Morgunblaðið - 17.02.1995, Síða 8
8 D FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
1
VEGUM 1
Matarhoð
hiÉ teppasala
Morgunblaðið/BT
KARLINN og félagi hans gerðu
nauðsynlegar lagfæringar.
Morgunblaðið/BT
200 km ferð í leigubíl var lokahluti samningsins. Fylgdarmaður
minn stendur í brúnum kufli á leigubílastöðinni í Essaouira.
BLÁR klútur um háls og höfuð
karls var merki þess að hann
væri berbi, af þeim fer það orð
að þeir séu slyngir í viðskiptum,
jafnvel slyngari en gyðingar. Ég
stóð fyrir framan teppabúð í
Essaouría, litlum bæ í Marokkó,
og sá ekki betur en karlinn ætti
búðina.
Prútt og þolinmæði
Prútt og þolinmæði eru lykilorð
þegar verslað er í Marokkó, enda
eru viðskiptahættir þar gjörólíkir
því sem við eigum að venjast.
Sölumenn eru margir mjög ágeng-
ir og nánast toga viðskiptavini inn
í sjoppur sínar. Þessi var rólegur
og kurteis, svo ég ákvað að kíkja
á teppin. Þar með hafði hann unn-
ið áfangasigur.
Teppasalinn lét mig í friði með-
an ég skoðaði, þuklaði teppin og
riijaði upp það sem ég hafði heyrt
og lesið um ofin og útsaumuð teppi
berba. Teppi berba eru unnin í
höndum kvenna og fara mynstur
m.a. eftir hjúskaparstöðu þeirra
og viðhorfum til lífsins. Litir eru
misjafnir eftir jurtum sem vaxa í
umhverfínu, enda gamið í ósvikn-
um berbateppum litað með jurta-
litum.
Óifkt notagildi
Teppin skipta miklu máli í dag-
legu lífí hirðingja, sem nota þau
sem rúm, ábreiður og sessur í
tjaldbúðum sínum. Þau hafa löng-
um notið vinsælda meðal erlendra
ferðamanna sem hengja þau á
vegg til skrauts eða hafa á stofu-
gólfum. Nú er svo komið að vél-
unnin teppi eru innan um þau ósvi-
knu í teppabúðum og erfítt fyrir
aðra en sérfræðinga að greina
muninn. Ég efast um að nokkur
teppasali í Marokkó segi frá því
að fyrra bragði að teppi sé vélunn-
ið, ef einhver sýnir áhuga á að
kaupa það. Til hvers, ef kaupandi
fer glaður út úr búðinni með teppi
sem hann heldur að sé handgert
og hann hafi fengið á frábæru
verði?
Teppasýnlng og myntute
Eftir nokkra stund bauðst karl-
inn til að sýna mér ólík afbrigði
teppa og fræða mig um þau. Hann
talaði góða ensku, dró fram nokk-
ur samanbrotin teppi og bauð mér
sæti. Hann bauð líka myntute,
þjóðardrykk Marokkóbúa, sem ég
þáði með þökkum.
Hann fletti í sundur hveiju tepp-
inu á fætur öðru og fylgdist vel,
en lúmskt, með viðbrögðum. Frá-
sögn hans af teppunum var í sam-
ræmi við það sem ég hafði heyrt
annars staðar og jókst traust á
karlinum því
svolítið.
í fyrstu
sýndi hann
mjög ólíkar
gerðir teppa,
en smám sam-
an áttaði hann
sig á hvaða
stærð, gerð,
litir og mynst-
ur höfðuðu
mest til mín.
Varð teppa-
sýningin sér-
hæfðari upp
úr því og eftir
rúman
klukkutíma
kom að því að
sýna það sem
hann kallaði
gullmolana
sína. Voru mörg þeirra teppa
hreinasta augnakonfekt og þá
stóðst ég ekki freistinguna að
spyija um verð.
Þar lék ég af mér
Þegar viðskiptavinur spyr um
verð hefur hann gefið færi á sér.
