Morgunblaðið - 26.02.1995, Page 1
96 SÍÐUR B/C
48. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
í kvöldsól undir Eyjafjöllum
20 sítar drepnir í árás-
um á moskur í Karachi
Karachi. Reuter.
Enginn vill
vera fógeti
HRÓI hðttur hefur nú fulla ástæðu til
að hlæja, því enginn vill lengur vera
fógeti yfir Nottingham. í rúm 800 ár
hafa metnaðarfullir menn sóst eftir
þessu embætti, en nú er öldin önnur
og enginn fæst í það. Enda er embætt-
ið ólaunað og fógetinn gegnir aðallega
viðhafnarhlutverki.
Borgarstj órnarmenn Verkamanna-
flokksins, sem er við völd í Notting-
ham, hafa hafnað embættinu og nefnt
ýmsar ástæður. Margir þeirra viður-
kenna að skyldustörf fógetans séu lítt
eftirsóknarverð, svo sem að taka á
móti gestum í kastala hans og laða að
ferðamenn.
„Hrói höttur hlýtur að hlæja alla
leiðina til Skírisskógar,“ sagði Ted
Hickey, oddviti íhaldsmanna í borgar-
sljórninni. „Meginmarkmiðið með því
að hafa fógeta er að auglýsa Notting-
ham,“ sagði talsmaður borgarstjómar-
meirihlutans. „Ég býst við að mönnum
þyki harla kaldhæðnislegt að andstæð-
ingi Hróa hattar sé nú ætlað að aug-
lýsa hann, en það fylgir starfinu."
Pottþétt vörn
gegn þjófum
NÚ hefur Sven-Erik Lif í Sundsvall í
Svíþjóð fengið sig fullsaddan af þjófun-
um. Þeir hafa hvað eftir annað stolið
eða reynt að stela eftirlætinu hans,
Volvo-bíl heimilisins.
Bifreiðinni var nokkmm sinnum
stolið úr bílageymslunni og Lif greip
þá til þess ráðs að leggja bílnum fyrir
neðan íbúðina sína, þannig að hann
gæti fylgst með honum af svölunum.
En svo kom vetur, með kulda og snjó,
og Lif þreyttist á því að sitja á svölun-
um. Bíllinn hvarf svo auðvitað fyrsta
óveðurskvöldið.
Að sögn Politiken hefur Lif hins
vegar fundið pottþétta lausn. Hann
tekur hjólin af bílnum á hveiju kvöldi
og geymir þau ásamt tjakknum undir
rúminu. Lif segir að auðvitað væri
best að færa bílinn inn í stofu, en
vandamálið er að lyftan er of lítil.
Váieg fiskdráp
YFIRVÖLD á Fyi-eyjum hafa mælst
til þess að sjómenn hætti að drepa fisk-
inn sem þeir veiða með því að bíta
hausinn af. Sjómennirnir hafa beitt
þessari aðferð þar sem hún þykir fljót-
legust, en hún hefur kostað þijá menn
lífið síðustu tvo mánuði. Munu þeir
hafa kafnað með spriklandi fiska í
munninum. Yfirvöld vilja að sjómenn-
irnir láti nægja að bíta fiskinn í hnakk-
ann.
TUTTUGU sítar voru skotnir til bana í árás-
um á tvær moskur í Karachi, stærstu borg
Pakistans, í gær, laugardag. Hassan Turabi,
leiðtogi hreyfingar heittrúaðra síta, sakaði
herskáa súnníta um árásina og sagði stjórn
Pakistans hafa aðstoðað þá.
Mannskæð átök hafa lengi verið milli sjíta
og súnníta í Karachi og fleiri borgum Pakist-
ans. Turabi, leiðtogi sítahreyfingarinnar TJP,
sagði að súnnítar vopnaðir byssum hefðu
skotið sex síta til bana þegar þeir hefðu
verið að búa sig undir bænir í mosku í austur-
hluta Karachi. Svo virtist sem sítarnir hefðu
verið neyddir til að leggjast niður og síðan
skotnir af stuttu færi.
Um tíu mínútum síðar réðust fímm vopn-
aðir menn með grímur á hóp síta sem stóðu
fyrir framan mosku nálægt miðborginni eft-
ir bænasamkomu. Tilræðismennirnir neyddu
15 síta inn í moskuna og skutu þá til bana
eftir að hafa skipað þeim að standa í röð
upp við vegg moskunnar.
Stjórnin sögð meðsek
Turabi sagði að í moskunum hefðu fund-
ist byssukúlur, sem lögreglan og öryggis-
sveitir Pakistans notuðu. Það sagði hann
sanna að „embættismenn stjórnarinnar“
hefðu séð árásarmönnum fyrir byssum og
skotfærum.
Turabi sakaði helstu andstæðinga sjíta-
hreyfíngarinnar, súnníta í Sipah-i-Sahaba
Pakistan (SSP), um árásirnar. SSP hafði
ekki lýst verknaðinum á hendur sér í gær.
Um 150 manns hafa beðið bana í átökun-
um milli hinna stríðandi fylkinga í Karachi
í mánuðinum. Að minnsta kosti 800 manns
féllu þar í fyrra.
97% Pakistana eru múslimar og íslömsk
löggjöf, sem byggði á réttarfari súnníta, var
samþykkt árið 1979 þrátt fyrir andstöðu síta
sem eru þriðjungur þjóðarinnar.
Bandarílgamenn sakaðir um samsæri
Turabi sakaði Bandaríkjamenn og stjórn
Pakistans um samsæri gegn múslimum og
tilraun til að etja fylkingunum saman. „Við
ætlum að beijast gegn Bandaríkjunum og
stjórninni, sem stóðu fyrir þessum drápum,
í stað þess að beina byssum okkar að bræðr-
um okkar, súnnítum," sagði hann.
Daginn áður höfðu blossað upp óeirðir
meðal heittrúaðra múslima í helstu borgum
Pakistans eftir að dómstóll í Lahore ógilti
dauðadóm yfír tveim kristnum mönnum sem
sakaðir voru um að hafa svívirt Múhameð
spámann. Lögreglan í Lahofe kvaðst hafa
beitt táragasi og kylfum til að stöðva mót-
mælin. Að minnsta kosti 150 manns voru
handteknir í borginni og tólf særðust.
BÍLflVEISLAH (24)
HJÁ BRIMBORG
i