Morgunblaðið - 17.02.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1995 D 3
DAGLEGT LÍF
Elsa Haralds fer með
lið sitt á stærstu hársýningu í heimi
ELSU Haraldsdóttur hefur verið
boðið að taka þátt í alþjóðlegu
hár- og snyrtisýningunni Intemat-
ional Beauty Show, ásamt liði sínu
frá Salon VEH. Sýningin verður í
New York 12.-14. mars n.k. og
er hún sú stærsta sinnar tegundar
í heiminum. Tii að gefa hugmynd
um umfang hennar verða neglur
og allt sem þeim viðkemur kynnt
á svæði sem er jafnstórt og Laug-
ardalshöllin í Reykjavík. Meðal
þess sem er í boði eru kennslu-
og tískusýningar, kaupstefnur,
vörukynningar, fyrirlestrar,
keppnir og námskeið.
Hárgreiðslulið frá fimm löndum
eru valin til að sýna og kenna á
sýningunni og er þetta í fyrsta sinn
sem íslensku liði er boðin þátttaka.
Þeir sem til þekkja segja að Inter-
national Beauty Show sé eins og
Seala-óperuhúsið fyrir tónlistar-
fólk; toppurinn. Elsa segist hafa
stefnt þangað í nokkurn tíma og
því sé hún afar ánægð með þann
heiður sem henni og liði hennar
er nú sýndur. í því eru auk Elsu
Viðar Völundarson og Arnar Tóm-
asson.
Daglegt líf bankaði uppá hjá
þremenningunum kvöld nokkurt
fyrir skömmu, þar sem verið var
að undirbúa sýninguna.
Skrýtlö tungumál
Þau tala sérhæft mál, fagmál
hárgreiðslufólks, blandað erlend-
um orðum eins og show, avant
garde, wet look og glamour. Málið
er þokkalega skiljanlegt, en nokkr-
um erfiðleikum háð að þýða það á
kjamgóða íslensku, án þess að
tapa blæbrigðum sem verða til við
að blanda svolítið saman tungu-
málum.
Talið berst að undirbúningnum,
sem þau segja gífurlega mikinn.
„Þegar boðið barst til okkar í fyrra,
byijuðum við að undirbúa, enda
þurfti dagskrá okkar að vera tilbú-
in 1. desember s.l. Á svona sýn-
ingu þarf að huga að mörgu, ekki
aðeins hárgreiðslu og klippingum,
heldur einnig tónlist, fatnaði,
myndböndum, ljósmyndum og
kynningarefni til dagblaða ytra
ásamt því að undirbúa kennslu
fyrir fagfólk."
Þau leggja mikla áherslu á sam-
ræmdan heildarsvip. Tónlist þarf
að passa við hár og hár þarf að
passa við búninga. Búningar þurfa
að passa við hvort tveggja og allt
þarf að passa við sviðsmyndina.
Meðan þau vinna á sviðinu eru þau
fyrirmyndir hárgreiðslufólks alls
staðar í heiminum og því eins gott
að hvert handtak sé nákvæmt og
öruggt, og ekkert fari úrskeiðis.
Öll eru vön að vinna á alþjóðleg-
um sýningum og eru sammála um
að reynsla skipti miklu. „Við höf-
um unnið mikið saman og erum
sterkt lið, enda erum við ólík.
Vinna á þessum vettvangi er gjör-
ólík vinnu á stofu og líklega hafa
aðeins um 20% hárgreiðslufólks
þann brennandi áhuga sem þarf
til að geta unnið á alþjóðlegum
sýningum. Við tökum með aðstoð-
arfólk en enginn getur farið upp
á svið nema hafa verið aðstoðar-
maður áður.“
Sál, hir og Iff sstíll
Þremenningamir munu sýna
klippingar og hárgreiðslu í hálf-
tíma á hveijum degi sýningarinnar
og auk þess kenna þau hár-
greiðslufólki í 2 klst. á hveijum
morgni. í upphafí sýningarinnar
verður myndband, þar sem blandað
er saman stemmningsmyndum
héðan og myndum af vinnu á Sal-
on VEH, myndatökum og æfing-
um. Síðan taka við dansatriði fjög-
urra karldansara og þá kemur
hárgreiðslufólkið á sviðið með
Ljósmynd/María Guðmundsdóttir
ÞESSAR myndir frá Salon VEH eru hluti af kynningarefni
fyrir bandaríska fjölmiðla.
LIÐ Salon VEH. Frá vinstri: Viðar Völundarson,
Elsa Haraldsdóttir og Arnar Tómasson.
módelum sínum og ballið byijar
fyrir alvöru.
í kennslu á morgnana verða 120
manns í hveijum bekk. Kennslu
efnið er að kynna tískulínu stof-
unnar fyrir 1995 og einnig ætla
þau að kynna nemendum hvemig
skipulag og vinna er á Salon VEH.
„Allt starfsfólk er „team,“ og hluti
af vinnunni eru æfingar og þátt-
taka í sýningum. Karakter og lífs-
stíll eru lykilorð okkar og við leggj-
um mikla áherslu á ráðgjöf. Við
veljum módel á sýninguna út frá
þessum hugmyndum og við tökum
fyrir hvernig hægt er að styrkja
einkenni hvers og eins með góðri
ráðgjöf.
Lengd hárs er ákvörðuð út frá
líkamsbyggingu, hæð og þyngd,
en innra ummál hárs — klippingin
sjálf, er miðuð við andlitsfall hvers
og eins. Hárið þarf að vera klippt
og meðhöndlað þannig að auðvelt
sé að breyta um greiðslu og stfl
eftir því hvert tilefnið er og auð-
velt að eiga við það dags daglega."
