Morgunblaðið - 11.02.1995, Síða 1
AUGLÝSING
LANDSSAMTOKIN
HEIMILIf
Útg. Landssamtökin Heimili og skóli
Ábm. Unnur Halldórsdóttír Umsjón Bergljót Davíðsdóttír
MUNIÐ FORELDRALINUNA
UPPELDIS- OG LÖGFRÆÐILEG RÁÐGJÖF
Grænt númer 800 6677
Mánudag og miðvikudag kl 17 -19
■ Bamaheill
Heimili og skóli auglýsir eftir þingmönnum
Bömin vantar þingmann
sem hefur dug og þor til að berjast
Eins og fram kemur á síð-
unni hér fyrir neðan þá
auglýsa Landssamtök-
inn Heimili & skóli eftir
þingmönnum. Það er
ekki algengt að auglýst sé eftir
þingmönnum og af því tilefni innt-
um við Unni Halldórsdóttur for-
mann samtakanna eftir því hverju
það sætti.
„Þessi hugmynd varð til yfir
kaffíbolla á skrifstofu Heimilis &
skóla fyrir skömmu, „segir Unnur“.
Við vorum að tala um hve fáir þing-
menn virðast bera hag grunnskól-
ans fyrir brjósti á alþingi. í því
sambandi rifjuðust upp nöfn þing-
mann sem eiga sér sína uppáhalds
málaflokka.
Menn eins og Eggert Haukdal,
Páll Pétursson, Egill Jónsson og
Pálmi Jónsson rísa upp landbúnað-
inum til varnar að ógleymdum land-
búnaðarráðherranum Halldóri
Blöndal.
Þá hefur Ingi Björn Albertsson
verið dyggur talsmaður þyrlukaupa
og ef minnst er á umhverfismál þá
eru Össur, Hjörleifur og sumar
þingkonur kvennalistans komin í
ræðustól. Sjávarútvegurinn á sína
talsmenn eins og Halldór Asgríms-
son eða þá Guðmund Hallvarðsson
og Guðjón A. Kristinsson sem allir
hafa persónulega reynslu af sjó-
mennsku og þannig mætti lengi
telja. Við reiknum með því að hags-
munagæslusamtök í landbúnaði,
dýravernd eða sjávarútvegi geti
náð á þessa þingmenn með litlum
fyrirvara og sett þá inn í máhn sem
heitast brenna hverju sinni.
Unnur kveðst oft velta því fyrir
sér hvort þingmenn gleymi því að
þeir eru eða voru einhverntíma for-
eldrar eða ættingjar grunnskóla-
nemenda. Kannski er það ef því að
þeir eru flestir karlmenn og hafa
ekki þurft að hlaupa úr vinnunni til
■ 5i
■ iiii
íslensk börn þarfnast þingmanna sem hafa dug og áræði ti il að berjast
fyrir hagsmunum þeirra á þingi.
að redda pössun á starfsdögum.
Kannski af því að þær konur sem
eru á þingi eru annað hvort hættar
að vera með börn í skóla eða hafa
ráð á að hafa „au pair“ stelpur. Hún
segir kvennalistakonurnar hafa
vissulega reynt að ýta á skólamálin,
en þeim hafi ekki tekist að hrista
upp í þingheimi. „Núverandi
menntamálaráðaherra hefur notað
kjörtímabilið til að móta mennta-
stefnu og semja ný lög en því miður
hefur lítið orðið úr framkvæmdum.
Þau Sigríður Anna Þórðardóttir,
Pétur Bjarnason, Valgerður Sverr-
isdóttir og Svavar Gestsson hafa
vissulega borið menntamál fyrir
brjósti en betur má ef duga skal.“
Unnur segir að niðurstaðan af
þessum kaffistofuumræðum hafi
verið að auglýsa hreinlega eftir
stjórnmálamanni sem vildi vera
talsmaður grunnskólans á þingi.
„Þá á ég við þingmann sem virki-
lega kynnir sér málin frá öllum
hliðum og berst þvert á alla flokks-
hagsmuni þegar sótt er að mennta-
málum. Gott væri að sá maður væri
duglegur að hefja umræður utan
dagsskrár og bæri fram fyrirspurn-
ir þegar við ætti. Hann þyrfti að
halda menntamálaráðherranum
hverju sinni við efnið og ýta á eftir
því að lögum væri framfygt. Auðvit-
að er það ekki eins manns verk og
við viljum helst sjá heilu þingflokk-
ana helga sig þessum málstað sem
varðar 100 þúsund manns daglega.
