Morgunblaðið - 10.02.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 D 3
DAGLEGT LÍF
Þótt Ellý sé e.t.v. ekki dæmigerð
ímynd tískusýningarstúlkunnar,
sem alla jafna er himinhá og
þvengmjó, þótti hún hafa ákjósan-
legt útlit fyrir tískumyndir af
hraustlegu ungmenni í sportfatnaði
með villta og óspjallaða náttúru í
bakgrunni. Hún er snaggaraleg,
fremur lágvaxin, grönn, ljóshærð
með dökkan hörundslit og áberandi
sterka augnaumgjörð. Henni svipar
reyndar svolítið til 'frægra systra,
sonardætra Hemmingways, en þær
hafa getið sér gott orð í heimi tísku
og kvikmynda.
„Eg var valin vegna þess að ég
þyki hafa sérstakt útlit og andlit sem
þolir að vera ófarðað, enda hafði ég
aldrei tækifæri til að mála mig og
snurfusa í ferðinni. Allt átti að vera
sem náttúrulegast. Þegar við kom-
um til Darwin fékk hver fyrirsæta,
þrjár stelpur og þrír strákar, stóra
ferðatösku, fulla af tískufatnaði.
Það var ekkert amast við þótt fötin
yrðu skítug og þvæld á leiðinni, því
þannig áttu þau einmitt að vera.
Þessi ferð hefði ekki hentað snyrti-
legum veimiltítum. Við komumst
ekki í sturtu nema á fimm daga
fresti og urðum þess á milli að láta
okkur hafa það að baða okkur í
misgruggugum lækjarsprænum
hingað og þangað. Við vorum að frá
morgni til kvölds, innan um krókó-
díla, snáka, kengúrur, kóngulær og
úlfa. Alltaf var verið að mynda, jafn-
vel þegar átti að heita smáhlé á
tökum, 'gátu ljósmyndaramir ekki
haldið að sér höndum, heldur beindu
myndavélinni að manni og sögðu:
„Já, svona ...“ eða „gerðu þetta
aftur, þetta verður fín mynd.“ Allt
gekk út á myndatökur í mismunandi
umhverfi, við mismunandi aðstæð-
ur.“
Ógleymanlegt ævlntýrl
Ellý lýsir ferðinni, sem endaði í
Perth, sem allsheijar ævintýri. Hóp-
urinn var samstilltur og góður andi
sveif yfir vötnum. „Við ferðuðumst
á þremur jeppum, hlöðnum tækja-
búnaði, og hvarvetna blasti við okkur
ósnortin náttúra og fjölbreytt dýra-
líf. Ógleymanlegast fannst mér að
synda með höfrungum, þessum gull-
fallegu og gáfuðu dýrum. Ég eignað-
ist góða vini og ef ég kærði mig um
gæti ég efalítið notað sambönd mín
til að koma mér á framfæri í tísku-
heiminum," segir Ellý, en bætir við
að þá yrði hún trúlega að grenna sig
um sjö kíló. Henni fínnst fráleitt að
leggja út í slíka sjálfspíningu, sem
jafnvel gæti leitt til anorexíu.
„Ævintýrið mitt í Ástralíu verður
sagan fyrir bömin mín og barna-
börn,“ segir Ellý, sem þó er ekkert
farin að huga að bameignum. Hún
á kærasta og saman leigja þau íbúð
„með öllu“, þ.e. húsgögnum, heimil-
istækjum og búsáhöldum. „Miklu
þægilegra svoleiðis, ef ég skyldi
skyndilega ákveða að fara í langt
ferðalag, t.d. til Kína eins og hugur-
inn stendur til. Mig langar til að
dvelja þar um lengri tíma og læra
tungumálið." Aðspurð hvað yrði þá
um kærastann segir Ellý að hann
kæmi vitaskuld á eftir sér. ■
vþj
Tveggja vikna hönnunarhátíð
Ný íslensk húsgagna-
og innréttingahönnun í Hafnarhúsinu
HÖNNUNARDAGAR 95 er yfírskriftin á hönnunarhátíð sem er í vænd-
um í lok febrúar. Meðal þeirra fimm sýninga sem verða settar upp er
sýning sem húsgagna- og innanhússhönnuðir auk framleiðenda verða
með í 400 fermetra rými í Hafnarhúsinu.
