Morgunblaðið - 24.02.1995, Síða 1
FOSTUDAGUR
24. FEBRÚAR 1995
útlitseinkenni þess með sérstakri
vinnslu á ullarefni. Vesti verði áfram
í tísku, hátt hneppt líkt og jakkarnir
og bindi verði grófari svo að hnútam-
ir stækki. Þetta eigi t.d. við um
Kenzo, sem skreyti sína mildu liti
méð glaðlegum vestum og fylgihlut-
um.
Ingibjörg Karlsdóttir í Oliver við
Ingólfsstræti tekur undir það að snið
verði lausari og fijálslegri. í Hugo-
fatnaði verslunarinnar er mikið lagt
upp úr góðum efnum, þunnum og
léttum, mest fínunnunni ull, en líka
hrásilki og hreinni bómull. Skyrtur
eru oft í sama lit og buxur og jakki
og stundum hafðar yfir bolum. Hún
segir að talsvert verði um ákveðna
liti, bláa, græna og hvíta og mjúka
tóna í peysum.
Breið stefna verður að sögn Mar-
grétar Einarsdóttur tekin hjá Frikka
og dýrinu við Laugaveg. Bæði frísk-
leg strandlína í stíl 6. og 7. áratugar-
ins með víðum beinum buxum og
lausum bolum og jökkum sem stund-
um eru býsna síðir. Þá verði verslun-
in með nokkurs konar hermannatísku
frá Tom Foolery, ungum og upprenn-
andi Lundúnahönnuði. Litagleði nki
með pastelliti, allt út í neon, og sem
endranær gijdi bara að allt megi.
Bergljót Ólafsdóttir í Skaparan-
um á Laugavegi býður bæði djörf
föt og klassískari og ætlar að auka
úrvalið af karlmannafatnaði. Hún
segir að Jean Colonna frá París hiki
ekki við þröngan plastfatnað, að-
skornar buxur og stutta jakka,
blúnduskyrtur og flegna, oft erma-
lausa boli. Litlagleðin sé mikil og
efnin oft glansandi eða gegnsæ.
Klassíkin sé auðvitað eilíf og helst
af nýjum stílbrögðum að segja að
mynstrað verði áberandi, köflótt og
röndótt og litir nokkuð sterkir. Gul-
ur, bleikur, appelsínugulur, blár,
grænn og rauður. Að ógleymdum
hvítum. „En drappaða dótið er sem
betur fer búið.“ ■
SLAUS víð snið eða þröng stutt.
Hör, fínunnið létt ullarefni eða
%/% plast og glansefni. Mildir jarðlitir,
svartur og hvítur eða glaðlegri og
2 sterkari litir, jafnvel barnableikur,
2 sítrónugulur og lime-grænn allar
■ götur út í neonliti. Síðar skyrtur,
Z léttar peysur með grófri áferð eða
gegnsæir bolir, þetta er karlatískan
” í vor og sumar.
En þó er a.m.k. tvennt til: klass-
4 íkin, kæruleysisleg og afslöppuð,
Sán þess að glæsileika sé fórnað.
Og framúrstefnan, djörf og glans-
andi, fyrir mjóa stráka fram eftir
aldri. Mjóa vegna þess að fötin eru miklu
þrengri og stráka af því að efnin eru
glansandi og litir skærir.
Af athugun í nokkrum fataverslunum
bæjarins má þó ráða að klassíkin sé
ofan á. Kannski með frísklegu ívafi, eins
og lítilli vaffhálsmálspeysu við víðar
buxur, sem minna á bát, sól og sand
milli tánna. En kjósendur dæma, eins
og þingmenri segja núna; karlar sem
koma í búðirnar skera úr um tísku næstu
mánaða. Samt skaðar ekki að heyra
hljóðið í nokkrum kaupmönnum.
Siguijón Þórsson í Herrunum,
nýrri karlafataverslun í Austur- Æ
stræti, segir að talsvert verði um JH
ljósa safariliti og með haustinu B
verði daufir, dálítið kryddaðir jarð- j
litir nær allsráðandi. Allar línur .JgL
mýkist með hækkandi sól, herða-
púðar verði minni, snið lausari.
Fötin geti verið úr hör eða haft t.
MIKIL aðsókn er í utanlandsferðir um pásk-
ana og má ætla að töluvert á 3. þúsund
manns fari í hópferðir ferðaskrifstofanna.
Heimsferðir er með 2 ferðir, aðra til
Benidorm og hina til Kanaríeyja. Flogið er
með spönskum leiguflugfélögum. Uppselt
er í ferðirnar og biðlisti. Verða um 400
manns frá Heimsferðum á þessum stöðum.
Úrval-Útsýn er með tvær ferðir til Kan-
aríeyja og fara þangað um 300 manns, ein
til Majorka með 100 manns og önnur til
Portúgal fyrir 200 manns og er uppselt í
allar. Á þessum stöðum verða því um 600
manns. Þá eru 30 sæti seld af 40 í hálendis-
ferð um Skotland og 10 sæti af 20 í
skemmtisiglingu um Karíbahafið.
Samvinnuferðir-Landsýn eru með ferðir
til Kanaríeyja, um 50 manns, Benidorm
140, 60 á Majorka og-40 sæti til Túnis.
Uppselt er í þessar ferðir en hugsanlegt
að vél til Benidorm eða Majorka verði bætt
við. Dublinarferð fyrir um 150 manns er
nær uppseld, í Lúxemborg verða 50 og
fáein sæti eru laus til Torguay á Englandi
en til boða standa 30.
Hjá söludeild Flugleiða fengust þær upp-
lýsingar að ekki væru þar beinar páskaferð-
ir en alls konar vortilboð, m.a. í kringum
páska hefðu mælst vel fyrir. Vortilboðin
gilda til Baltimore, New York og Parísar
og er mikið bókað einkum til Parísar. Þá
verða býsna margir á Flórída um páskana
skv. upplýsingum starfsmanna söludeildar.
FÖTIN Hugo í versluninni
Oliver eru fijálsleg og áhersla
lögð á góð efni.
JEAN Colonna-
fötin sem fást í
Skaparanum eru
„heit“ svo best
er að hafa bolina
ermalausa.
Hverjir vilja skemmta
á öskudaginn?
ÖII börn og unglingar sem vijja koma
fram með skemmtiatriði, söng, dans,
töfrabrögð, eftirhermur, hljómsveitir,
sprell, eru beðin að hafa samband við
skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs og
láta skrá sig. Verðlaun verða veitt fyrir
besta skemmtiatriðið og frumlegustu
búningana.
f lok skemmtunarinnar kl. 13 verður
„kötturinn sleginn úr tunnunni" eins
og tilheyrir á þessum degi. ■
Á ÖSKUDAG er orðin venja að börn og ungl-
ingar klæðist furðufötum og máli sig í fram-
an. Á þessum degi hafa þau komið niður á
Lælqartorg til að sýna sig og sjá aðra um
leið og öskupoki er „hengdur“ aftan í náung-
ann. Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
mun standa fyrir skemmtun á Ingólfstorgi á
öskudag kl. 11.30-13. Frá kl. 11.30 á öskudag-
inn verður hljóðkerfi borgarinnar á torginu
og þar fá skemmtikraftar framtíðarinnar af
ungu kynslóðinni tækifæri til að koma fram.
KENZO, sem fæst i Ilerrunuin
í Austurstræti, hefur skraut-
leg vesti við klassísk föt.