Morgunblaðið - 11.02.1995, Blaðsíða 1
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995 BLAÐ
GUÐRÚIM Ás-
mundsdóttir í
hlutverki
yfirgefinnar
eiginkonu og
JóhannaJón-
asdóttir í hlut-
verki svikamið-
ils sem kemur á
sambandi milli
þeirra.
Morgunblaðið/Þorkell
Vonarglæóur í dökkri
framtíöarsýn og solli
Lýsing Þórs er í senn
hrollvekja og grátt
gaman, ekki ff jarri
raunveruleika margra
íslenskra ungmenna
ÆFINGAR eru hafnar hjá Leikfélagi Reykjavíkur á leikritinu
Framtíðardraugar eftir Þór Tulinius. Höfundurinn er jafn-
framt leikstjóri verksins sem segir frá ungu utangarðsfólki
sem lifir í nánustu framtíð samfélags okkar í
landi sem er snautt af náttúrulegum gæðum
og tækifærum. í veröld sýndarveruleika, smá-
glæpa, eiturlyfja og ofbeldis reyna þrír ein-
staklingar að móta sér tilveru. Lýsing Þórs og
framtíðarsýn er í senn hrollvekja og grátt gam-
an, farsi og fráhrindandi mynd af heimi á heljar-
þröm. Framtíðardraugar er framtíðarsaga með
rammíslenskum og þjóðlegum fyrirbærum eins
og andatrú og draugum. Lausn aðalpersón-
anna frá veröld smáglæpa, eiturlyfja og ofbeldis liggur í
gegnum andlega handleiðslu inn á aðrar brautir. Þannig
er verkið í senn bráðfyndin þjóðlífslýsing og hrollvekjandi
sýn af heimi á heljarþröm. Frumsýning verður um miðjan
febrúar á Litla svðinu.
Þór segir að í raun sé verk-
ið ekki hugsað sem lýsing
á þjóðlífí í framtíðinni, en
þó komi fram að atvinnu-
leysi á íslandi sé 25% og persón-
umar hafa ofan af fyrir sér með
tölvuleikjum, myndbandaglápi og
eiturlyfjaneyslu.
Þór bendir á að sögumaður í
upphafi leikritsins segir söguna í
þáframtíð árið 2044 og framtíðar-
sýnin sé öllu geðfelldari þá. Sögu-
maður er amma sem talar símleið-
is við barnabörn sín í Nagasaki í
Japan og segir þeim frá lífí sínu
árið 2009.
Þór segir að veruleiki leikritsins
sé ekki ijarri raunveruleika
margra íslenskra ungmenna sem
lifa utangarðs í dag. Veruleiki
persónanna er einatt á mörkum
hins jarðbundna og yfírnáttúru-
lega.
„Það má segja að árið 2009 sé
framtíðin dimmari. Þar er tilver-
unni lýst eins og hún blasir við
ansi mörgum í dag. Líf smáglæpa-
manna og dópista, systkinanna
Sigga og Gunnu og vinar þeirra
Jóa, sem lifa í sjálfseyðingar-
heimi. Þetta er hörkuheimur sem
á kannski eftir að ágerast frekar
en hitt. Þau opna miðilsskrifstofu
og það gerist eitthvað, það koma
einhverjir kraftar inn í líf þeirra
alls óvænt, eða a.m.k. upplifa þau
það. Það er síðan spurning hvort
sú upplifun er sönn eða af völdum
eiturlyfjanna. í leikritinu verðum
við vitni að þeirri breytingu sem