Morgunblaðið - 16.02.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 C 7
SUNNUDAGUR 19/2
SIMBA í Konungi ljónanna. JOHN Goodman sem
Fred Flintstone.
Hagstætt ár
í Hollywood
SÍÐASTA ár var kvikmyndagerðinni
í Hollywood frekar hagstætt og var
afraksturinn í heild um 5,25 milljarð-
ar dollara, eða um 367 milljarðar
króna, sem er um 4% aukning frá
árinu 1993. Alls seldist 1,21 milljarð-
ur aðgöngumiða, sem er 3% meira
en 1993, og tíu kvikmyndir skiluð
meiru en 100 milljón dollurum hver
í kassann, en það er besti árangur
síðan 1990. Tvær myndanna, The
Lion King og Forrest Gump fóru
reyndar yfir 300 milljón dollara
markið, og skipuðu sér fyrir vikið í
fjórða og fimmta sæti yfir mest sóttu
myndir allra tíma.
Ekki stóðu þó allar myndir undir
þeim væntingum sem gerðar voru
til þeirra, en nokkrar þeirra reyndust
hinn mesti baggi á framleiðendunum
í stað þess að verða þeim gullnáma.
Að mati bandaríska vikuritsins
Entertainment Weekly þótti mark-
aðssetning myndarinnar The Santa
Clause með „handlagna heimilisföð-
umum" Tim Allen í aðalhlutverki
takast best, en hugmyndin um að
markaðssetja Arnold Schwarzenegg-
er sem óléttan í Junior þótti hins
vegar hin Iakasta á árinu þar sem
hún fældi frá kjarnann úr áhang-
hendahópi stjömunar, nefnilega karl-
menn.
Tíu mest sóttu myndirnar:
brúttótekjur
1. The Lion King 306,4 milljónir
dollara
2. Forrest Gump 300,6
3. True Lies 146,3
4. The Santa Clause 142,1
5. The Flintstones 130,5
6. Clear and Present Danger
121,9
7. Speed 121,2
8. The Mask 119,6
9. Interview With the Vampire
102,1
10. Maverick 101,6
KEANU Reeves í Speed.
Arðbærustu myndirnar: fram-
leiðslukostnaður/brúttótekjur í
milljónum dollara:
1. The Lion King 45/306,4
2. Forrest Gump 55/ 300,6
3. The Santa Clause 22/142,1
4. The Mask 23/119,6
5. Speed 30/121,2
6. The Flintstones 46/130,5
7. Dumb and Dumber 19/98,3
8. Pulp Fiction 8/70,9
9. Clear and Present... 62/121,9
10. Ace Ventura 15/72,2
Óarðbærustu myndirnar: fram-
leiðslukostnaður/brúttótekjur í
milljónum dollara:
1. Wyatt Earp 70/25
2. Love Affair 60//18.3
3. Being Human 40/1,5
4. House of the Spirits 40/6,3
5. Terminal Velocity 50/16,5
6. North 40/7,2
7. Baby’s Day Out 48/16,6
8. I’ll Do Anything 40/10,4
9. The Hudsucker Proxy 30/2,8
10. Silent Fall 30/3,2
Beggja vegna borðs
MEL GIBSON segir
það hálfgerðar hunda-
kúnstir að leikstýra og
leika í sömu myndinni en
lykillin að velgengni sé
ómældur undirbúningur svo
óvæntar uppákomur valdi
sem minnstum röskunum.
EF MEL Gibson tekur að sér að
leika stríðsmann á hvíta tjaldinu
er næsta víst að hann leggur sig
allan fram við ætlunarverk sitt.
Hann sekkur sér ofan í herstjórn-
arlist, víggirðir kastalann sinn,
málar sig eins keltneskur frum-
byggi og kallar til liðs við sig 1.500
manna her. Þetta gerði hann alla
vega til að gera kvikmyndina
Braveheart að veruleika. Fer hann
með aðalhlutverkið og leikstýrir
myndinni, sem væntanlega verður
frumsýnd í maí.
Gibson leikur skosku hetjuna
William Wallace, sem stjórnaði illa
búnum her landa sinna í orrustu
við Englendinga, sem háð var árið
1297. Kostnaður við gerð
myndarinnar er
sagður vera um 70
milljónir dollara, og
er þetta í annað
skipti sem Gibson
er beggja vegna
myndavélarinnar, en
fyrsta myndin sem
hann leikstýrði og lék
í var A Man Without
a Face, sem gerð var
árið 1993.
