Morgunblaðið - 11.02.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 11.02.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA AFREKSMANNASJOÐUR ISI Rekstrarhagn- aður ÍA 6,2 milljónir í fyrra VELTA Knattspyrnufélags IA í fyrra var rúm- ar 48 miiyónir króna, og rekstrarhagnaðurinn tæpar 6,2 miiyónir króna. Þetta var upplýst á aðaifundi ÍA á dögunpm. Stjórnin var öll endurkjörin og Gunnar Sigurðsson verður áfram formaður. „Þetta ár verður væntanlega það umfangsmesta i sögu félagsins til þessa,“ sagði Gunnar við Morgunbiaðið. „Við vígjum nýja stúku, sem kostar 32 til 34 miiyónir, í mai og tökum þá líka í notkun nýja búnings- klefa, félagsaðstöðu og likamsræktarsal," sagði formaðurinn. handbolta kvenna STJARNAN varð í fyrrakvöld deildarmeistari kvenna i handknattieik, er liðið burstaði Fylki. Á sama tíma töpuðu Framstúlkur fyrir KR, þannig að Stjarnan hefur fimm stiga forskot á Fram þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Stjörnustúikurnar veita viðtöku bikar, sem fyigir deildarmeistaranefn- bótinni, eftir ieikinn gegn ÍBV i Garðabænum á þriðjudagskvöldið kemur. 1995 LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR BLAD Pittsburgh taplaust í NHL-deildinni PITTSBURGH hefur leikið liða best í NHL-deildinni í íshokkí á timabilinu og er tapiaust með 19 stig eftir 10 leiki. Markvörð- urinn Ken Wregget, sem ver skot frá Benoit Hogue hjá New York Islanders á myndinni hér að ofan, hefur leikið í markinu hveija einustu mínútu í hveijum leik og átti stóran þátt í 5:2 sigri gegn Islanders á útivelli í fyrri- nótt. Hann varði 31 skot í leikn- um og kom í veg fyrir að heima- menn jöfnuðu 2:2 með frábærri markvörslu. Quebec Nordiques hefur kom- ið Hða mest á óvart og fylgir Pittsburgh fast eftir með níu sigra og eitt tap. Kanadamenn- irnir gerðu góða ferð til Boston í fyrrinótt og unnu 4:3. Wendel Clark var með áttundu þrennu sína á tímabilinu og samheiji hans þjá Nordiques, Joe Sakic, gerði fimmta mark sitt í vetur auk þess sem hann átti eina stoð- sendingu en hann er samtals með 19 stig og stigahæstur í deild- inni. Iþróttamönnum út- hlutað 6,7 milljónum Afreksmannasjóður íþróttasam- bands íslands hefur ákveðið að greiða sérsamböndum 6,7 millj- ónir króna vegna æfínga og keppni ákveðinna íþróttamanna á árinu. Sjóðurinn hefur um 12 til 13 millj- ónir kr. til úthlutunar á ári og ákvörð- un um aðra styrki verður tekin síð- ar. Tveir íþróttamenn fá fastar greiðslur mánaðarlega allt árið en tímabil annarra miðast við 1. janúar til 30. júní. í öllum tilvikum verður viðkomandi sérsamband að gera grein fyrir í hvað peningamir fara og veita sjóðnum upplýsingar um framvindu mála hjá íþróttafólkinu. Úthlutun fer nú fram eftir nýjum starfsreglum þar sem skilgreining á afreksmanni er þrengd og koma ein- greiðslur í stað mánaðargreiðslna hjá þeim sem ekki komast í svo nefndan a-hóp. í a-hópnum eru tveir fijáls- íþróttamenn, Pétur Guðmundsson, kúluvarpari, og Vésteinn Hafsteins- son, kringlukastari, og fær Fijáls- íþróttasambandið 80.000 kr. á mán- uði fyrir hvom út árið en 40.000 kr. eyrnamerkt Sigurð Einarssyni, spjót- kastara, fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní. FRÍ fær einnig 200.000 kr. eingreiðslu vegna Mörthu Ernsts- dóttur, hlaupara, fyrir fyrri hluta ársins. Handknattleikssambandið fær 2.560.000 krónur vegna lokaundir- búnings landsliðsins fyrir heims- meistarakeppnina og samsvarar upp- hæðin launagreiðslum til 16 leik- manna í tvo mánuði en útfærslan var unnin í samráði við HSÍ. Júdósambandið fær 200.000 kr. eingreiðslu vegna æfinga og keppni Vemharðs Þorleifssonar 1. janúar til 30. júní og Sundsambandið fær sömu upphæð fyrir sama tímabil vegna Eydísar Konráðsdóttur annars vegar og Amars Freys Ólafssonar hins vegar. Badmintonsambandið fær 40.000 kr. á mánuði fyrir Brodda Kristjáns- son frá 1. janúar til 30. júní og sömu upphæð fyrir Arna Þór Hallgrímsson en 200.000 kr. eingreiðslu vegna æfinga og keppni Tryggva Nielsen á sama tímabili. Þá fær Skíðasambandið 500.000 krónur til að aðstoða skíðafólkið Daníel Jakobsson, Ástu H. Halldórs- dóttur, Kristin Björnsson, Amór Gunnarsson, Vilhelm Þorsteinsson og Hauk Amórsson, sem dvelur við æöngar og keppni erlendis. Samfara nýjum starfsreglum varðandi úthlutun hefur Afreks- mannasjóðurinn ráðið Ágúst Kára- son, bæklunarlækni, sem trúnaðar- lækni sjóðsins og auk þess hefur verið óskað eftir því við sérsambönd- in að þau útnefni sérstaka trúnaðar- menn gagnvart sjóðnum til að tryggja að hann fái allar nauðsynleg- ar upplýsingar um íþróttafólkið úr innsta kjama. Markmiðið með þessu er að ISÍ og sérsamböndin vinni samaa að afreksstefnu sem geri starfið skilvirkara. Reuter Patrekur með til- boð frá Þýskalandi PATREKUR Jóhannesson, landsUðsmaður úr KA, hefur fengið boð um að leika með Biele- feld í Þýskalandi næsta vetur. Liðið leikur í 2. deild þar í landi en er á leið upp í 1. deild- ina. Patrekur sagði við Morgunblaðið í gær að hann væri enn að hugsa málið en taldi ólík- legt að hann þekktist boðið. „Mig langar ekk- ert sérstaklega til að leika í annarri deildinni í Þýskalandi. Ég hef ráðfært mig við nokkra menn hér heima, sem gjörþekkja þetta, og ég reikna með að afþakka boðið. Það er samt gaman að fá svona boð, en ég held ég bíði eftir einhveiju betra,“ sagði Patrekur. ISHOKKI HANDKNATTLEIKUR Stjarnan orðin deildarmeistari í KNATTSPYRNA HANDBOLTI: VIDTAL VIÐ BENGT JOHANSSON LANDSUDSÞJÁLFARA SVÍA / E2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.