Morgunblaðið - 12.02.1995, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ
36 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1995
1>JQDLEIKHIISIÐ sími 11200
Stóra sviðið:
• GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
I kvöld uppselt - fim. 16/2 nokkur sæti laus - sun. 19/2 - fim. 23/2 - lau.
25/2 nokkur sæti iaus - fim. 2/3, 75. sýning. Ath. síðustu 6 sýningar.
• FÁVITINN eftir Fjodor Dostojevskf
Lau. 18/2 uppselt - fös. 24/2 uppselt - sun. 5/3.
• GA UKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman
Aukasýning fös. 17/2 allra síðasta sýning.
•SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
( dag kl. 14 nokkur sæti laus - sun. 19/2 ki. 14 uppselt - lau. 25/2 kl. 14 örfá
sæti laus - sun. 5/3.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
• TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright
5. sýn. mið. 15/2 uppselt - 6. sýn. lau. 18/2 uppselt - aukasýning þri. 21/2
uppselt - aukasýning mið. 22/2 uppselt - 7. sýn. fös. 24/2 uppselt - 8. sýn.
sun. 26/2 uppselt - fös. 3/3 uppselt - lau. 4/3 uppselt - sun. 5/3 uppselt -
fim. 9/3 - fös. 10/3 - lau. 11/3 - fim. 16/3 - fös. 17/3 - lau. 18/3.
Litla sviðið kl. 20.30:
• OLEANNA eftir David Mamet
Mið. 15/2 - lau. 18/2 - fös. 24/2 - sun. 26/2.
GJAFAKORT íLEIKHÚS - SÍGILD OGSKEMMTILEG GJÖF
•LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS
Hin smellna og skemmtilega hljómsveit KÓSÝ og framreiðslumenn frá CAFÉ
KOLBERT þjóna gestum með söng, gríni og skrítnum tiltækjum.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 til
18:00 og fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti simapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Græna línan 99 61 60 - greiðslukortapjónusta.
<fe<»
ORGARLEIKHUSIÐ
mmi.
LEIKFÉLAG REYK)AVíKLIK
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT
Sýn. fös. 17/2, lau. 18/2 fáein sæti laus, fös. 24/2 fáein sæti laus, sun. 16/2,
fös. 3/3.
• LEYNIIUIELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Sýn. lau. 25/2, allra sfðasta sýning.
LITLA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson.
Allra, allra sfðasta sýning í kvöld, uppselt. - Miðaverð kr. 1.000.
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. í dag kl. 16, lau. 18/2 kl. 16, sun. 19/2 kl. 16, lau. 25/2 kl. 16, sun. 26/2 kl. 16.
• FRAMTÍÐARDRAUGAR eftir Þór Tulinius
Frumsýning fim. 16/2 uppselt, lau. 18/2 uppselt, sun. 19/2 uppselt, þri. 21/2,
fim. 23/2, fös. 24/2.
Muniö gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Miðapantanir í síma
680680 alla virka daga kl. 10-12. - Greiðslukortaþjónusta.
KaííiLeikhúsiðl
I III.ADVAHI'ANIIM
Vesturgötu 3
Leggur og skel - barnoleikrit ■
Sýning í dag kl. 15, kr. 550.
18. og 19. feb. kl. 15,jcr. 550.
25. og 26. feb. kl. 15, kr. 550.
Alheimsferðir Erna ——
3. sýning 16. feb.
4. sýning 17. feb.
5. sýning 23. feb.
Skilaboð til Dimmu —
6. sýning 18. feb.
7. sýning 24. feb.
Lítill leikhúspakki
Kvöldverður oa leiksýning
kr. á mann.
r
aðeins 1.600
Barinn opinn e.
opmn e. symngu.
Kvöldsýningar hefjast kl. 21.00
MOGULEIKHUSIÐ
við Hlemm
Norræna
menningarhátíðin
SÓLSTAFIR
Sýningar fyrir börn og unglinga:
Vatnsleikur
14. feb. kl. 17.00, fáein sæti laus.
