Morgunblaðið - 12.02.1995, Page 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
36. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Wk
■ '■ •' •• •, ■ ’ - • 'v ’ :r;é v;!'''
Morgunblaðið/Kristinn
Vetrarleikar á ísafírði
Ottast að hryðjuverkamenn komi í veg fyrir frið í Miðausturlöndum
Fundur í Washington til
að biarga viðræðunum
«/ o
Washington. Reuter.
Dýrt að trúa
sögnburði
SÖGURNAR berast fljótt á milli manna
í kúbverska samfélaginu í Miami í
Flórida og nýlega komst þar ein á
kreik, sem vakti sérstaka athygli. Með
því að hringja fyrst í fimm tölustafa
lykilnúmer væri hægt að ná símasam-
bandi við Kúbu fyrir ekki neitt. Og það
var líka gert svikalaust. Aida Fern-
andez var himinlifandi yfir að komast
í samband við móður sína og jafnvel
þótt mamma hennar þyrfti að skreppa
út í búð, þá hélt hún Iinunni opinni og
talaði við hundinn á meðan. Nú hefur
komið í ljós, að sagan um ókeypis síma-
samband við Kúbu var ekki alveg rétt.
Fernandez og meira en 10.000 aðrir
Kúbveijar í Miami eru nú að fá reikn-
inginn og hjá henni hljóðaði hann upp
á rúmlega 200.000 krónur.
Börnin frysti
bangsann sinn
BÖRN, sem þjást af astma eða öðrum
öndunarerfiðleikum ættu að troða
bangsanum sínum í frystinn og láta
hann dúsa þar í sólarhring áður en þau
hjúfra sig að honum í rúminu sínu. Það
eru breskir sérfræðingar, sem halda
þessu fram, en þeir segja, að frostið
drepi rykmaurana, sem lifa í teppum,
gluggatjöldum, rúmfatnaði og leik-
föngum eins og böngsum. „Það er ekki
til neins að verða sér úti um sérstakan
rúmfatnað ef bangsinn er fullur af
rykmaurum,“ segir dr. Jill Wamer, sem
starfar við barnasjúkdómadeild háskól-
ans í Southampton í Englandi. „Frostið
drepur rykmaurana á sólarhring og
best er að þvo hann á eftir.“ Þetta
þarf síðan að endurtaka öðru hveiju.
Látinn fékk
lífstíðardóm
ÍTALSKUR dómari, sem dæmdi mann
í 24 ára fangelsi fyrir mafíumorð, hafði
greinilega ekki kynnt sér öll gögn í
málinu nægilega vel. Sakborningurinn,
Tomma Ceraudo, var nefnilega látinn
er dómurinn féll. Dómarinn heldur því
þó fram að sökin sé ekki hans. „Enginn
sagði okkur af þessu. Það er ekki okk-
ar starf að rannsaka mál,“ sagði Vinc-
enzo Serianni, dómari í Tórínó. Cer-
audo, sem var félagi í hinni illræmdu
Kalibríu-mafíu, lést í skotbardaga í
nóvember. Lögfræðingar hans, sem
héldu hjartnæmar ræður við réttar-
höldin til að fá hann sýknaðan, höfðu
ekki heldur hugmynd um að hann væri
ekki lengur á lífi.
FULLTRÚAR ísraels, Egyptalands, Jórdan-
íu og PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna,
munu hittast í Washington í dag til að reyna
að koma í veg fyrir, að viðræðumar um frið
í Miðausturlöndum fari út um þúfur. Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna, mun sitja
fundinn í upphafi til að leggja áherslu á hve
mikið er í húfi.
Fundurinn mun aðeins standa i dag en
bandarískir embættismenn segja, að takist
ekki að leiða viðræðurnar út úr þeim
ógöngum, sem þær hafa ratað í, geti það
haft ófyrirsjáanlegar og alvarlegar afleiðing-
ar fyrir sambúð ríkjanna í Miðausturlöndum.
Þá hafi íslömskum öfgamönnum tekist það,
sem þeir stefndu að með hryðjuverkum í
ísrael.
Warren Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, mun stýra fundinum en auk
hans munu sitja hann Shimon Peres, utan-
Clinton forseti situr
fundinn til að leggja
áherslu á mikilvægið
ríksráðherra ísraels, Amr Moussa, utanrik-
isráðherra Egyptalands, og Abdul-Karim
al-Kabariti, utanríkisráðherra Jórdaníu.
Fulltrúi PLO er Nabil Shaath, helsti samn-
ingamaður samtakanna.
Hryðjuverkamenn ráðl ekki
þróuninni í Miðausturlöndum
Clinton Bandaríkjaforseti mun einnig taka
þátt í fundinum framan af til að sýna hve
mikilvægt er, að framtíð ríkjanna í Miðaust-
urlöndum ráðist ekki af hermdarverkum of-
stækismanna.
Fjöldi ísraela hefur týnt lífi í sprengjutil-
ræðum ofstækismanna, sem vilja friðar-
samningana feiga, og af þeim sökum hefur
ísraelsstjórn lokað landamærum sínum fyrir
Palestínumönnum. Við það hafa tugþúsund-
ir manna misst vinnu sína í ísrael en hún
hefur verið helsta stoðin_ í efnahagslífi Pal-
estínumanna. Afstaða ísraela hefur líka
breyst og svo virðist sem þeir séu ekki jafn
fúsir og áður að láta Vesturbakkann af
hendi.
Áhersla á efnahagsmál
Helstu umræðuefnin á fundinum í dag
verða leiðir til að tryggja öryggi ísraela og
hvernig best sé að greiða fyrir efnahags-
legri aðstoð við Palestínumenn. Þá verður
einnig rætt um efnahagslega samvinnu ríkj-
anna, en Bandaríkjastjórn telur hana best
fallna til að tryggja friðinn til frambúðar.
Búist er við fleiri fundum á næstunni.
10
Ein væn
fjölskylda
EVRÓPULESTIN BRUNAR
Læri eitthvað
nýttá
hveijumdegi B