Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 1

Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 1
RANNSÓKWIR Kynningarmið- stöð komið upp/4 aa núuvi a áojnvrtkL (ntitAwi’utv íiijw. . fiArmAl Aukin fjárfesting fyrirtækja brýn/6 PPPLÝSlWCflR Danir þykja í fremstu röð/8 VIÐSKIPn AIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 23. FEBRUAR 1995 BLAÐ B ECU-bréf ALLS bárust 12 gUd tilboð í ECU- tengd spariskírteini til 5 ára að fjárhæð 110 milljónir króna á út- boði sem lauk með opnun tilboða hjá Lánasýslu ríkisins í gær. Tek- ið var 10 tilboðum að fjárhæð 100 miiyónir króna og var meðal- ávöxtun samþykktra tilboða 8,59%. Það er í samræmi við þau kjör sem ríkissjóður nýtur erlend- is, að því að segir í frétt frá Lána- sýslu ríkisins. I síðasta útboði var meðalávöxtum 5 ára ECU-bréfa 8,50%. Vinsældir BÓNUS er vinsælasta fyrirtæki íslands samkvæmt vinsældakönn- un sem Gallup gerði fyrir tímarit- ið Frjálsa versiun. f næstu sætum koma Hagkaup, Flugleiðir, Eim- skip og Vífilfell. í fyrra mældist Hagkaup vinsælast en Bónus var í öðru sæti. Hlutabréf ÞINGVÍ SITALA hlutabréfa náði enn nýju hámarki i gær þegar hún mældist 1061,27 stig. Það var 0,51% hækkun frá deginum áður, en vísitalan hefur hækkað um 3,5% síðan um áramót. Á bak við þessar breytingar voru viðskipti í gær fyrir um 4,7 mil^jónir króna. SÖLUGENGIDOLLARS GENGI NOKKURRA GJALDMIÐLA frá 1. jan. 1994 (sölugengi) rThi DOLLARI Kr. | 80 j 68,75 _ | K 65 i 66,04 -3,94% breyting frá áramótum 60 | 1994 55 | 1995 'j'f'm'a'm'j'j 'á's'o'n'd j'f j STERLINGSPUND K1 107,23 ^>104,5 -2,55% breyting frá áramótum 1994 1995 1 1 1 1 1 1 1 1 F 1 1 1 1 JFMAMJJASOND j'f 11,226 +0,76% breyting frá áramótum j'f'm'á’ m'TjTs'o'nÁ) -10 - 9 1995 J F Þýskt MARK Kr. 50 44,73 45 +1,52% breyting frá áramótum 1994 J FM a’m'j'j ‘á's'ÖVd 40 35 1995 j'f Japanskt YEN Kr. Franskur FRANKI Kr. 14 12,807 ——0,70 tU 0,6792 v 0,6788 +0,16% breyting frá áramótum 10 -0,06% breyting frá áramótum 0,60 0,55 1994 1995 1994 1995 'j'f'm'a'm'j'j'á's'o'n'd j' F ' j'f'm' a'm'j'j'á's'o'n'd JF Tölvusamskipti vongóð um sölu Skjáfax Hlutabréf boð- inerlendum fjárfestum TÖLVUSAMSKIPTI hf. hafa samið við bandarískt fyrirtæki um útboðs- lýsingu á alþjóðamarkaði í þeim til- gangi að selja fyrirtækið allt eða að fá inn nýtt hlutafé og er miðað við lágmarksverð 6 milljónir dollara. Þegar hafa nokkrir erlendir fjárfest- ar lýst yfir áhuga á fyrirtækinu, að sögn Hallgríms Tómasar Ragnars- sonar, framkvæmdastjóra Tölvusam-, skipta og mun hann og fleiri væntan- lega halda utan til fundar við hugsan- lega kaupendur síðari hluta mars- mánuðar. Hallgrímur sagði að menn frá Bandaríkjunum hefðu komið tvívegis til íslands á síðustu þremur mánuð- um til að athuga fyrirtækið og mark- aðinn fyrir Skjáfax fyrir tölvunet. Nú lægi fyrir útboðslýsing á Tölvu- samskiptum sem bandaríska fjár- mála- og miðlunarfyrirtækið Safe- guard Intemational/Gemstone