Múmínsaga
15. feb. kl. 17.00.
Karlinn í tunnunni
4. mars kl. 14 og 16.
Eins og tungl í fyllingu
9. mars kl. 20.00.
Mlðasala í leikhúsinu virka
daga kl. 16-17. Tekið á mótl
pöntunum í s. 562-2669
á öðrum tímum.
LEIKFELAG
MOSFELLSSVEITAR
sýnir í
Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ
• Mjallhvítog dvergarnir 7
Sýn. f dag, uppselt, lau. 18/2, sun.
19/2. Sýningar hefjast kl. 15.
Ævintýrið um Reykjalund
STRÍÐ FYRIR LÍFIÐ SJÁLFT
Sýn. í kvöld kl. 20.30 sfðasta sýning.
Miðapantanir í sfmsvara allan sólar-
hringinn i síma 66 77 88.
LEIKFELAG
AKUREYRAR
• Á SVÖRTUM FJÖÐRUM -
úr Ijóðum Davíðs Stefánssonar
eftir Erling Slgurðarson
Sýn. fös. 17/2 kl. 20.30.
• ÓVÆNT HEIMSÓKN
eftir J.B. Priestley.
Lau. 18/2 kl. 20.30, sun. 19/2 kl. 20.30
næst síðasta sýningl
Miðasalan opin virka daga kl. 14-18,
nema mánud. og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 24073.
Verslunarskóli
íslands kynnir:
MURINN
Sýn. mánud. 13. feb. í
Háskólabíói kl. 20.
Miðapantanir í síma 568 8486.
Nemendaleikhúsið
Lindarbæ, sími 21971
TANGÓ
íleikstjórn Kjartans Ragnarssonár.
5. sýn. sunnud. 12. feb. kl. 20.
6. sýn. fimmtud. 16. feb. kl. 20.
7. sýn. laugard. 18. feb. kl. 20.
F R IJ F. M I I. í A
■T_E- j K H U S I
Seljavegi 2 - sími 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftlr Anton Tsjekov.
Sfðdegissýning í dag kl. 15, fáein sæti
laus, sun. 19/2 kl. 15.
Miðasalan opnuð kl. 13 sunnudag.
Miðapantanlr á öðrum tímum
í sfmsvara, sfmi 12233.
FÓLK í FRÉTTUM
NOKKRIR af leikurum og aðstandendum Múrsins. Fremstar á myndinni sitja systurnar Rún og
Rán Ingvarsdætur. í annarri rðð frá vinstri eru Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri, Jóna
Ellen Valdimarsdóttir, Arna Rún Haraldsdóttir og Þorsteinn Bachmann leikstjóri. í þriðju röð frá
vinstri: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Sigurbjörn Dagbjartsson, Georg Haraldsson, Ásdís Yr Péturs-
dóttir, Júlíus Júlíusson, Kjartan Orn Sigurðsson, Árni Georgsson og Steinar Gíslason.
Magnaður gítarleikur í
uppfærslu VI á Múrnum
UPPFÆRSLA Verzlunarskóla ís-
lands á Múmum hefur vakið verð-
skuldaða athygli, enda um mjög
metnaðarfulla sýningu að ræða.
Þá hefur gítarleikur þeirra Þor-
valdar B. Þorvaldssonar, tónlistar-
stjóra sýningarinnar, og Tómasar
Gunnarssonar þótt framúrskarandi
góður og lifnar þetta meistaraverk
Pink Floyd í höndum þeirra og
hljómsveitarinnar.
Algjör uppljómun
Þorvaldur var tekinn tali og til
að byija með var hann spurður
hvort tónlist Pink Floyd væri í sér-
stöku uppáhaldi hjá honum. „Ég
fékk Múrinn upp í hendumar þegar
ég var ellefu eða tólf ára og hafði
ekki hlustað á Pink Floyd áður,“
segir Þorvaldur. „Á þessum tíma
var ég einmitt að uppgötva gítar-
inn. Eg hafði eitthvað grúskað í
klassískum gítar, en þama var ég
nýgúinn að fá minn fyrsta raf-
magnsgítar og það má segja að
þetta hafí verið algjör uppljómun
hjá mér.“
Þorvaldur segir að það hafi kom-
ið sér skemmtilega á óvart við
undirbúning sýningarinnar, að
hann hafi lítið sem ekkert þurft
að pikka upp gítarleikinn af plöt-
unni. „Ég var farinn að setja mig
í stellingar, en þegar á hólminn
var komið hafði maður þetta allt
í kollinum."