Það er Hönnunarstöðin sem sér um skipulagningu hátíðarinnar. Um
tíu húsgagnaframleiðendur og milli 10-14 hönnuðir taka þátt í samsýning-
unni í Hafnarhúsinu.
Hönnuðum ber saman um að gróska sé í greininni, hlutdeild íslenskrar
framleiðslu eykst stöðugt í eldhúsinnréttingum og skrifstofuhúsgögnum
og nú vilja hönnuðir virkja áhuga íslendinga á að kaupa íslensk húsgögn
og auka úrvalið á heimilishúsgögnum til muna.
Skrifstofu
húsgögn
fyrir
lítið pláss
Sturla Már Jónsson hús-
gagna- og inannhússhönn-
uður verður með ný skrif-
stofuhúsgögn á sýningunni
í Hafnarhúsinu. Húsgögnin
heita Seria nett og um er
að ræða viðbót við Seria
húsgögnin sem þegar eru
til tvær tegundir af. Eins
og nafnið gefur til kynna
eru þessi húsgögn nettari
en þau sem til eru fyrir og
hugsuð til að búa tií góða
vinnuaðstöðu á litlu svæði.
Húsgögnin eru fram-
leidd úr beyki og mahóní
með hliðum í sama lit eða
gráar. Þeim fylgir ný teg-
und af skermveggjum sem
geta staðið sjálfstæðir og
má hengja á húsgögn ef
vill.
Skrifstofuhúsgögnin eru
framleidd af Á. Guðmunds-
syni hf. í Kópavogi sem
Sturla hefur unnið fyrir
síðastliðin tíu ár.
Sturla Már er um þessar
mundir að vinna að hinum
og þessum innréttinga-
verkefnum fyrir fyrirtæki
og einstaklinga. ■
Vilja sjá grósku
í hönnun
heimilishúsgagna
Húsgagna- og innanhúshönnuðirnir Guð-
rún Margrét Olafsdóttir og Oddgeir Þórð-
arson reka saman teiknistofu á Háteigs-
vegi.
Þau verða á sýningunni með skápa sem
eru hluti af borðstofulínu. Hlutimir voru
á sýningu í Bella Center í haust og þar
komust Oddgeir og Guðrún Margrét í
samband við aðila sem er að kanna mögu-
leika á útflutningi.
Auk þess sem þau vinna við almenna
innanhúshönnun, þá hanna Guðrún Mar-
grét og Oddgeir skrifstofur, innréttingar
í verslanir og fyrir einstaklinga. Þau
starfa fyrir Brunás innréttingar, hafa
unnið fyrir Epal og eru að reyna fyrir
sér sem sjálfstæðir hönnuðir og framleið-
Blindir flétta
setu o g bak
ERLA Sólveig Óskarsdóttir
húsgagna- og iðnhönnuður verð-
ur með stól á hönnunarsýning-
unni. „Mig langaði til að gera
hlýjan stól fýrir nútímafólk,
koma með mýktina og hlýjuna
úr gömlu stólunum. Eg reyndi
engu að síður að hanna hann
með tilliti til nútímatækni upp á
framleiðslu."
Samningar tókust með hús-
gagnaframleiðandanum GKS hf.
og Blindrafélaginu um að þeir
síðamefndu tækju að sér að
flétta bak og sæti með tágum.
Það verður gert í höndum og
Erla segir það dagsvinnu að
flétta bak og setu fyrir einn stól.
Stóllinn verður kynntur í end-
anlegri mynd á sýningunni.
Þessa dagana er Erla Sólveig
að hanna olíuflöskur undir mata-
rolíur fyrir Sól hf. og síðan sér
hún um að hanna skrifstofuhús-
gögn fyrir skandinavíska kvik-
myndaframleiðendur sem leigja
sér húsnæði í Cannes fyrir kynn-
ingarhátíðina sem verður þar í
maí næstkomandi. Húsgögnin
verða smíðuð á íslandi og fara
héðan með gám til Cannes.
endur undir
merkinu GO
húsgögn.
Þau
leggja
áherslu á
heimlishús-
gögn en
þeim flnnst
ekki hafa
verið nógu
mikil gróska
í framleiðslu
á íslenskum
heimilishús-
gögnum í
langan tíma.
Hefur verið
að selja
Þjóðverjum
hönnun sína
Sigfuijón Pálsson húsgagna og
innanhússarkitekt hefur haft í
nógu að snúast undanfarin tvö
ár síðan hann hóf fyrir alvöru
að hanna og senda frá sér hluti.
