Morgunblaðið - 10.02.1995, Blaðsíða 1
PoröimMflöiífo
C
1995
BLAK
FOSTUDAGUR 10. FEBRUAR
BLAÐ
■I
Hávörn
ÞRÓTTARINN Magnús Aðal-
steinsson verst gegn HK í 1.
deildar lelk liðanna í gœrkvöldi
en Þróttur vann 3-1 og stendur
best aö vígl.
FRJALSAR
Heimsmet
Írina Privalova frá Rússlandi setti
heimsmet í 50 metra hlaupi inn-
anhúss í Madrid á Spáni í gærkvöldi
og jafnaði met sitt í 60 metra hlaupi
frá því fyrir ári á sama stað. Hún
fór fyrstu 50 metrana í hlaupinu á
5,96 sekúndum en Merlene Ottey
átti metið, hljóp á 6,0 sekúnduni í
Moskvu í fyrra. „Ég kann vel við
mig á Spáni og sérstaklega í
Madrid,“ sagði Privalova sem fór
60 metrana á 6,92 sekúndum.
Morgunblaðið/Þorkell
KNATTSPYRNA
Anton Bjöm í Val
Anton Bjöm Markússon
hefur gengið frá fé-
lagaskiptum úr Fram í Val.
„Eg hef æft með liðinu að
undanfömu til að vera viss
um að hveq'u ég geng og
nú er þetta frágengið,"
sagði hann við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Anton Björn lék með
Eyjamönnum sumarið 1993
en skipti aftur yfir í Fram
í fyrra. Hann sagðist hafa
verið vel stemmdur fyrir
tímabilið en dæmið hefði
Anton Björn
ekki gengið upp. „Ég byij-
aði á því að meiðast, fékk
ekki tækifæri og hætti á
miðju sumri,“ sagði miðju-
maðurinn, sem lék þijá leiki
með Fram í 1. deild í fyrra.
Hörður Hilmarsson þjálf-
ar Val og sagði Anton Björn
að það hefði ráðið miklu auk
þess sem leikmannahópur-
inn væri spennandi. „Ég var
að spá í nokkur lið en Valur
varð fyrir valinu," sagði
hann.
KORFUKNATTLEIKUR
Maxwell fékk 10
leikja bann og um
1,3 millj. kr. í sekt
VERNON Maxwell, leikmaður hjá Houston
Rockets í NBA-deildinni í körfuknattleik, var gert
að greiða 20.000 dollara (um 1,3 millj. kr.) í sekt
og dæmdur í a.m.k. 10 leikja bann fyrir að ráðast
á áhorfanda á leik liðsins í byijun vikunnar. Sektar-
greiðslur hafa aldrei verið hærri í sögu deildarinn-
ar og aðeins einu sinni hefur leikmaður verið úr-
skurðaður í lengra bann, en eftir á að taka málið
fjnrir og svo getur farið að Maxwell fái harðari
refsingu.
FRJALSIÞROTTIR
Fimm íþróttamenn
féllu á lyfjaprófi
FIMM fijálsíþróttamenn voru dæmdir í bann í gær
eftir að fyrir lá að þeir höfðu fallið á lyfjaprófi
og eiga þeir fjögurra ára bann yfir höfði sér. Al-
þjóða frjálsíþróttasambandið sagði í tilkynningu
um málið að fjórir umræddra íþróttamanna hefðu
fallið á lyíjaprófi sem hefði verið framkvæmt fyrir-
varalaust utan keppni í desember s.l. og boðaði
auknar aðgerðir á árinu. Bandaríski kringlukastar-
inn Michael Gravelle og Freddy Femando Caiza
frá Ecuador mældust með of hátt hlutfall af karl-
hormóninu testósterón en Gea Johnson frá Banda-
ríkjunum sem keppir í sjöþraut, Spretthlauparinn
Aston Morgan frá Jamaíka og 800 metra hlaupar-
inn Dalia Matuseviciene frá Látháen höfðu tekið
stera. Aðeins Morgan féll á lyfyaprófi sem tekið
var í keppni.
SKVASS
Norðurljósamótið í
fyrsta sinn á íslandi
ALÞJÓÐLEGT skvssmót, Norðurljósamótið, verður
haldið i Veggsporti helgina 17. og 18. febrúar og
er þetta í fyrsta sinn sem mótið fer fram. Mótshald-
arar eru mjög ánægðir með viðtökumar sem mót-
ið hefur fengið erlendis og verða erlendir keppend-
ur um 20 taisins auk íslenskra keppenda. Meðal
annai-s koma landsliðsmenn frá Danmörku, Nor-
egi, Lúxemborg og Möltu auk sterkra spilara frá
írlandi og Skotlandi. Peningaverðlaun verða f boði
fyrir þijú efstu sætin ásamt verðlaunagripum.
GOLF
Ragnar liðsstjóri
kvennalandsliðsins
RAGNAR Ólafsson verður liðsstjóri íslenska
kvennalandsliðsins í golfi næsta sumar. Ragnar
tekur við starfínu af Kristínu Pálsdóttur, sem ekki
gaf kost á sér til áframhaldandi starfa. Ragnar
verður því bæði með karla- og kvennaliðið. Fjöl-
mörg verkeíni eru fyrir liðin. Fyrsta verkefnið er
Norðurlandamót karla og kvenna sem fram fer í
Svíþjóð i lok júní og þann 5. - 9. júlf tekur karla-
liðið þátt í Evrópumótinu sem fram fer í Belgíu,
en kvennaliðið keppir í Mflanó á Ítalíu 12. - 16
júlí. Evrópukeppni einstaklinga í karlaflokki fer
fram á Spáni 24. - 27. ágúst og einstaklings-
keppni kvenna i Þýskalandi nokkrum dögum síð-
ar. Hörður Arnarson er liðsstjóri unglingalandsliðs-
ins sem keppir á Norðurlanda- og Evrópumóti liða.
Landsliðsmálin verða efst á baugi í ársþingi
Golfsambandsins sem sett verður f Golfskálanum
að Jaðri á Akureyri kl. 17 í dag en landsiiðsnefnd
skipuð þeim Óiafi Jónssynis Amari Má Ólafssyni,
Ragnari Ólafssyni Jóni E. Arnasyni, Herði Amar-
syni og Jóhönnu Ingólfsdóttur hefur sett sér mark-
mið fyrir landsliðshópana til næstu fimm ára. Ljóst
er að umræður um forgjafarbreytinguna munu
einnig taka dijúgan tíma en um næstu áramót
verður farið úr Congu-kerfinu yfir í Slope - kerfið
sem notað er í Bandaríkjunum og flest Evrópuríki
taka f notkun á næstu árum.
KÖRFUKNATTLEIKUR: MARK HADDEN LÉK MED HAUKUM / C4