Morgunblaðið - 26.02.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 26.02.1995, Síða 1
Manuel og Moggamassinn 20 SUNNUDAGUR SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1995 JMtvgtmWbifeií BLAÐ B HJÁ ÍSLANDSVINUNUM ÞAÐ er vart hægt að ímynda sér fegurra útsýni, en það sem þau Marshall og Pamela hafa af svöl- um giæsilegrar topp- íbúðar sinnar í hjarta Garmisch-Parten- kirchen. eftir Agnesi Bragadóttur ÞAÐ SKIPTIR engu máli hvar þau hjón hafa búsetu, sem hefurveríð víða, undanfarin tíu ár, eða frá því þau fluttu vestur um haf, héðan af skerinu, eftir að hafa þjónað landi sínu, Bandaríkj- unum, vel og dyggilega ífjögur ár, sem sendiherrahjón Bandaríkjanna - þau eru og verða stakir íslandsvinir. Hjónin eru að sjálfsögðu engin önnur en þau Mars- hall og Pamela Brement, sem ég veit ekki hvað margir íslendingar þekkja af góðu einu. Eftir heimkomuna 1985 sett- ust Marshall og Pamela að í Newport, Rhode Island og réðu ríkjum á hinu sögu- fræga setri Prescott Farm, þar sem hers- höfðinginn sjálfur bjó á sínum tíma. Síð- an fluttu þau fyrir hálfu öðru ári eða svo til Virginia og þaðan fór Marshall daglega til vinnu sinnar í Washington DC. Á liðnu sumri, nánar tiltekið í júlí 1994, fluttust hjónin svo á nýjan leik til Evrópu, en að þessu sinni var það ekki ísland sem þau tylltu búi sínu niður á, heldur Bæjara- land, þar sem yndislegur Alpabær, Garmisch-Partenkirchen, fóstrarþau um stundarsakir. Fyrir skömmu var ég á ferð Morgunblaðið/Agnes Bragadðttir í bæversku Ölpunum, og tók þá hús á þessum vinum okkar, Pamelu og Mars- hall, í orðsins fyllstu merkingu, því þau skutu yfir mig skjólshúsi, þegarég ekki var að renna mér á skíðum. Þvífannst mér ekki úr vegi, að forvitnast ögn, um hvað á daga þeirra hefur drifið undanfar- in ár, og afla upplýsinga um hvað í ósköp- unum þau eru að gera í Garmisch-Part- enkirchen, sem við fyrstu sýn virðist vera hæfilegri umgjörð fyrir þau Heiðu og Pétur, en heimsborgarana Marshall og Pamelu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.