Evrópsk ímynd verður þema
þeirra. „ímyndin er evrópsk, ýmist
formleg eða óformleg. Við mótuð-
um línumar fyrir löngu og síðan
höfum við einbeitt okkur að því
að fínpússa þær og bæta. Við
sjáum að línurnar sem við hönnuð-
um fyrir komandi sumar koma til
með að hitta í mark.
Permanent og hárskraut
Skilaboð okkar um hártískuna
1995 em: Hár verður styttra, en
loft við hársrót og fjöðrun skiptir
miklu máli, hver sem sídd hársins
er. Hár á að klippa í styttur og
við viljum hafa hreyfíngu í hárend-
um, hvort sem hún næst með klipp-
ingu eða permanenti. Litir verða
skarpari, hvítur, kastaníubrúnn og
jarpur, en margir ólíkir og sterkir
rauðir litir verða notaðir í strípur
með. Permanent verður meira í
tísku en á undanfömum ámm og
í síðu hári eiga að vera miklar
kmllur. Alls kyns hárskraut eink-
um glamour-skraut, verður mjög
mikið í tísku, jafnt fyrir stutt hár
sem sítt.“ I
lirynja Tomer
FORMLEG
ÓFORMLEG
Morgunblaðið/Alfons
HEIÐBJÖRT Tíbrá með eina af myndunum sínum,
þessi er af húsi í Búðardal og unnin með þekjulitum.
Hún veltir fyrir sér
að leggja fyrir sig teiknun
HEIÐBJÖRT Tíbrá Kjartansdóttir,
13 ára stúlka frá Ólafsvík, sigraði
í teiknimyndasamkeppni sem SÍBS
hélt í samvinnu við gmnnskóla
landsins. Var efnt til ritgerða- og
teiknisamkeppni vegna fímmtíu
ára afmælis Reykjalundar. Mikil
þáttaka var og hefur þegar verið
sagt frá verðlaunahafanum í rit-
gerðasamkeppninni, Maríu ágústs-
dóttur í Reykjavík.
Heiðbjört er nýflutt til Ólafsvík-
ur frá Búðardal og sagðist hafa
ákveðið að taka þátt í keppninni
þegar hún var kynnt. Hún teiknaði
myndina að gamni sínu og sagðist
ekki hafa átt von á að vinna í
keppninni en það hefði verið mjög
skemmtilegt.
Heiðbjört sagðist hafa mjög
gaman af því að teikna og þá aðal-
lega andlitsmyndir og margt annað
og þá notaði hún gjaman blýant
og þekjuliti. Hún sagðist hafa
áhuga á að leggja teiknun fyrir
sig í framtíðinni og fara í nám.
„Þetta. er mitt helsta áhugamál,
ég hef gaman að handavinnu líka
og kannski hef ég hug á að læra
fatahönnun," sagði hún.
Heiðbjörtu er margt til lista lagt.
Hún er að læra á píanó og spilar
á básúnu í lúðrasveit. Hún hlusta
á alls konar tónlist, bæði popp og
klassiska tónlist. ■
Alfons Finnsson
Alkóhól og hjartakvillar
í MÖRG ár hafa vísindamenn velt
fyrir sér hvort tengsl séu á milli
víndrykkju og hjartasjúkdóma. í
Frakklandi er dmkkið meira áfengi
en í öðmm þróuðum löndum, en þó
er tíðni sjúkdómsins sú lægsta í
heiminum á eftir Japan.
Nýleg rannsókn, sem birtist í
læknatímaritinu The Lancet, þykir
staðfesta tengslin. Borið var saman
mataræði, áfengisneysla og dánar-
tíðni í 21 velferðarríki. Til þess að
komast að hvort alkóhólið í víninu
væri aðal vörnin gegn hjartasjúk-
dómum var það einangrað frá öðm
innihaldi. Rannsóknin sýndi að
alkóhólið eykur eðlismassa fituhvítu
(HDL) og þess kólesteróls í blóðinu,
sem kemur í veg fyrir að fíta setj-
ist á slagæðar. Eitt eða tvö glös
af víni eða bjór á dag virðist minnka
líkur á hjartaslagi allt að 50%.
I ljós kom að í löndum þar sem
tölfræðilegar niðurstöður vom hag-
stæðar varðandi víndrykkju og lága
Frakkar hreinsa slagæðamar.
tíðni hjartasjúkdóma var misnotkun
áfengis mjög mikil. Til að koma í
veg fyrir hjartasjúkdóma er ráðlagt
að drekka í mesta lagi eitt til tvö
glös af víni á dag; meira magn
veikir hjartað og stuðlar að mörgum
banvænum sjúkdómum.
Samfara lækkandi tíðni hjarta-
sjúkdóma minnkaði víndrykkja í
Frakklandi úr 18,3 lítrum í 13,1 á
mann á ámnum 1965-1988. Fylgn-
in bendir til að vín sé best í hófí.
Reykjavíkurdeild RKÍ
Námskeið á vorönn 1995
Barnfóstrunámskeið: Hefjast 8. mars
Fyrir 11 -14 ára -16 kennslustundir.
Leiðbeinendur: Leikskólakennari og hjúkrunarfræðingur.
Skyndihjálparnámskeið:
Tvö námskeið í hverjum mánuði fyrir 15 ára og eldri.
Lágmark 16 kennslustundir.
„Móttaka þyrlu á slysstað"
6 kennslustundir.
„Áfallahjálp" eða sálræn skyndihjálp.
Viðbrögð á vettvangi til að draga úr langtímaáhrifum
vegna slysa. 8 kennslustundir.
Upplýsingar á skrifstofutíma kl. 8-16 í síma 688-188