Morgunblaðið - 10.02.1995, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D
34. TBL. 83. ÁRG.
Efast um
ágæti
pastans
Róm. Rcutor.
ÍT ALIR gerðu sér gott af
pastanu sínu í gær þótt frétt-
ir hafi borist um það frá
Ameríku, að það geti ýtt
undir offitu. Var því haldið
fram í grein í The New York
Times.
Þar segir, að sérfræðing-
ar séu farnir að endurmeta
hollustu pastans og annarr-
ar sterkjuríkrar fæðu og
telji, að hún geti átt þátt í
offitu.
„Fyrir skömmu áttu
Bandaríkjamenn ekki orð til
að lýsa ágæti þeirrar fæðu,
sem algeng er við Mið-
jarðarhafið og er ny'ög kol-
vetnarík," sagði Giuseppe
Maratona, matvælafræðing-
ur við kaþólska háskólann i
Róm. „Nú hafa þeir snúið
við blaðinu, sérstaklega
gagnvart pasta, en gleyma,
að þeir fá mikið af kolvetn-
um úr öðrum mat, til dæmis
kartöflum. Það er mikið af
of feitu fólki í Bandaríkjun-
um en það er vant að troða
sig út af mörgu öðru en
pasta.“
Sérfræðingamir, sem
vitnað var I segja, að kol-
vetnarík fæða geti verið
óholl fólki, sem er feitt fyrir
eða framleiðir of mikið
insúlín eftir að hafa neytt
sykurs eða sterkju.
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Árangurslaus fundur Yassers Arafats og Yitzhaks Rabins á Gaza
Samníngar
sagðir á við-
kvæmu stigi
Mistókst að leysa ágreining um örygg-
ismál og lokun landamæra ísraels
Gaza, Erez. Reuter.
ALAIN Juppe, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði í gær að friðar-
samningar ísraela og Palestínu-
manna væru' á afar viðkvæmu stigi
og að stöðvuðust viðræðurnar,
myndi það hafa skelfilegar afleiðing-
ar. Juppe ræddi við blaðamenn i kjöl-
far fundar sem hann átti með Yass-
er Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínumanna, PLO. Arafat og
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra
ísraels, mistókst á fundi sínum fyrr
um daginn að leysa ágreining um
öryggismál og ferðabann Palestínu-
manna til ísraels.
Fundur Arafats og Rabins á Gaza-
svæðinu stóð í tvo tíma. Að honum
loknum reyndi Rabin að gera lítið
úr því hversu alvarleg staða væri
komin upp í samningunum en Yass-
er Abed Rabbo, aðstoðarmaður Ara-
fats, sagðist telja að samningsaðiium
væri mikill vandi á höndum, þar sem
mikið skildi á milli sjónarmiða ísra-
ela og Palestínumanna.
Ætlunin var að halda sameigin-
legan blaðamannafund að fundi
loknum en Arafat hélt þegar á brott
til að hitta Juppe og virtist afar
vonsvikinn.
Juppe vill að ferðabanni
verði aflétt
Juppe fer fyrir nefnd á vegum
Evrópusambandsins sem ætlað er
að þrýsta á um frekara samkomulag
Ísraela og Palestínumanna. Hann
sagðist myndu reyna að útskýra fyr-
ir Rabin hversu alvarlegt ástandið
væri á sjálfsstjómarsvæðum Palest-
ínumanna. Lýsti hann stuðningi sín-
um við kröfur Palestínumanna um
að aflétta banni við ferðum Palest-
ínumanna til ísraels en því var kom-
ið á eftir að 21 ísraeli lét lífið í
sjálfsmorðssprengingu í síðasta
mánuði. Rabin lýsti því yfir í gær
að banninu yrði ekki aflétt.
Arafat sagði fund þeirra Juppe
hafa verið Jákvæðan og árangurs-
ríkan“, en vildi ekki tjá sig um við-
ræðurnar við Rabin.
Reuter
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísraels, og Yasser Arafat,
leiðtogi PLO, þungir á brún að afloknum fundi á Gaza. Þeim
mistókst að leysa ágreining um öryggismál og lokun landamæra.
Friðarviðræður á Norður-Irlandi
Hlerunarbúnað-
ur fannst í her-
bergi Sinn Fein
Belfast. Reuter.
