Morgunblaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 1
C
1995
FOSTUDAGUR24. FEBRÚAR
BLAÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Ragnar verður
með Keflavík
RAGNAR Margeirsson knattspyrnumaður úr
Keflavík hefur ákveðið að leika með liði
Keflavíkur í 1. deildinni í sumar, en hann
hafði í hyggju að skipta um lið og leika með
nýliðum Grindvíkinga. „Jú, það er rétt hjá
þér, ég ætla að leika með Keflvíkingum í
sumar,“ sagði Ragnar við Morgunblaðið í
gær. „Það stóð til að ég léki með Grindvíking-
um og ég hef æft með þeim en félagaskiptin
drógust eitthvað á langinn vegna einhvers
ágreinings á milli félaganna. Það var svo í
síðustu viku að Keflvíkingar óskuðu eftir því
við mig að ég færi að æfa með liðinu og leika
með því og það varð úr að ég ákvað að vera
um kyrrt hérna,“ sagði Ragnar Margeirsson.
Greinargerð dóm-
ara var hunsuð
AGANEFND HSÍ tók brottrekstur Breiða-
bliksmannsins Björgvins Björgvinssonar fyrir
á fundi sínum í vikunni og veitti honum þijú
refsistig fyrir að skjóta í höfuð markvarðar
Fram úr vítaskoti. Dómarar leiksins sáu að
sér eftir að hafa séð atvikið sýnt í Sjónvarp-
inu og sendu aganefnd greinargerð þar sem
þeir, að sögn Agnars L. Axelssonar, for-
manns handknattleiksdeildar Breiðabliks,
óskuðu eftir mildun á refsidómi. Aganefndin
hunsaði greinargerð dómaranna á þeirri for-
sendu að ekki væri hægt að dæma öðruvísi
en gert var í sambærilegu máli Patreks Jó-
hannessonar í KA fyrir skömmu, að sögn
Agnars.
Umrætt atvik átti sér stað í fyrstu umferð
úrslitakeppni 2. deildar. Komið var fram í
seinni hálfleik og var Breiðablik þremur
mörkum yfir en tapaði síðan leiknum. „Þetta
var vendipunkturinn,“ sagði Brynjar Kvaran,
þjálfari Breiðabliks, aðspurður um máiið. „Ég
get sagt sem markvörður og þjálfari að það
getur ekki verið ásetningur nokkurs manns
að skjóta í höfuð markmanns og Björgvin er
þekktur fyrir annað en að hafa rangt við.
Það sást líka í Sjónvarpinu og allir áttu von
á að refsing yrði látin niður falla en annað
kom á daginn.“
Baráttan
harðnar
BARÁTTAN um eina sætið sem laust er í úrslita-
keppninni harðnar stöðugt en tvær umerðir eru
eftir af deildarkeppninni. Nú beijast Sauðkræking-
ar og Haukar um lausa sætið. Á mynd Kristins hér
til hliðar er Jón Orn Guðmundsson að smeygja sér
framhjá Bandaríkjamanninum Milton Bell hjá KR.
IR-ingar höfðu meiri sigurvilja og barátta þeirra
var aðdáunarverð í gærkvöldi.
■ Leikirnír / C2
DÝFINGAR
Greg Louganis vissi að hann væri með alnæmisveiruna er hann keppti á ÓL 1988
Ætlaði aldrei að segja
frá leyndarmálinu
BANDARÍSKI meistarinn í dýfing-
um, Greg Louganis, vissi að hann
væri með alnæmisveiruna, þegar
hann keppti á Ólympíuleikunum í
Seoul í S-Kóreu 1988. Þá varð hann
fyrir því óhappi í undankeppni að
lenda á stökkprettinu með þeim af-
leiðingum að hann meiddist á höfði
og blæddi úr honum í iaugina — þá
sömu og sundkeppni leikanna var
haldin í. Læknirinn sem gerði að
sárum hans var ekki í hönskum og
vissi ekki frekar en aðrir að frátöld-
um nánustu samstarfsmönnum
kappans um ástand meistarans.
Þetta kom fram í útdrætti sem dreift
var í gær vegna sjónvarpsviðtals við
hann á bandarísku sjónvarpsstöðinni
ABC, sem sýnt verður í kvöld.
Louganis, sem er 35 ára, er talinn
fremstur allra í dýfingum til þessa.
.Hann varð fyrstur til að verja gull
í dýfingum á Ólympíuleikum en
hann fékk se'x gull 1984 og 1988.
Hann sigraði 47 sinnum á meistara-
móti Bandaríkjanna og varð fimm
sinnum heimsmeistari. Hann sagðist
hafa verið of hræddur til að segja
lækninum í Seoul sannleikann en
sex mánuðum fyrir leikana hefði
komið í ljós að hann væri með al-
næmisveiruna. Hann hefði þegar
farið á lyfjakúr og tekið lyfið AZT
á fjögurra tíma fresti. Hann sagði
ennfremur að sér hefði liðið mjög
illa fyrir leikana í Seoul og óttast
að hann yrði veikur og gæti því
ekki keppt.
Þegar slysið varð sagðist hann
hafa verið mjög óttasleginn. Hann
hefði viljað stöðva blóðrennslið sjálf-
ur og koma í veg fyrir að aðrir
snertu blóðið en nánustu samstarfs-
menn, læknir og þjálfari, hefðu ráð-
lagt sér að segja engum frá hvað
að sér amaði. „Ég gerði ekki ráð
fyrir að lenda á stökkbrettinu, það
er eitthvað sem ég hugsaði ekki um
en mér brá. Ég hugsaði um ábyrgð
mína, átti ég að segja frá? Málið
er að þetta hafði verið mjög vel
varðveitt leyndarmál."
Fimm sár voru saumuð í höfuð
hans og daginn eftir mætti hann í
úrslitakeppnina og sigraði. Ron
O’Brien, þjálfari hans, sagðist ekki
hafa verið hræddur um að Louganis
myndi smita aðra „því íþrótt okkar
er þess eðlis að ekki er hætta á
snertingu við aðra.“ Hann sagðist
hafa sagt Louganis eftir slysið að
hann gæti hætt keppni ef hann vildi
en Louganis hefði ekki viljað það.
Eftir síðasta stökkið í Seoul tók
Louganis utan um O’Brien og sagði:
„Enginn fær að vita hvað við höfum
rétt gengið í gegnum."