Karlinn kættist og nefndi upp-
hæðir sem tekið hefði mig ein-
hveija mánuði að skrapa saman.
Hann bauð meira myntute og
leiddi talið að öðru, sagði frá dvöl
sinni í Kanada og innkaupaferð-
um í Sahara-eyðimörkina. Stund-
um var hann sannfærandi, en
öðru hveiju fékk ég á tilfinning-
una að annaðhvert orð sem hann
segði væri lygi.
Ramadan, föstumánuður músl-
ima, stendur nú yfir og varð hann
okkur umfjöllunarefni. í heilan
mánuð fasta múslimar frá sólar-
upprás til sólseturs. Böm eru
undanskilin, ófrískar konur og
sjúklingar.
Við sólsetur glymur kall úr
hátalarakerfi nærliggjandi mosku,
þar sem menn eru minntir á
grundvallaratriði islam og hvattir
til bænagjörða. Karlinn sagðist
ekki „praktísera", en fasta eins
og aðrir. Þegar líða fór að kalli
frá moskunni féllu niður frekari
tilraunir til sölumennsku og karl-
inn bauð mér að snæða kvöldverð
með honum og öðrum starfsmönn-
um búðarinnar.
Langþráður matur
Lítill pjakkur kom með tága-
körfu fulla af mat og hófst þá
undirbúningur kvöldmáltíðarinn-
ar. Samstarfsmenn söfnuðust
saman við lítið borð og um leið
og kallið heyrðist var mjólkurhrist-
ingi með banana-mauki hellt í
glösin. „Það er gott fyrir tóman
maga að
drekka þetta,“
sagði karlinn
og allir
drukku.
Þykkri bauna-
og grænmetis-
súpu var hellt
beint úr potti í
súpuskálar og
drukkið úr
þeim. Með
henni var
borðaður djúp-
steiktur smá-
fískur, djúp-
steiktar dísæt-
ar og kryddað-
ar kökur, döðl-
ur, sætabrauð,
gráfíkjur,
brauð og auð-
vitað drukkið
myntute. Maturinn var borðaður
með fíngrunum og var afar ljúf-
fengur.
Samnlngar takast
Eftir mat tóku karlinn og félag-
ar hans upp hassmola og vöfðu
sér vindlinga, sem ég afþakkaði
pent, en drakk því meira myntute.
Karl var nú orðinn tvíefldur og tók
upp þráðinn í sölumennskunni.
Hann bauð snoturt teppi á 12
þúsund krónur og ég bauð helm-
ingi lægri upphæð fyrir teppið og
annað til. Karlinn sagðist vera
bæði sár og móðgaður yfír gagntil-
boðinu, en það þóttist ég vita að
væri hluti af sölutækninni. Það tók
nokkum tíma að ná samningum,
sem enduðu þannig að ég fékk
bæði teppin á 11 þúsund krónur
með því skilyrði að hann annaðist
svolitlar lagfæringar sem voru
nauðsynlegar.
Þar sem ég hafði aðsetur í öðr-
um bæ, í 200 km íjarlægð, og
hafði ekki nægilegt fé meðferðis
varð að samkomulagi að teppasal-
inn sendi mann með mér að sækja
síðari hluta greiðslunnar.
Eftir svolítið þóf samþykkti
hann að bera kostnað af leigubíl
þangað, sem nam 200 krónum á
mann. Á heimleiðinni læddist að
mér sú hugsun að karlinn hefði
grætt stórlega á þessum viðskipt-
um og ég hefði verið bjálfí að
ganga að kaupunum. En þegar
allt kom til alls og ég tók með í
reikninginn ómælt myntute, mat-
inn, fróðleikinn og reynsluna,
fannst mér ég hafa gert reifara-
kaup og var alveg sama þótt
hlakkaði í karli yfír árangri sínum
í viðskiptum við útlending. ■
Brynja Tomer
Til Cancun eða Parísar,
Benidoim eða Kanarí
Qg BEINT flug til Cancun í
g Mexíkó, Parísarferðir á ódýru
■M verði, Benidorm og Kanarí-
■ eyjar eru meðal þess sem
y Heimsferðir kynna í sumar-
áætlun sinni sem er nýkomin
S út. Verður hér minnst á ýmsa
S kosti sem eru í boði og er
rétt að taka fram að því fyrr
sem menn bóka sig eða fyrir
10. mars fá menn betri kjör og
oft ódýrara verð.