Tökur á myndinni
tóku um 105 daga,
og fóru að mestu leyti
fram á írlandi og í
Skotlandi. Gibson segir
að reynt hafi verið eftir
fremsta megni að styð-
jast við sögulegar stað-
reyndir, og hafi mikil
rannsóknarvinna átt sér
stað í því skyni. Kvik-
myndagerðarmennirnir
hafi þó tekið sér skálda-
leyfi þegar söguþráður-
inn krafðist þess. Taka
myndarinnar gekk að mestu leyti
að óskum með aðstoð liðsmanna
í varaliði írska hersins, og þegar
upp var staðið var það einungis
veðurfarið sem reyndist leikstjór-
anum illviðráðanlegt. Hann segir
að myndin, sem að miklu leyti
snýst um leynimakk og undirferli,
hafi í raun batnað við drungalegt
yfírbragð vegna veðursins sem
jafnvel hafi gert hana enn miðald-
arlegri fyrir vikið.
HÁRLENGING og andlits-
málning var meðal þess sem
Gibson studdist við til að ná
útliti stríðsmannsins. Óhrein-
indin sáu um afganginn.
.MÓTLEIKARl Gib-
sons í Braveeart er
Catherine
cCormack og þótt
myndin virðist við
fyrstu sýn ósköp
venjuleg stríðsmynd
r hún í raun mjög
rómantísk.
UTVARP
RÁS 1
IM 92,4/93,5
8.00 Fréttir
8.07 Morgunandakt: Séra Guð-
mundur Þorsteinsson dómpró-
fastur flytur.
8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni.
— Stef í b-moll og tilbrigði, eftir
Sigursvein D. Kristinsson. Páll
Kr. Pálsson leikur á orgel.
— Missa brevis fyrir einsöngvara,
blandaðan kór og hljómsveit,
eftir Zoltan Kodaly. Maria Gy-
urkovios, Edit Ganos, Timea
Cser, Magda Tiszay, Endre
Rosler og György Littasy syngja
með kór og Ungversku fil-
harmóníusveitinni, höfundurinn,
Zoitan Kodaly stjórnar.
9.03 Stundarkorn i dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar
(Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti)
10.03 Vídalfn, postillan og menn-
ingin 2. þáttur. Umsjón: Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Digraneskirkju.
Séra Þorbergur Kristjánsson
prédikar.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
J2.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir, auglýsingar
og tónlist.
13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
14.00 Sagan af Stefaníu. Um
þroskahefta stúlku, Stefaníu
Benediktsdóttur og aðstandend-
ur hennar. Umsjón: Þórunn
Rót 1 kl. 13.00. ffvar Kjarlonsson
hcimsækir Einar Mó Guðmunds-
son, sem hlýtur bókmenntaverð-
laun Norðurlandaróðs i ór.
Helgadóttir. Lesari með umsjón-
armanni: Stefanía Benedikts-
dóttir.
15.00 Verdi,. ferill og samtíð. 3.
þáttur af fjórum Umsjón: Jó-
hannes Jónasson. (Einnig út-
varpað miðvikudagskvöld)
16.05 Erindaflokkur á vegum „ís-
lenska málfræðifélagsins" 2.
erindi: Um forsögu íslenskrar
tungu. Guðrún Þórhallsdóttir
flytur.
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Sunnudagsleikritið: Einn
maður, tvær ævir. Einleikur eft-
ir Böðvar Guðmundsson. Leik-
stjóri: Halldór E. Laxness. Leik-
ari: Pálmi Gestsson.
17.40 Sunnudagstónleikar í umsjá
Þorkels Sigurbjörnssonar Frá
tónleikum Tríós Reykjavíkur í
Hafnarborg 4. september 1994,
fyrri hluti. Leikin verða Tríó
(1987) eftir Karólínu Eriksdótt-
ur og Tríó í g-moll op. 15 eftir
Bedrich Smetana.
18.30 Skáld um skáld. Gestur
þáttarins, Sigfús Bjartmarsson,
les eigin ljóð og ræðir um ljóð-
list Gríms Thomsens. Umsjón:
Sveinn Yngvi Egilsson.
18.50 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og funi. Helgarþáttur
barna. Umsjón: Elísabet Brekk-
an.