Klassík og blús
Það má segja að sérstaða Þor-
valds í íslenskri rokktónlist sé að
hann hafi einleikarapróf á klassísk-
an gítar. Það liggur því beint við
að spyija hvort einleikaraprófið
hafí nýst honum eitthvað í síbylj-
unni. „Ég held að það fari ekkert
sérlega vel saman,“ segir Þorvald-
ur. „En í sumum tilvika held ég
að það valdi því að ég hafi dálítið
sérstakan stíl á raf- ____________
magnsgítarinn. Það
liggur eiginlega í augum
uppi að þeir sem byija
að spila á rafmagnsgítar
og kynnast aldrei klass-
ískum gítarleik spila
ekki jafn agað og fínlega ——
á meðan þeir sem hafa tekið klas-
sík verða ef til vill aldrei eins
blúsaðir og hinir.“
Góð tilfinning
Tómas Gunnarsson spilar með
Þorvaldi á gítar í Múrnum. „Ég
vil taka það fram að á upptökunni
sem er í spilun í útvarpinu sér
Tómas Gunnarsson um einleiks-
þáttinn. í sýningunni skiptumst við
Góð tilfinning
að flytjja Múr-
inn fyrir fram-
an þúsund
manns
á, svo þegar kom að upptökum á
þessu lagi reyndum við báðir við
einleiksþáttinn og ég sem upptöku-
stjóri varð nú bara að viðurkenna
að hans framlag var aðeins betra.
Tómas Gunnarsson er enda gífur-
lega lipur gítarleikari."
Að lokum fer vel á því að spyija
Þorvald hvernig tilfinning það sé
að setja sig í spor Pink Floyd og
spila í Múrnum fyrir fullu húsi
áhorfenda. „Það er afskaplega góð
tilfínning að standa fyrir framan
þúsund manns og flytja Múrinn. í
fyrsta lagi vegna þess að mig lang-
-------- aði alltaf til að fara utan
og sjá uppsetninguna
með Pink Floyd. í öðru
lagi er þessi tónlist í
miklu uppáhaldi hjá mér
og í þriðja lagi dreymdi
mig alltaf um að fara
““ svolítið út í þess sálma
með Todmobile, sem við gerðum
að vissu leyti með miklum ljósa-
búnaði, búningum og leikrænum
hlutum.
Annars er ég búinn að hamra á
því frá því ég hóf að vinna fyrir
Verzlunarskólann fyrir þremur
árum að taka þetta stykki. Þannig
að tilfinningin var að sjálfsögðu
mjög góð þegar á hólminn var
komið.“
TOMMY Lee Jones sýnir tilþrif í hlutverki snarbrjálaðs fangelsi-
svarðar í myndinni Fæddir morðingjar, frá því i fyrra.
Verðlauna-
hafar veita
verðlaun
►Á NÆSTU afhendingu Ósk-
arsverðlauna fyrir árið 1994
munu margar stjörnur koma
fram og afhenda verðlaun. Það
hefur nú ráðist að á meðal
þeirra verða Tom Hanks, sem
fékk Óskarsverðlaun fyrir
frammistöðu sína í hlutverki
eyðnisjúklings í myndinni Fílad-
elfía árið 1993, Tommy Lee
Jones, sem fékk verðlaun fyrir
bestan leik í aukahlutverki í
myndinni Flóttamaðurinn árið
1993, og hefðum samkvæmt af-
hendir Holly Hunter Óskars-
verðlaun fyrir bestan leik í
kvenhlutverki árið 1994, en hún
vann til þeirra verðlauna árið
1993.