjá því komist.
Kerfin frá Apple eru sá staðall sem
hönnuðir notendaviðmóta miða við.
Lengi vel var Apple langt á undan,
en bilið hefur minnkað.
ER ÞAÐ AÐ gerast að noten-
daviðmót á einmenningst-
ölvum er eins hjá öllum?
Þeir þrír aðilar sem eru
ráðandi á markaðnum hafa smátt
og smátt verið að taka upp áhuga-
verðar nýjungar hver frá öðrum.
Apple hefur gjarnan verið í farar-
broddi og Microsoft og IBM fylgt á
eftir. Windows 95 frá Microsoft og
OS/2 Warp frá IBM hafa á margan
hátt verið að líkjast kerfunum frá
Apple. Þannig nota báðir möppur
undir skjö'l og forrit, flýtistikur eru
notaðar til að ræsa forrit, ruslat-
unna/tætari/endurvinnsla er fyrir
skjöl sem á að eyða og svona mætti
halda lengi áfram.
Það var ekki ætlunin að draga
Apple inn í þennan samanburð á
Windows 95 í hag
Mér finnst notendaviðmótið með
Windows 95 vera betra en það sem
OS/2 Warp býður upp á. Valröndin
neðst á skjánum og aðgangur að
forritum í gegnum fellivalmyndimar
er til muna auðveldari og skemmti-
legri en það sem mér tókst að setja
upp í OS/2. (Mögulega kemur þar
vanþekking mín inn í.)
%
Tækifæri á upplýsinga-
hradbrautum heimsins!
Fjarþjónusta á íslandi
Ráðstefna og sýning á Hótel Sögu, Reykjavík, og Hátel KEA, Akureyri, mánudaginn 13. febrúar nk.
Fjarþjónusta er vinnulag framtíöarinnar. Með sífellt öflugri tölvum og samskiptanetum er hægt að bjóða vöru og þjónustu
með nýjum hætti. Fjarþjónustan felst í því að starfa fyrir verkkaupa úr fjarlægð, en vera þó í stöðugu sambandi við hann
með aðstoð nútímatækni. Þannig er staðsetning þess sem vinnur verkið í senn óháð vinnslunni og verkkaupanum.
V
Dagskrá
8.30- 9:00 Skráning og afhending ráðstefnugagna
9:00- 9:10 Setning ráðstefnu af ráðstefnustjóra (Ragnhildur Hjaltadóttir, Samgönguráðun.)
9:10- 9:20 Ávarp Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
9:20- 9:30 Markaður fyrir fjarþjónustu (Ingi G. Ingason, Útflutningsráð íslands)
9:30-10:00 Samband við umheiminn og önnur tæknimál (Þorvarður Jónsson, Póstur og Sími)
10:00-10:30 Kaffihlé - Sýning á búnaði til fjarvinnslu opin í Skála.
10:30-11:00 Fjarþjónusta í Svíþjóð (Katarina Almquist, NUTEK)
11:00-11:30 Þróun fjarþjónustu og ESB aðgerðir. (Noel Hodson, SW-2000)
11:30-12:00 Alþjóðleg viðskipti lítilla og meðalstórra fyrirtækja (Prof. Deirdre Hunt)
12:00-13:00 Matarhlé - létt hádegisverðarhlaðborð - Sýning opin í Skála.
13:00-13:15 Fjarþjónusta á íslandi (Sverrir Ólafsson, eigin rekstur)
13:15-13:35 Hugbúnaðargerð í alþjóðlegu úmhverfi (Gylfi Aðalsteinsson, Fang hf.)
13:35-13:55 Viðhald á hugbúnaði erlendis (Friðrik Sigurðsson, Samtök ísl. hugb.húsa)
14:00-14:20 Sala forrita erlendis (Friðrik Skúlason)
14:20-14:40 Félagsstarf erlendis án ferðalaga (Jón Þór Þórhallsson, Skýrr)
14:40-15:00 Alþjóðleg kennsla (Pétur Þorsteinsson, íslenska menntanetið)
15:00-15:30 Kaffihlé - Sýning opin í Skála.