Reuter
Atlantshafssundi lokið
VIÐRÆÐUM Breta og kaþól- ikka um frið á
Norður-írlandi,
sem fram fara í
Stormont-kast-
ala, var skyndi- Æ-
lega frestað í
erær er örypfgis- tjjíMf 'tmtF
verðir samn- ■ m1
ingamanna Sinn ! » - lA j m
Fein, stjórn- Gerry Adams
málaarms Irska
lýðveldishersins, fundu hlerunarút-
búnað sem komið hafði verið fyrir í
herbergi því sem þeir notuðu til að
bera saman bækur sínar. Gerry Ad-
ams, leiðtogi Sinn Fein, tilkynnti um
þetta á blaðamannafundi í gær. Hann
sakaði Breta ekki um að standa fyr-
ir hlerununum. John Major forsætis-
ráðherra og Michael Ancram Norður-
írlandsmálaráðherra lögðu áherslu á
að enginn á vegum stjórnarinnar
hefði fyrirskipað hleranirnar.
Martin McGuinnes, sem fer fyrir
samninganefnd Sinn Fein, sagði að
öryggisverðir hefðu fundið búnaðinn
er þeir könnuðu herbergið hátt og
lágt. Nam tækjabúnaður þeirra
merki frá einu húsgagnanna í her-
berginu. Var það innsiglað og mun
lögreglan rannsaka málið.
Þetta var fimmta samningalota
Sinn Fein og Breta en samninga-
nefnd Sinn Fein hefur haft fundaað-
stöðu í herberginu sem búnaðurinn
fannst í. Aður hefur verið leitað í
herberginu með sérstökum tækni-
búnaði en ekkert fundist.
Fulltrúar Sinn Fein og bresku
stjómarinnar voru sammála um að
viðræður yrðu teknar upp að nýju
en að fundur hlerunarbúnaðarins
væri vissulega áfall. „Ég tel að þess-
ar viðræður verði að fara fram þar
sem báðir aðilar telja sig geta rætt
saman við öruggar aðstæður," sagði
Gerry Adams.
FRANSKI sundkappinn Guy Del-
age tók í gær land á Barbadoseyj-
um og lauk þar með sundi sínu
yfir Atlantshafið en Delage lagði
upp frá Grænhöfðaeyjum 16. des-
ember sl. „Þetta hefur verið afar
erfitt," sagði Delage við komuna
en hann hafði þá lagt um 3.900
km að baki. Ýmiskonar erfiðleik-
ar gerðu sundmanninum erfitt
fyrir, hákarlar, tæknibilanir og
hvassviðri. Hann synti um sex til
átta tima á dag en hvíldist á fleka
þess á milli. Viðurkenndi Delage
að hann hefði aðeins synt tæplega
helming leiðarinnar þar sem hon-
um hefði miðað mun hægar áfram
á sundi en á flekanum.
Einræði
eða upp-
lausn bíð-
ur Rússa
Bonn. Reuter.
SERGEJ Kovaljov, formaður rúss-
nesku mannréttindanefndarinnar,
sagði í gær, að ófarir rússneska hers-
ins í Tsjetsjníju væru á góðri leið
með að kalla annaðhvort einræði eða
pólitíska upplausn yfir rússnesku
þjóðina. Hvatti hann vestræn ríki til
þess að taka harðari afstöðu gegn
stjórn Borís Jeltsíns forseta.
Kovaljov sagði að Moskvustjómin
myndi senn reyna að telja þjóðinni
trú um að hún hefði unnið fullnaðar-
sigur. Líkast til yrði einhverskonar
einræði búið til en hinn kosturinn
væri upplausn - í landi þar sem úði
og grúði af kjarnorkuvopnum, kjarn-
orkuverum og þar sem engin hefð
væri fyrir rnálamiðlun.
Kovaljov sakaði Vesturlönd um
tvískinnungshátt gagnvart herför
Rússa í Tsjetsjníju. Þau hefðu for-
dæmt aðgerðirnar en jafnframt við-
urkennt rétt Moskvustjórnarinnar til
þess að koma í veg fyrir að einstök
héruð segðu sig úr lögum við hana.
■ Jeltsín setur tvo ráðherra/17