Morgunblaðið - 17.02.1995, Page 1
'<d
Ruslatunna með
hundaskít ekki losuð í 3 vikur
YFIRFULL ruslatunna hefur undan-
farna daga blasað við þeim sem átt
hafa leið um Geirsnef í Reykjavík. Um
er að ræða eina af sex tunnum sem
settar hafa verið upp fyrir hundaeigend-
ur, sem margir viðra hunda sína á Geirs-
nefi.
Hundaeigendur í Reykjavík greiða
9.600 kr. á ári í leyfisgjald og hefur
Hundaræktarfélag íslands lýst yfír efa-
semdum um réttmæti þess. Hefur lög-
maður félagsins þess vegna sent um-
boðsmanni Alþingis erindi, en Tryggvi
Þórðarson, deildarstjóri hjá Heilbrigðis-
eftirliti borgarinnar, staðfesti að hluta
gjaldsins væri varið í uppsetningu á
tunnum eins og þeim sem eru á Geirs-
nefí. Sagði hann að hins vegar væri
hreinsun og eftirlit með tunnunum í
höndum hreinsunardeildar á vegum
gatnamálastjóra.
Hjá gatnamálastjóra fengust þær
upplýsingar að ruslatunnur á Geirsnefí
væru tæmdar reglulega, á tveggja til
þriggja vikna fresti.
„A Geirsnefí eru fleiri tunnur og eng-
in er jafn yfirfull og þessi tiltekna tunna.
Hinar eru tómar eða hálftómar og mér
finnst það sóðaskapur af hundaeigend-
um að henda rusli í kringum troðfulla
tunnu þegar hálftómar tunnur eru í 20
metra fjarlægð,“ segir Tryggvi Þórðar-
son hjá Heilbrigðiseftirlitinu.
Guðrún R. Guðjohnsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands, segir ljóst
að þeir sem bera ábyrgð á svæðinu sinni
því ekki sem skyldi.
„Þetta ástand við ruslatunnuna sýnir
best að langflestir hundaeigendur hirða
upp eftir hunda sína og því er ekki rétt-
mætt að ásaka þá um sóðaskap. Á hinn
bóginn er óviðunandi að þeir sem eiga
að annast hreinsun og eftirlit, skuli
ekki hirða svæðið betur.“ ■
Morgunblaðið/Sverrir
TORFI Geirmundsson, hársnyrtir, verður senn í æðsta ráði
alþjóðasamtakanna „ Art and Fasion Group“.
Heiðursverðlaun
fyrir hárgreiðslustörf
TORFI Geirmundsson, hársnyrtir,
veitir viðtöku verðlaunum alþjóða-
samtakanna „Art and Fashion
Group“ 12. njars nk. Verðlaunin eru
fyrir störf að framgangi og framför-
um í snyrtigreinum og er verð-
launaafhendingin með viðhöfn í
Grand Hyatt Hotel í New York.
Torfí hlýtur svonefnd „World
Master Award“-verðlaun, sem hann
segir mesta heiður sem fagmanni
geti hlotnaðst. „Markmið AFC-
samtakanna er að auka menntun
og bæta ímynd listgreina, sem
tengdar eru tísku, án þess að hafa
ágóðavon að leiðarljósi. Þegar ég
veiti verðlaununum viðtöku er ég
kominn í æðsta ráð samtakanna.
Félagsmenn geta beðið mig að
koma og veita faglega ráðgjöf end-
urgjaldslaust nema þeir verða að
borga fargjald og uppihald."
Torfí hefur verið í dómnefnd í
mörgum alþjóðlegum hárgreiðslu-
keppnum, tekið þátt í fjölda sýn-
inga, verið forseti samtaka hár-
greiðslu- og hárskerameistara og
samið kennslubækur um sölu og
markaðsmál, hársjúkdóma o.fl.
Búist er við að 1.000 manns
verði viðstaddir verðlaunaafhend-
inguna, þar sem hinir heimsfrægu
hárgreiðslumeistarar Trevor
Sorbie frá London og Lluis
Llongueras frá Spáni verða heiðr-
aðir eins og Torfi. Á sunnudeginum
eru ráðstefnur og sýnikennsla og
hefur Torfí verið beðinn um að
koma fram og kynna framlag ís-
lendinga til hártískunnar. ■
Börnin fari með í
vinnuna í verkf alli kennara
„ÞÓTT til verkfalls kennara komi,
verður heilsdagsskóli í Reykjavík
á þeim tíma sem böm hafa notið
viðveru þar. Námskeið í skólum
á vegum ÍTR eða tómstunda-
nefnda sveitarfélaga verða eins
og venjulega og sömuleiðis starf-
semi tónlistarskólar," segir Unnur
Halldórsdóttir, formaður samtak-
anna Heimili og skóla.
