Morgunblaðið - 16.02.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 16.02.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Lögregluþjónar handsama elna _______________________________________________________________________________________ Reuter ensku knattspyrnubulluna, 1 sem var vígaleg. mæta á leik í Evrópukeppninni? Ég veit ekki hvar England á að leika, eftir þessa uppákomu — við sáum áhorfendur sem voru eins og villi- dýr.“ Jack Charlton, landsliðsþjálfari írlands og fyrrum hetja Englend- inga í HM 1966, sagði að ekkert þessu líkt hefði gerst í Dublin og hann var vægast sagt reiður. „Ég haf séð knattspymu leikna víðs veg- ar um heim, en aldrei orðið vitni að öðru eins.“ Leikmenn Englands og írlands voru sárir þegar þeir yfirgáfu Lansdowne Road, þar sem þeir voru komnir til að leika vináttuleik og skammta áhorfendum. Þeirri skemmtun lauk með matröð. HNEFALEIKAR Guðni í kjölfar Andrésar GUÐNI Sigurjónsson kraftlyft- ingamaður hefur ákveðið að keppa í hnefaleikum í Las Vegas — á sama tíma og Andrés Guð- mundsson kraftakappi er í hringnum. Þeir keppa því báðir í undankeppni 20. febrúar, fyrir Toughman Contest, sem er úr- slitakeppni fyrir óreynda áhuga- menn í hnefaleikum, sem fer fram í maí. Guðni hugðist reyna fyrir sér í Svíþjóð í næsta mánuði, en ákvað frekar að fara til Las Veg- as. Hann hefur æft hnefaleika af kappi í eitt ár. í uhdankeppn- inni verða 32 keppendur og berst hver keppandi við fjóra andstæð- inga, þrisvar sinnum í eina mín- útu. Tveir efstu í hverjum riðli keppa síðan innbyrðis i einum bardaga nokkrum dögum síðar. Keppendum er skipt upp í riðla eftir þyngd, Guðni er um 100 kg og nýtur m.a. aðstoðar Sigurðar Matthíassonar, spjótkastara, í för sinni. Andrés er 128 kg og munu fijálsíþróttamennirnir Pétur Guðmundsson og Vésteinn Hafsteinsson vera Andrési innan handar, auk John Black, sem er umboðsmaður Andrésar og að- stoðarmanna hans. Keppnin í Vegas fer fram í MGM íþróttahöllinni, þar sem öll stærstu hnefaleikamót Banda- ríkjanna fara fram. Likurnar á að íslensku keppendurnir mætist í hnefaleikahringnum eru einn á móti fjórum, miðað við fjölda skráðra keppenda og riðlaskipt- inguna. rgtutltibifeUk 1995 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR BLAD Enskar knattspyrnubullur enn í sviðsljósinu ENSKAR knattspyrnubullur urðu sér og ensku knattspyrn- unni enn einu sinni til skammar þegar írar og Englendingar léku vináttulandsleik í Dublin í gærkvöldi — leik sem stóð að- eins yfir í 27 mín. Þá varð að flauta hann af vegna skrílsláta enskra áhorfenda, sem rifu upp sæti og köstuðu plastsess- um niður á írska áhorfendur og inn á leikvöllinn. 46 þús. áhorfendur voru á veilinum — þar af 4.600 stuðningsmenn enska liðsins. Eftir þessa uppá- komu telja margir að Evrópu- keppni landsliða, sem á að fara fram í Englandi 1996, sé i hættu — að Knattspyrnusam- band Evrópu, UEFA, færi keppnina annað. Það yrði mikið áfall fyrir Englendinga. Olætin byxjuðu stuttu eftir að David Kelly, bakvörður Úlf- anna, hafði komið írum á bragðið — 1:0 á 22. mín. Það varð til þess að uppúr sauð og ensku bullurnar, sem voru í efri pöllunum í áhorf- endastúkunni á Lansdowne Road, byijuðu að kasta sessum og öðru lauslegu niður. Hollenski dómarinn Denis Jol kallaði leikmenn saman og sagði þeim að fara inn í búnings- klefa. David Platt, fyrirliði Eng- lands, og Jack Charlton, landsliðs- þjálfari Irlands, reyndu að tala áhorfendur til, en allt kom fyrir ekki. Þá var ákveðið að hefja leikinn ekki aftur. Slagsmál brutust út þegar öflugt lögreglulið gerði tilraun til að koma nokkrum ólátaseggjum burt. írar hafa aldrei upplifað annað eins, en það eru áraraðir síðan áhorfendur hafa meiðst á knattspymuleik á ír- landi. írskir áhorfendur áttu erfitt með að trúa sínum eigin augum og margir gengu grátandi út af vellin- um, eftir stutta skemmtun. Nokkrar knattspyrnubullur frá Englandi höfðu enn einu sinni náð að leika aðalhlutverkið. Lögreglulið hélt ensku áhorfendunum inni á vellinum í eina og hálfa klukkustund, eftir að írsku áhorfendumir vom famir. Alan Mullery, fyrmm fyrirliði enska landsliðsins, sagði að Eng- lendingar ættu að hætta við að halda EM 1996. „Ef það er ekki hægt að treysta rúmlega tvö þúsund áhorfendum, sem komu til Dublin, hvað gerist þegar fjörutíu þúsund Vináttulandsleikur írlands og Englandsflaut- aðuraf eftiraðeins 27 mínúturvegna óláta Drengjalandsliðið til Portúgals DRENGJALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu tekur þátt I alþjóða móti I Portúgal 24. febrúar til 2. mars en leikið verður við Norðmenn, Skota og heimamenn. Liðið er þannig skipað: Markmenn: Guðjón Skúli Jónsson, Selfossi, og Daníel Bjarnason, B-93. Aðrir leikmenn: KR-ingarnir Arnar Jón Sigur- geirsson, Egill Skúli Þórólfsson, Árni Ingi Pjet- ursson og Eailon Hreinsson, Pramararnir Freyr Karlsson, Haukur Hauksson, Eggert Stefánsson . og Davíð Stefánsson, Bjarni Guðjónsson, ÍA, Haukur Ingi Guðnason, Keflavík, Þorleifiu- Áma- son, KA, Stefán Gíslason, Austra, Gylfi Einars- son, Fylki, og Amar Hrafn Jóhannsson, Víkingi. Grimur Garðarsson, Val, er fyrsti varamaður. Peter Gordon fær uppreisn æru BRESKI kringlukastarinn Peter Gordon, sem var dæmdur í fjögurra ára keppnisbann fyrir að neita að fara i annað þvagpróf á Breska meistaramótinu í fijálsum í júní 1993, hefur fengiðruppreisn æru hjá Fijálsfþróttasambandi Englands og lyfjanefnd Alþjóða fijálsíþrótta- sambandsins hefur lagt til að keppnisbanninu verði aflétt. Þegar Gordon neitaði fór hann sjálf- krafa í bann, en rannsókn á fyrra sýninu ieiddi ekkert athugavert í Ijós. Þegar lyfjanefndin komst að því að Gordon, sem er 43 ára, hafði greinst með krabbamein þegar hann var kallað- ur í fyrmefnt lyfjapróf ákvað hún að leggja til að banninu yrði aflétt og var greint frá fyrr- nefndri ákvörðun í gær. KNATTSPYRNA Martröd í Dublin NBA-DEILDIN: CLYDE DREXLER FARINN TIL HOUSTON ROCKETS / D4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.