Við finnum það t.d. að þingmenn
átta sig ekki á mannlegu þáttunum
bak við tölurnar. Hvaða margfeldis-
áhrif hefur það að hrófla við há-
marksfjölda í bekkjum? Vita þing-
menn hvað það er dýrkeypt að skól-
ar mega ekki hafa fasta forfalla-
kennara á launaskrá í stað þess að
láta hina kennarana hlaupa í skai'ð-
ið á yfirvinnutaxta? Það er í svo
mörg horn að líta og ég nefni hér tO
að mynda aðþrengda Námsgagna-
stofnun sem enn er að endurprenta
úreltar kennslubækur vegna fjár-
skorts og áfram mætti lengi telja.”
Unnur segir Heimili og skóla
m.a. geta boðið væntanlegum um-
sækjendum að vera í nánum
tengslum við það fólk sem verður
að nota þjónustu skólanna. „Við
erum allan daginn allan ársins
hring í stöðugu sambandi við for-
eldra og það má segja að við séum
með fingur á púlsinum og vitum
hvar slátturinn er mestur hverju
sinni. Það dugar ekki að það séu
eingöngu upplýsingar frá ráðu-
neyti og fræðsluskrifstofum sem
berast til þingmanna, því veruleik-
inn getur verið annai' en þau fögru
orð sem standa í opinberum sam-
antektum” segir Unnur.
Hún leggur áherslu á það að
samtökin Heimili & Skóli séu
þverpólitísk samtök sem hafa það
meginmarkmiði að bæta uppeldis-
og menntunarskilyrði barna. Á
stuttum ferli samtakanna hafi
margt áunnist t.d. hafi umræða um
skólamál stóraukist hin síðari ár.
Hún segist vænta þess að þeir
ungu og efnilegu frambjóðendur
sem nú eru að búa sig undir þing-
mennsku beri gæfu til að skilja að
skólamálin eru mál málanna og
hvetur alla þingmenn til að íhuga
alvarlega nýársboðskap forseta Is-
lands. „Ef grunnskólinn eignast
öfluga málsvara á þingi þá verður
það stórt skref fram á við, því öll
menntun hvílir á þeim gi-unni sem
þai- er lagður. Við getum ekki enda-
laust mokað fiski upp úr sjónum;
auðlind framtíðarinnar er menntuð
MUNIÐ
SÝNINGUNA
BÖRNIN 0G FRAMTÍDIN
IK0LAP0RT1NU UM
HELGINA
WVERÐUMÞAR
IU!/;
Verkfall - nei takk!
Það er alveg ljóst að foreldrar munu ekki sitja
þegjandi hjá ef til verkfalls kennara kemur.
Samtökin Heimili & skóli hafa þegar sent mennta-
málaráðherra og fjármálaráðherra beiðni um fund
til að ræða málin. Þar verður farið verður fram á
að stjórnvöld upplýsi foreldra um til hvaða úrræða
þau ætla að grípa til að sinna þeirri skyldu sinni að
sjá nemendum í grunnskóla fyrir menntun eins og
grunnskólalög kveða á um. Stefnt er að fundi á veg-
um Heimilis & skóla eftir helgi þar sem lagt verður
á ráðin um aðgerðir ef til verkfalls kemur. Foreldr-
ar eru hvattir til að vera í viðbragðsstöðu og fylgj-
ast með auglýsingum í fjölmiðlum.
Þingmenn óskast
Landssamtökin Heimili og skóli auglýsa hér með eftir stjórn-
málamönnum sem eru reiðubúnir til þess að vinna að hags-
munum grunnskólanemenda á næsta kjörtímabili.
Æskilegt er að viðkomandi:
• þekki af eigin raun aðstæður grunnskólanemenda t.d.
sem foreldri
• sé tilbúinn að hlusta á sjónarmið foreldra af öllu landinu
• vilji vinna með fólki úr öllum flokkum að raunverulegum
framförum í skólakerfinu
Heimili og skóli eru samtök foreldra með tíu þúsund félagmenn um allt
land. Þau reka m.a. upplýsingaþjónustu fyrir foreldra og foreldrafélög
í grunnskólum landsins. Samtökin hafa sem meginmarkmið að bæta
uppeldis- og menntunarskilyrði íslenskra barna og leita nú eftir sam-
starfsaðilum á Alþingi til að sinna því verkefni.
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknum skal skilað á
skrifstofu Heimilis og skóla í Sigtúni 7 105 Reykjavík þar sem
nánari upplýsingar eru veittar í síma 562-7475. Með umsóknir
verðurfarið sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.