Heimsferðir bjóða ferðir með
beinu leiguflugi og án millilend-
ingar með Taesaflugfélaginu.
Fyrstu 100 sætin verða seld á
69.800 kr. og er þá miðað við tvo
í herbergi og dvöl í 14 daga. I
bæklingi er tekið fram að all-
margir Mexíkófarþegar noti tæki-
færið og fari í þriggja daga ferð
til Kúbu og kostar það 240 doll-
ara.
Kanaríeyjaferðir að sumri til hóf
Heimsferðir í fyrra og mæltist það
vel fyrir. Nú geta menn komist til
Kanaríeyja í 2 vikur á verði sem
er frá 39.900 kr. og í 3 vikur fyr-
ir 49.100 kr.
Benidorm á Spáni er á áætlun
og er þar einnig sértilboð á fyrstu
100 sætin, þ.e. 29.900 kr. Ef
menn bóka sig fyrir 10. mars fá
þeir ókeypis viku. Þriggja vikna
dvöl á Benidorm kostar frá 47.600
kr.
Parísarferðir bjóðast með flugi
og gistingn frá kr. 33.600 og ef
menn kaupa bara flugið er verðið
um 20 þúsund kr.
Ýmislegt fleira er að sjá í bækl-
ingi Heimsferða og rétt er að taka
fram að það verð sem hér hefur
verið talið upp er alltaf lágmarks-
verð og fer m.a. eftir því hvernig
hótel menn velja og hvenær þeir
fara. ■
j.k.
FERÐIR
FÖSTUD.17.janúar kl.20 hefst
helgarferð í Tindafjöll og
verður gist í skála Alpaklúbbs-
ins. Þama er gott skíðagöngu-
land. Gengið á Ými og Ymu ef
tími vinnst til. Komið aftur á
sunnudag.
Á sunnud,19.febrúar verða
fjórar dagsferðir. Kl. 10,30 er
ökuferð að Seljalandsfossi og
farið um Fljótshlíð til baka.
KI.10,30 er skíðagangan Blá-
fjöll-Lambafell. Og kl.13 er
skíðagangan Hellisheiði-
Hverahlíð og einnig kl. 13 Við-
ey að vetri. Siglt frá Sundahöfn
og gengið um eyjuna. Brottför
frá Umferðarmiðstöð nema í
Viðeyjarferðina.
ÚTIVIST
Á afmælisári Útivistar verður
mánaðarlega rifíaðar upp valdar
gönguleiðir frá fyrri ámm. Á
sunnud. 19.febr verður alls-
érstæð gönguferð sem var farin
þ. 8.okt. 1989 sem lokaáfangi í
tveimur raðgöngum sem félagið
hafði farið í landnámi Ingólfs.
Þessi ferðamáti í dagsferðum,
raðgöngumar hefur síðan verið
fastur liður hjá Útivist.
í ferðinni þá var gengið frá
Hrauni í Ölfusi og út á nýja
Óseyrarbrú. Var efnt til reiptogs
á brúnni milli liðsmanna landn-
ámsmanna sitt hvom megin við
ána. Hugmyndin er að endur-
taka þetta nú og stofna til
tveggja ferða. I aðra er farið frá
Hrauni, hina frá Eyrarbakka.
Brottför frá BSÍ kl.10,30 á
sunnudagsmorgun. Einnig má
koma í rútuna við Fossnesti á
Selfossi kl.l 1,30 og ganga frá
Eyrarbakka. ■