15:30-16:30 Pallborðsumræður (Ragnhildur Hjaltadóttir, Noel Hodson, Deirdre Hunt, Pétur
Þorsteinsson, Þorvarður Jónsson, Friðrik Sigurðsson, Jón Þór Þórhallson og Þorkell
Sigurlaugsson, Eimskip)
16:30-17:00 Samantekt og ráðstefnuslit (ráðstefnustjóri)
Óþrjótandi möguleikar
Ljóst er að framboð á hvers konar fjarþjónustu mun margfaldast á næstu árum. Stöðugt fleiri atvinnugreinar eru
tölvuvæddar og tæknin hefur haldið innreið sína inn á áður óþekkt svið. Sölumennska, hugbúnaðargerð og -þjónusta,
kennsla, teikniþjónusta, verkfræðiþjónusta, símaþjónusta, gagnabankar, upplýsingaþjónusta, prentþjónusta og margar
fleiri greinar munu njóta góðs af víðtækri og öflugri fjarþjónustu framtíðarinnar.
Vaxtarbroddur
Fyrirtæki og einstaklingar um allan heim eru nú að taka við sér svo um munar og bjóða í ríkari mæli fjarþjónustu sem
hluta af viðskiptum sínum. Enn fremur eru fyrirtæki nú stofnuð sem eingöngu starfa í fjarþjónustu. Sem dæmi um
vaxtarbrodd í fjarþjónustu má nefna öll þau fyrirtæki sem bjóða vörur og þjónustu á Internetinu.
Ráðstefnan verður haldin á tveimur stöðum á landinu samtímis. Annarsvegar á Hótel Sögu í Reykjavík í þingstofu A
og hinsvegar á Hótel KEA á Akureyri sem tengist ráðstefnunni í Reykjavík um ljósleiðara.
Erindi á ráðstefnunni verða flest flutt í Reykjavík en tveir fyrirlesaranna flytja erindi sín um sjónvarpssima annar frá
Akureyri og hinn frá Stokkhólmi.
S kráning
Skráning fer fram hjá Utflutningsráði íslands í síma 551-
7272 og fax 551-7222 (allan sólarhringinn) og hjá
Byggðastofnun á Akureyri í síma 96-12730 og fax 96-
12722 (allan sólarhringinn). Verð á ráðstefnuna er kr.
8.500 í Reykjavík og kr. 6.500 á Akureyri. Innifalið í
ráðstefnugjaldi er: Ráðstefnugögn, aðgangur að
sýningu, kaffiveitingar og léttur hádegisverður.
Sýning
1 skála á Hótel Sögu verður sýning í gangi allan daginn
þar sem íslensk fyrirtæki sýna búnað og þjónustu er
tengist fjarþjónustu. Fyrirtækin sem sýna eru Tæknival,
Skýrr, Apple-umboðið, Miðheimar, Margmiðlun,
AdCalI, Samment og Auglýsingastofa Reykjavíkur.
IÐNAÐAR- OC VIOSKIPTARAOUNEYTI
(j^Byggðastofnun
©# SAMTÖK
2IÍ IÐNAÐARINS
PÓSTUR OG SfMI
III
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
Þegar kemur að nettengingum
hefur Windows 95 vissa yfirburði.
OS/2 notendur verða að treysta á
utanaðkomandi nettengingu meðan
jafningjanet fylgir Windows. Hér er
um að ræða endurbætta útgáfu af
Windows fyrir vinnuhópa (Windows
for Workgroups). Kerfið býður upp
á samnýtingu á diskum ogjaðartækj-
um. Þá getur notandi beðið tölvu
sína að að leita uppi opnar tengingar
á netinu og samnýtanlega diska
(sambærilegt við AppleShare). Mun
meira er líka innbyggt af alls konar
netsamskiptum, sem OS/2 notendur
verða að fá frá þriðja aðila.
Mun fleiri hugbúnaðarpakkar eru
til fyrir Windows 3.1 en OS/2. Bú-
ast má við því að það sama muni
gilda um Windows 95 þegar það
kemur á markað. Þetta misvægi
OS/2 í óhag hefur gert það að verk-
um að fyrirtæki hafa haldið að sér
höndum við að taka OS/2 í notkun.
Vissulega getur OS/2 Warp keyrt
Windows 3.1 forrit, en allsendis er
óvíst að það sama muni gilda þegar
Windows 95 kemur á markað.
