Morgunblaðið - 10.02.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 10.02.1995, Síða 1
PoröimMflöiífo C 1995 BLAK FOSTUDAGUR 10. FEBRUAR BLAÐ ■I Hávörn ÞRÓTTARINN Magnús Aðal- steinsson verst gegn HK í 1. deildar lelk liðanna í gœrkvöldi en Þróttur vann 3-1 og stendur best aö vígl. FRJALSAR Heimsmet Írina Privalova frá Rússlandi setti heimsmet í 50 metra hlaupi inn- anhúss í Madrid á Spáni í gærkvöldi og jafnaði met sitt í 60 metra hlaupi frá því fyrir ári á sama stað. Hún fór fyrstu 50 metrana í hlaupinu á 5,96 sekúndum en Merlene Ottey átti metið, hljóp á 6,0 sekúnduni í Moskvu í fyrra. „Ég kann vel við mig á Spáni og sérstaklega í Madrid,“ sagði Privalova sem fór 60 metrana á 6,92 sekúndum. Morgunblaðið/Þorkell KNATTSPYRNA Anton Bjöm í Val Anton Bjöm Markússon hefur gengið frá fé- lagaskiptum úr Fram í Val. „Eg hef æft með liðinu að undanfömu til að vera viss um að hveq'u ég geng og nú er þetta frágengið," sagði hann við Morgunblað- ið í gærkvöldi. Anton Björn lék með Eyjamönnum sumarið 1993 en skipti aftur yfir í Fram í fyrra. Hann sagðist hafa verið vel stemmdur fyrir tímabilið en dæmið hefði Anton Björn ekki gengið upp. „Ég byij- aði á því að meiðast, fékk ekki tækifæri og hætti á miðju sumri,“ sagði miðju- maðurinn, sem lék þijá leiki með Fram í 1. deild í fyrra. Hörður Hilmarsson þjálf- ar Val og sagði Anton Björn að það hefði ráðið miklu auk þess sem leikmannahópur- inn væri spennandi. „Ég var að spá í nokkur lið en Valur varð fyrir valinu," sagði hann. KORFUKNATTLEIKUR Maxwell fékk 10 leikja bann og um 1,3 millj. kr. í sekt VERNON Maxwell, leikmaður hjá Houston Rockets í NBA-deildinni í körfuknattleik, var gert að greiða 20.000 dollara (um 1,3 millj. kr.) í sekt og dæmdur í a.m.k. 10 leikja bann fyrir að ráðast á áhorfanda á leik liðsins í byijun vikunnar. Sektar- greiðslur hafa aldrei verið hærri í sögu deildarinn- ar og aðeins einu sinni hefur leikmaður verið úr- skurðaður í lengra bann, en eftir á að taka málið fjnrir og svo getur farið að Maxwell fái harðari refsingu. FRJALSIÞROTTIR Fimm íþróttamenn féllu á lyfjaprófi FIMM fijálsíþróttamenn voru dæmdir í bann í gær eftir að fyrir lá að þeir höfðu fallið á lyfjaprófi og eiga þeir fjögurra ára bann yfir höfði sér. Al- þjóða frjálsíþróttasambandið sagði í tilkynningu um málið að fjórir umræddra íþróttamanna hefðu fallið á lyíjaprófi sem hefði verið framkvæmt fyrir- varalaust utan keppni í desember s.l. og boðaði auknar aðgerðir á árinu. Bandaríski kringlukastar- inn Michael Gravelle og Freddy Femando Caiza frá Ecuador mældust með of hátt hlutfall af karl- hormóninu testósterón en Gea Johnson frá Banda- ríkjunum sem keppir í sjöþraut, Spretthlauparinn Aston Morgan frá Jamaíka og 800 metra hlaupar- inn Dalia Matuseviciene frá Látháen höfðu tekið stera. Aðeins Morgan féll á lyfyaprófi sem tekið var í keppni. SKVASS Norðurljósamótið í fyrsta sinn á íslandi ALÞJÓÐLEGT skvssmót, Norðurljósamótið, verður haldið i Veggsporti helgina 17. og 18. febrúar og er þetta í fyrsta sinn sem mótið fer fram. Mótshald- arar eru mjög ánægðir með viðtökumar sem mót- ið hefur fengið erlendis og verða erlendir keppend- ur um 20 taisins auk íslenskra keppenda. Meðal annai-s koma landsliðsmenn frá Danmörku, Nor- egi, Lúxemborg og Möltu auk sterkra spilara frá írlandi og Skotlandi. Peningaverðlaun verða f boði fyrir þijú efstu sætin ásamt verðlaunagripum. GOLF Ragnar liðsstjóri kvennalandsliðsins RAGNAR Ólafsson verður liðsstjóri íslenska kvennalandsliðsins í golfi næsta sumar. Ragnar tekur við starfínu af Kristínu Pálsdóttur, sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi starfa. Ragnar verður því bæði með karla- og kvennaliðið. Fjöl- mörg verkeíni eru fyrir liðin. Fyrsta verkefnið er Norðurlandamót karla og kvenna sem fram fer í Svíþjóð i lok júní og þann 5. - 9. júlf tekur karla- liðið þátt í Evrópumótinu sem fram fer í Belgíu, en kvennaliðið keppir í Mflanó á Ítalíu 12. - 16 júlí. Evrópukeppni einstaklinga í karlaflokki fer fram á Spáni 24. - 27. ágúst og einstaklings- keppni kvenna i Þýskalandi nokkrum dögum síð- ar. Hörður Arnarson er liðsstjóri unglingalandsliðs- ins sem keppir á Norðurlanda- og Evrópumóti liða. Landsliðsmálin verða efst á baugi í ársþingi Golfsambandsins sem sett verður f Golfskálanum að Jaðri á Akureyri kl. 17 í dag en landsiiðsnefnd skipuð þeim Óiafi Jónssynis Amari Má Ólafssyni, Ragnari Ólafssyni Jóni E. Arnasyni, Herði Amar- syni og Jóhönnu Ingólfsdóttur hefur sett sér mark- mið fyrir landsliðshópana til næstu fimm ára. Ljóst er að umræður um forgjafarbreytinguna munu einnig taka dijúgan tíma en um næstu áramót verður farið úr Congu-kerfinu yfir í Slope - kerfið sem notað er í Bandaríkjunum og flest Evrópuríki taka f notkun á næstu árum. KÖRFUKNATTLEIKUR: MARK HADDEN LÉK MED HAUKUM / C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.