Gro- up hefði unnið og kynnt verður hugs- anlegum fjárfestum víða um heim. Hallgrímur sagði að ef hlutabréf Tölvusamskipta seldust á alþjóða- markaði myndi fyrirtækið þó að lík- indum halda áfram starfsemi sinni hér á íslandi. Ef ekki yrði af sölu myndi fyrirtækið halda áfram sínu striki að þróa og markaðssetja Skjá- fax-búnaðinn, enda útlit fyrir mjög aukna sölu. Skjáfax á geisladisk í byijun mánaðarins kom út geisladiskur sem hefur að geyma Skjáfax fyrir tölvunet ásamt upplýs- ingum um uppsetningu þess og notk- un. Forritið er hægt að nota í 60 daga en ekki lengur nema keypt sé leyfi. Hallgrímur sagði að þetta væri nýjung í markaðssetningu, þar sem hann vissi ekki til að þessi leið hefði áður verið farin. Fulltrúar Tölvusamskipta héldu fund í París í fyrri viku með 30 dreifí- aðilum víðs vegar að úr heiminum um dreifíngu og sölu geisladisksins. Hallgrímur sagði að menn væru von- góðir um sölu á Skjáfaxi með þessum hætti, þar sem hver geisladiskur kost- aði aðeins rúmlega 100 krónur í fram- leiðslu en algengt verð forritsins væri um 100.000 krónur. Japönsk útgáfa af Skjáfaxi Þá hafa Tölvusamskipti gert samn- ing við DynaLab Inc. í Japan og Tævan um aðlögun Skjáfax að jap- önsku letri og markaðssetningu á þvi í Japan. Sá samningur gæti gefíð fyrirtækinu 200 milljón krónur að lágmarki í tekjur á næstu 3 árum ef DynaLab uppfyllir öll skilyrði um einkaumboð. Nú vinna 10 manns hjá Tölvusam- skiptum hf., en fyrirtækið var stofnuð árið 1987 og vinnur nú eingöngu að þróun og sölu á Skjáfaxinu. Fyrirtæk- ið opnaði í desember söluskrifstofu í Múnchen í Þýskalandi, en það er einn- ig í tengslum við fyrirtækin Object- Fax UK í Bretlandi og Traffíc USA í Bandaríkjunum, sem stofnuð voru til þess eins að selja Object-Fax, eins og Skjáfaxið er nefnt erlendis. Alls hefur verið samið við dreifíaðila eða umboðsmenn fyrir Skjáfax í 30 lönd- um. Forritið var valið besti búnaður- inn sinnar tegundar í samanburði í september-hefti tölvublaðsins PC- Magazine. Á SÍÐUSTU 5 ÁRUM HAFA UM 1 200 AÐILAR GERST FÉLAGAR í ALVÍB VlLT ÞÚ EKKI BÆTAST í HÓPINN? • 8,7% ávöxtun frá upphafi. • Persónuleg ráðgjöf til sjóðfélaga um lífeyris- og eftirlaunamál. • ítarleg ársfjórðungsleg yfirlit. • Félagar í ÁLVÍB vita alltaf nákvæmlega hver inneign þeirra er og hvaða eftirlaunum þeir geta átt von á. • Ávöxtun hvers sjóðfélaga er reiknuð út sérstaklega. • Inneign í ALVÍB erfist. • Allir geta greitt viðbótariðgjöld í ALVÍB. • Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð geta greitt öll sín iðgjöld í ALVÍB. • Lágur rekstrarkostnaður. • Örugg eignasamsetning. Almennur lífeyrissjóður VÍB, ALVÍB, er séreignarsjóður þar sem framlög sjóðfélaga eru eign hans og færast á sérreikning hans. FORYSTA í FJÁRMÁLUM! VlB VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF. , • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • Armúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.