OS/2 Warp í hag
Sjálfstæðir gagnrýnendur eru
margir á þeirri skoðun að tæknilega
séð sé OS/2 Warp fullkomnara kerfi
en Windows 95. Tæknileg útfærsla
á ýmsum atriðum, eins og minnis-
stjómun og verkstjómun, sé betri.
Þannig er nefnt að í Windows 95 sé
notað sameiginlegt svæði fyrir minn-
isvistföng (single memory address
space) til að bæta afköst. Vandamál-
ið við þetta er að villa í einu forriti
getur orðið til þess að kerfíð hrynur.
OS/2 Warp aðskilur hin ólíku verk.
Hver gluggi (session) hefur sitt svæði
og villa í keyrslu eins verks hefur
því ekki áhrif á næsta. Reynsla mín
er sú að ég hef þurft að endurræsa
tölvuna með Windows 95 nokkmm
sinnum vegna vandræða í keyrslu
forrits, en aldrei tölvuna með OS/2
Warp.
OS/2 Warp hefur sanna fjölverka-
vinnslu. Þ.e hægt er að keyra mörg
verk samtímis. Af ástæðunni sem
nefnd er hér að ofan gengur þetta
ekki í Windows, þegar um er að
ræða Windows 3.1 forrit svo dæmi
sé tekið. Örlítið próf til að sýna fram
á þetta er að forsníða diskling um
leið og maður keyrir upp forrit. Á
OS/2 Warp gengur þetta snuðrulaust
fyrir sig, en Windows 95 hikstaði á
því.
Ég minntist á það um daginn að
Windows 95 ætti það til að týna teng-
ingum við skjöl. Þ.e. ef skjal er búið
til í Excel og því gefin annarleg end-
ing, þá veit Windows 95 ekki hvaða
forrit á að keyra upp, þegar tvís-
mellt er á skjalið. Sama gæti gerst
ef skráasafn/mappa er fært til í heilu
lagi. Þetta gerist vegna þess að
meðhöndlun Windows 95 á skjölum
er ekki fullkomlega hlutbundin. OS/2
Warp er aftur á móti fullkomlega
hlutbundið kerfi og notar svo kallað
SOM eða System Object Model til
að halda utan um hluti. Þannig verð-
ur bara tilfærsla á hlutum þegar
skráasafn/mappa er fært á nýjan
stað. Tengingarnar breytast ekki.
Stærsti munurinn á þessum tveim-
ur kerfum OS/2 í hag er nokkuð sem
hulið er notendum, en forritarar
verða varir við. Kjarni Windows 95.
er mun fátæklegri af alls konar tól-
um/köllum, en kjarni OS/2. Hvað
þýðir þetta? Jú, sá sem forritar fyrir
Windows 95 hann þarf að forrita
fleiri smáatriði, en sá sem forritar
fyrir OS/2. Þetta er sambærilegt við
muninn á Windows og Macintosh.
Einhveiju sinni heyrði ég sögu sem
sagð var á muninum á Windows 3.1
og OS/2 2.1. Það hafði tekið 3 menn
ár að skrifa forrit fyrir Windows 3.1,
en sama forrit fyrir OS/2 2.1 var
skrifað á 3 mannmánuðum. Hvort
munurinn sé í reynd þetta mikill í
dag veit ég ekki.
Hvort er betra?
Ég ætla alls ekki að fara kveða
upp einhvem úrskurð í þessu máli.
Það má færa fyrir því rök að mark-
aðslegir yfirburðir Microsoft og
Windows kerfanna séu slíkir að OS/2
Warp eigi ekki möguleika. En við
megum ekki gleyma því að IBM set-
ur álíka mikið í rannsóknir og þróun
á hverju ári og svarar til veltu Micro-
soft. Það kemur að því að þetta skili
sér.
Eins og áður sagði hefur Apple
verið sá staðall, sem menn hafa ver-
ið að keppast við að líkjast. Bæði
OS/2 Warp og Windows 95 eru lík-
ari Apple kerfunum en fyrirrennar-
amir. Allir aðilar eru að líkja hver
eftir öðmm. Góður hlutur frá einum
er fenginn að „láni“ og notaður I
nýja útgáfu. Munurinn á Windows
og hinum tveimur er að Windows er
með algjöra yfirburði markaðslega.
Höfundur er tölvunnrfræðingur.