Hann tók þátt í húsgagnasýn-
ingu í Bella Center 1993 og seldi
þar stól sinn, Rapsodíu, til þýsks
framleiðanda, Brune Gmbh &
Co. Stóllinn er þegar kominn í
framleiðslu og selst vel. Hann
er markaðssettur sem kaffihúsa-
stóll og verður til sýnis á
hönnunarsýningunni.
Siguijón tók þátt í Bella sýn-
ingunni árið eftir, eða 1994, og
þá keypti sami þýski aðili af
honum sófalínu sem verður sett
á markað í Þýskalandi nú i mars.
Von er á sýningarsófa til lands-
ins sem var á Orgatec sýning-
unni í Köln í október sl. Hann
verður til sýnis í Epal en sú
verslun selur húsgögn frá Brune
Gmbh & Co.
Þá verður Sigurjón einnig
með á sýningunni stól sem hann
hefur hannað í samvinnu við
nokkur íslensk fyrirtæki. Stóll-
inn, sem heitir Vikivaki, verður
framleiddur á Akureyri og mun
borðalína fylgja í kjölfarið. Um
er að ræða fjölnota stól fyrir
skóla, félagsheimili og aðrar
stofnanir.
Rúsinan í pylsuendanum segir
hann að sé stóll sem hefur verið
í þróun síðastliðin tvö til þrjú
ár. Fram til þessa hefur hann
aðallega hannað stál- og viðar-
húsgögn en hér er um að ræða
álstól. „Þetta er frakkur stóll
og ég hef valið að fara óhefð-
bundna leið í hönnuninni. Ég hef
verið að þróa aðferð við hönnun
úr áli. Fram til þessa hafa menn
notað einn lit í álhönnun en þessi
aðferð gefur möguleika á lita-
samsetningum. Annars er best
að segja sem minnst um stólinn,
það kemur í \jós hvernig hann
lítur út.“
GúðbjörgR. Guðmundsdóttir
Meistarakokkarnir
saman þannig að úr verði þykkt
mauk. Hlutið kjúklinginn í 6
hluta og smyrjið maukinu á hlut-
ana og látið standa í kæli yfir
nótt, takið úr kæli klukkutíma
fyrir eldun og saltið. Steikt í
180°C heitum ofni í 20-30 mín.
Borið fram með salati.
Þessi réttur er rótsterkur
enda gætir mexíkanskra áhrifa
í honum. Góður réttur fyrir unn-
endur sterkra rétta.
New York vöfflur
300 gr hveiti
1 tsk. matarsódi
Vi tsk. salt
2 msk. sykur
___________um /2 I mjólk_________
_________3 stk, egg (skilinl_____
90 gr smjör
Setjið þurrefnin í skál og
hrærið mjólk, eggjarauðum og
bræddu smjörinu smátt og
smátt út í og hrærið uns bland-
an er kekkjalaus. Bætiö örlítilli
mjólk í ef deigið er of þykkt.
Stífþeytið eggjahvíturnar og
bætið í deigið fyrst 1A svo rest.
Bakið á hefðbundinn hátt í
vöfflujárni, haldið heitum í ofni
en ekki stafla. Þessarvöfflureru
bornarfram með sýrópi, gjarn-
an hlynsýrópi.
Þessi aðferð, þ.e. að stíf-
þeyta eggjahvíturnar í deigið,
veldur því að vöfflurnar verða
loftkenndari og stökkar.
lykillinn að eilífri æsku?
Eitt hæsta hlutfall Q-10 í frumum líkamans er í hjartanu.
Upp úr miðjum aldri minnkar framleiðslu á því og getur
það leitt til minni mótstöðukrafts, skerts starfsþreks og
ótímabærrar öldrunar. Hlutverk Coensims Q-10 er að
breyta næringarefnum í orku í sérhverri frumu likamans
þegar fæðan er brotin niður. Auk þess hefúr það
sterk andoxandi áhrif. Þá sem skortir Q-10 geta
fundið greinilegan mun eftir neyslu þess í nokkum
tíma, í auknu þreki og betri líðan, en jafnffamt er
stuðlað að heilbrigðari efri árum.
Éh
leilsuhúsið
Skólavörðustíg & Kringlunni
J