Morgunblaðið - 09.02.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995 B 11
VIÐSKIPTI
íslensk fyrirtæki í 2 5. sinn
BLAÐA- og bókaútgáfan Fróði
hf. hefur nú sent frá sér upp-
sláttaritið „íslensk fyrirtækið
1995“. Á þessu ári hefur bókin
komið út í aldarfjórðung, og hefur
að vanda að geyma miklar upplýs-
ingar um fyrirtæki og viðskiptalíf
á Islandi, segir í frétt frá útgáf-
unni.
Helsta nýjungin í bókinni að
þessu sinni eru 7-stafa símanúmer
sem tekin voru í notkun í des-
ember sl. á höfuðborgarsvæðinu,
en á landsbyggðinni eru símanúm-
erin sem gilda fram að 3. júni
nk., en einnig símanúmerin eins
og þau verða eftir breytinguna.
Uppbygging bókarinnar er á
þann veg að fremst er að finna
kennitölu-, fax- og símanúmera-
skrá með nær öllum starfandi
fyrirtækjum og stofnunum raðað
eftir stafrófsröð.
Þá er veigamesta skrá bókar-
innar, sjálf fyrirtækjaskráin.
Þessi skrá er að uppbyggingu
óbreytt frá fyrri bókum. í skránni
er að finna helstu upplýsingar um
flest starfandi fyrirtæki, félög og
stofnanir á Islandi.
I þriðja lagi eru í bókinni þijár
skrár undir gulum síðum. Er þar
fyrst að telja vöru- og þjónustu-
skrá, þar sem fyrirtækjum er
raðað niður í flokka eftir því
hvaða vöru og þjónustu þau selja.
Þá er Utflytjendaskrá með
skrá yfir fjölda íslenskra útflytj-
enda og vörur sem þeir flyija
út.Loks er Umboðaskrá upplýs-
ingum um fjölda erlendra um-
boða og umboðsmenn á íslandi. .
VIÐSKIPTI/ATVINWIILÍF
DAGBÓK
AAA 1995
UÚRSLIT í samkeppni ís-
lenska markaðsklúbbsins,
ÍMARKS um athyglisverðustu
auglýsingu ársins 1994 verða
tilkynnt í Borgarleikhúsinu 17.
mars nk. Þeir sem hafa hug á
að taka þátt í keppninni verða
að vera búnir að koma efninu á
skrifstofu ÍMARKS, Engjateigi
5, 105 Reykjavík, fyrir hádegi
þann 15. febrúar. Þetta er í
níunda sinn sem keppnin verður
haldin og verður athyglisverð-
asta efnið valið af sérstakri dóm-
nefnd, sem tekur til starfa fljót-
lega eftir að skilafrestur rennur
út.
Ráðstefna um
fjarþjónustu
URÁÐSTEFNA um fjarþjón-
ustu verður haldin á Hótel Sögu
mánudaginn 13. febrúar nk. frá
kl. 8.30-17.00. Þar verður m.a.
fjallað um þróun fjarþjónustu
síðustu ára og möguleika Islend-
inga. Ráðstefnan er haldin á
vegum Byggðastofnunar, Sam-
taka iðnaðarins, Skýrr, Pósts og
síma og Útflutningsráðs. Skrán-
ing fer fram hjá Útflutningsráði.
Námskeið
UENDURMENNTUNAR-
STOFNUN efnir til námskeiðs
um gerð kostnaðaráætlana í dag
9. febrúar kl. 13-17 og 10. febr-
úar kl. 8.30-12.30. Leiðbeinandi
er Om Steinar Sigurðsson verk-
fræðingur hjá VST hf.
Þá verður efnt til námskeiðs
um ný lög um bókhald og gerð
ársreikninga, 10. febrúar kl.
13-16. Leiðbeinendur eru þeir
Guðmundur Guðbjarnason,
viðskiptafræðingur og Alexand-
er Eðvarðsson, löggiltur endur-
skoðandi.
Námskeið um skattframtöl
einstaklinga verður haldið
14.-15. febrúar kl. 16-18. Leið-
beinandi verður Hrefna Einars-
dóttir, frá Ríkisskattstjóra.
Ráðstefna um
fjármagns-
markaðinn
UFÉLAG viðskiptafræðinga.
og hagfræðinga stendur fyrir
ráðstefnu 16. febrúar nk. kl.
13.30-17.00 á Hótel Loftleið-
um. Umræðuefni verður verður
horfur og þróun á íslenskum
fjármagnsmarkaði. Á ráðstefn-
unni munu flytja erindi þau
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, Birgitta Kantola,
framkvæmdastjóri Norræna
ijárfestingarbankans, Ragnar
Ondunarson, framkvæmda-
stjóri íslandsbanka, Guðmund-
ur Hauksson, forstjóri Kaup-
þings og Óli Björn Kárason,
ritstjóri Viðskiptablaðsins.
\I.t> lOÐUÍG t I A KI- l'.ST I NG AR.W;ON USTA
I.ANDSRRlii'A
I' ivttum tiKáittktetan. ntet &
- með fjárfestingarábyrgð
Alþjóðleg fjárfestingarþjónusta Landsbréfa
er bylting í fjármálaþjónustu á Islandi.
I fyrsta sinn býðst þér að haldið vcrði utan um fjárfestingar þínar
scrstaklcga, bæði i innlendum og erlcndum verðbréíum - vakað yfir
þeirn daglega og stöðugt leitað bestu ávöxtunarlciða af
sérfræðingum um allan heim.
Clerical Medical Investment Group - virt alþjóðlegt
fjármálafyrirtæki starfar við hlið okkar í þessari nýju þjónustu.
Sameinuð þekking, yfirsýn og reynsia stendur þér tíl boða
ásamt persónulcgri þjónusni og ráðgjöf okkar.
Efþú vilt:
• Fjárfesta á faglegan og skipulegan hátt innanlands og erlendis
• Nýta kosti alþjóðlegrar áhættudreifingar
• Auka öryggi fjölskyldunnar með fjárfestingarábyrgð
• Spara þér tíma, kostnað af mistökum og ýmislegt annað umstang
• Fá reglulega ítarlegt yfirlit yfir verðbréfaeign þína bæði í innlendum
og erlendum verðbréfum
... hringdu og fáðu tíma hjá ráðgjafa okkar.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkur
Suöurlandsbraut 24, 108 Reykjavfk, simi 91-889200, fax 91-888598. Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili aö Veröbréfaþingi Islands.