Samtökin hvetja foreldra til að
skilja böm sín ekki eftir eftirlits-
laus heima ef kennarar fara í
verkfall. „Hafí þeir ekki gæslu,
hvetjum við þá til að taka bömin
með á vinnustað eða taka sér frí
frá störfum. Það eykur sennilega
ringulreið á vinnustöðum, en
skapar jafnframt þtýsting á
samningsaðila."
Unnur hvetur foreldra yngri
bama til að funda í hverri
bekkjardeild og kanna leiðir til
að skipuleggja aðstoð við gæslu
innan vinahóps eða meðal ná-
granna. Hún hvetur foreldra allra
grunnskólanema einnig til að sjá
bömunum fyrir verkefnum ef
verkfall dregst á langinn og fá
heim allar bækur sem þau eiga
að vinna í.“
KomlA í veg fyrir f læklng
„Til að koma í veg fyrir flæking
eldri bama, losarabrag og óhóf-
legt sjónvarpsgláp geta foreldrar
fundað í bekkjardeildum sínum
og rætt um leiðir. Til dæmis
mætti skipuleggja samveru með
krökkum í minni hópum, þar sem
bæði er svigrúm fyrir nám og
tómstundir, skautaferðir, skíða-
ferðir, safnaferðir og hvaðeina í
þeim dúr.“
Nemendur í 10. bekk sem eiga
fyrir höndum samræmd próf
hefðu flestir eytt næstu vikum í
upprifjun. „Foreldrar ættu að
hvetja unglingana til að lesa, t.d.
Gísla sögu og fara vel yfír út-
drætti og verkefni. Ef til verk-
falls kemur myndast svigrúm til
að gera ýmislegt sem lengi hefur
setið á hakanum. Hafa má í huga
tiltekt í bílskúrnum, hreinsun á
sláttuvélinni, tiltekt á tölvudisk-
um, og allt það sem vill verða
útundan í dagsins
önn.“
Útifundur sam-
takanna verður
haldinn á Ingólf-
storgi í dag kl. 16.
„Ef til verkfalls
kemur verður
þetta baráttu-
fundur foreldra,
annars gleðihátíð.
Við hvetjum fólk
til að fjölmenna
með bömum sín-
um.“ ■
FarHeoafjðlgun og
hagnaður f flugi 1994
FARÞEGUM v-evrópskra flugfélaga
fjölgaði um 9% á sl. ári og voru alls
130 milljónir miðað við 120 milljónir
árið áður. Talsmaður sambands evr-
ópskra flugfélaga, AEA, sagði að
fjölgun hefði orðið á flestum leiðum
nema í N-Afríku. Sætafjöldi jókst
um tæp 5% á árinu og meðaltalssæta-
nýting á Evrópuleiðum fór í 60,7%.
Allt útlit er þvi fyrir að fjöldi flug-
félaga skili hagnaði í fyrsta skipti í
fjögur ár eða frá því Flóadeilan gaus
upp, en þá hrundi flugumferð víða i
heiminum. Alþjóðasamband flugfé-
laga, IATA, segir að farþegum á
alþjóðlegum áætlunarleiðum hafi
fjölgað um 8% og frakt jókst um 14%.
Talsmenn bæði AEA og IATA eru
á því að gjóska væri mest í flugi til
Austurlanda fjær og Kyrrahafssvæð-
isins. IATA spáir að röskur
helmingur flugfarþega í
heiminum 2010 verði á
þessu svæði. Hann telur að
flugumferð í Evrópu aukist
ekki nærri eins hratt og
kemur þetta heim og saman
við spár um þróun í
farþegaflugi sem gerðar
hafa verið hin síðari ár.
Arðsemistölur þeirra 229
flugfélaga sem eru í IATA
liggja fyrir 1. apríl, en sem
stendur er útlit fyrir að
nettóhagnaður gæti orðið
sem svarar 70 milljarðar
ÍKR. -