20.20 Myrkir músfkdagar. Frá
tónleikum Sinfónfuhljómsveitar
Norðurlands f íslensku óperunni
síðdegis sama dag: Stjórnandi:
Guðmundur Óli Gunnarsson
Einsöngvari: Michael J. Clarke.
Á efnisskrá: Pálll ísólfsson:
Hátfðarmars Jón Þórarinsson:
Of Love and Death Jón Ásgeirs-
son: Fornir dansar Hróðmar I.
Sigurbjörnsson: Næturregn Þor-
kell Sigurbjörnsson: Hljómsveit-
artröll
22.07 Tónlist á síðkvöldi.
— Lög úr söngleiknum My fair
lady eftir Lerner og Loewe .
Kiri Te Kanawa, Jeremy Irons,
Rós 2 kl. 13.00. Vigdís Grimsdótt-
ir er gestur i þættinum Þriðji
ntaðurinn.
Meriel Dickinson, Judith Rees,
Jerry Hadley og Susan Brickely
syngja. með Sinfóníuhjómsveit
Lundúna; John Mauceri stjórn-
ar.
22.27 Orð kvöldsins: Unnur Hall-
dórsdóttir flytur.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Litla djasshornið. Carmen
McRae syngur með tríói Shirley
Horn.
23.00 Frjálsar hendur. Umsjón:
Illugi Jökulsson.
0.10 Stundarkorn f dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Endurtekinn þáttur frá morgni)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns
Fréttir ó RÁS I og RÁS 2 Itl. 8, 9.
10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.10 Funi. Helgarþáttur barna.
Umsjón: Elísabet Brekkan. 9.03
Sunnudagsmorgunn með Svavari
Gests. 11.00 Urval dægurmálaút-
varps liðinnar viku._ 13.00 Þriðji
maðurinn. Umsjón: Árni Þórarins-
son og Ingóifur Margeirsson. 14.00
Helgarútgáfan. 16.05 Dagbókar-
brot Þorsteins J. 17.00 Tengja.
Umsjón Kristján Sigurjónsson.
19.32 Milli steins og sleggju. 20.30
Úr ýmsum áttum. Andrea Jóns-
dóttir. 22.10 Frá Hróarskelduhá-
tfðinni. Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson. 23.00
Heimsendir. Margrét Kristín Blön-
dal og Sigurjón Kjartansson. 24.10
Margfætlan - Þáttur fyrir ungl-
inga. 1.00 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPID
1.00 Næturtónar. l.30Veðurfregn-
ir. Næturtónar hljóma áfram. 2.00
Fréttir. 2.05 Tangó fyrir tvo. Svan-
hildur Jakobsdóttir. 4.00 Þjóðar-
þel. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Næt-
urlög. 5.00 Fréttir. 5.05 Stefnumót
með Ólafi Þórðarsyni. 6.00 Fréttir,
veður, færð og flugsamgöngur.
6.05 Morguntónar. I.júí lög í morg-
unsárið. 6.45 Veðurfréttir.
ADALSTÖDIN
FM 90,9/ 103,2
10.00 I upphafi. 12.00 Bjarni Ara-
son. 16.00 Sigvaldi Búi Þórarins-
son. 19.00 Magnús Þórsson. 22.00
Lífslindin. 24.00 Ókynnt tónlist.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 8.00 Ólafur
Már Björnsson. 13.00 Pálmi Guð-
mundsson. 17.15 Við heygarðs-
hornið. Bjarni Dagur Jónsson.
20.00 Sunnudagskvöld. Ljúf tónlist
með Erlu Friðgeirsdóttur. 24.00
Næturvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BROSIÐ
FM 96,7
10.00 Gylfi Guðmundsson 13.00
Jón Gröndal og Tónlistarkrossgát-
an. 16.00 Helgartónlist. 20.00 Pál-
ína Sigurðardóttir 23.00 Nætur-
tónlist.
FM 957
FM 95,7
10.00 Helga Sigrún. 13.00 Ragnar
Bjarnason. 16-OOSunnudagssíð-
degi. 19.00 Ásgeir Kolbeinsson.
22.00 Rólegt og rómantískt. Stefán
Sigurðsson.
X-IÐ
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Ragnar Blöndal. 17.00 Hvíta
tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00 Sýrður
rjómi. 24.00 Næturdagskrá.