Morgunblaðið - 28.02.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 29
AÐSENDAR GREINAR
Sj ónmenntavettvangur
eða einkavettvangnr
Á „Sjónmenntavettvangi" Morg-
unblaðsins 4. febrúar sl. er að fínna
grein sem ber yfírskriftina „Kjarvals-
staðir - listaskólar". Höfundur henn-
ar er Bragi Ásgeirsson, myndlistar-
gagnrýnandi Morgun-
blaðsins og kennari við
Myndlista- og handíða-
skóla Islands.
í umfjöllun sinni um
skólann og samstarfs-
menn sína þar kemst
Bragi í mikinn ham og
sést lítt fyrir. Sparar
ekki stóru orðin og lætur
dólgslega. Hann er held-
ur ekki vandur að virð-
ingu sinni, hallar réttu
máli ef svo ber undir.
Hrokinn er slíkur að
hann telur enga þörf á
að leita réttra upplýs-
inga áður en hann gerist
maraþonblekhlaupari á
síðum Morgunblaðsins.
Flestir fá sinn skerf af gagnrýninni;
skrifstofufólk, fomámsdeildin, list-
fræðingar, heimspekingar og aðrir
ónafngreindir kennarar við skólann
og ennfremur telur hann að um 50%
nemenda skólans sé ofaukið.
Þessi skrif komu undirrituðum þó
ekki á óvart, því líkt og fyrir eldgos
höfðu menn orðið varir við hræringar
í kringum Braga undanfarið. Karlinn
gat ekki á sér setið að hæla sér af
væntanlegri ádrepu í Morgunblaðinu
og taldi að mörgum myndi illa líka.
Það er rétt. Það hefur mörgum og
þar á meðal undirrituðum mislíkað
stórlega hversu freklega Bragi mis-
notar aðstöðu sína sem launaður
myndlistargagnrýnandi Morgunbiað-
ins til þess að vega að samstarfs-
mönnum sínum og þeirri stofnun sem
hann starfar hjá.
Bragi gerir breytingar á MHÍ á
undanfömum áram að umtalsefni,
m.a. nefnir hann „tilkomu áfanga-
kerfisins líkt og við framhalds- og
fjölbrautaskóla". Það er rétt að leið-
rétta þennan misskilning strax, en í
skólanum hefur ekki verið tekið upp
áfangakerfí. Það fyrirkomulag að
skipa námsefni í námslotur jafngildir
ekki áfangakerfí.
Það er hins vegar alveg rétt hjá
Braga að MHÍ hefur breyst á undan-
fömum áram og þar með fomámið.
Að áliti Braga hafa umræddar breyt-
ingar þó ekki leitt til framfara. Það
er aumt að sitja fastur
í fortíðinni. Bragi á erf-
itt méð að sætta sig við
nútíðina og sér lítt til
framtíðar. Allt var betra
áður fyrr. Hann segir
m.a.: „Grannnámið er
því miður svipur hjá sjón
frá því sem áður var, og
það sem eldri kynslóð
kennara tók nokkur ár
að byggja upp og skar-
aði niðurskiptingu
grunnforma, hlutateikn-
ingu, lita- og formfræði
hefur nánast verið
þurrkað út.“ Það virðist
Braga víðsíjarri að
kynna sér málin áður en
hann heldur fullyrðinga-
glaður út á ritvöllinn. Áherslur í
kennslu hafa að vísu breyst á undan-
fömum áram í fomámsdeild hvað
varðar val og röðun námsefnis, en
sömu námsgreinar eru sem fyrr aðal-
námsefni deildarinnar. Sú fullyrðing
Braga að umræddar námsgreinar
hafí nánast verið þurrkaðar út er því
röng.
Bragi heldur því einnig fram að
þegar séð hafi „móta fyrir þriðja ár-
inu í grunnnáminu" hafí það verið
„minnkað niður í eitt ár fyrir visku
rasspúðasérfræðinga menntamála-
ráðuneytisins". Ég veit ekki til þess,
að tillaga að lengingu fomámsins í
þijú ár hafí nokkra sinni verið sett
fram á umræðuvettvangi MHÍ. Sú
hugmynd að færa annað ár fomá-
msins til sérdeilda kom fyrst fram á
seinni hluta áttunda áratugarins og
var tekin um það endanleg ákvörðun
haustið 1981. Forsendumar sem lágu
að baki þessara breytinga voru þær,
að menn töldu heppilegra að hluti
grannnámsins færi fram í sérdeildum
skólans. Bragi sat í skólastjóm á þess-
um áram. Hann átti því sinn þátt í
þessari ákvörðun, þótt vel geti verið
að húsasótt og höfgi valdi minnisleysi
hans nú. Bragi er því væntanlega í
Bragi sat árum saman
í skólastjórn MHÍ, segir
Björgvin Sigxtrgeir
Haraldsson. Hann ætti
að vita, að kennarar
geta ekki vísað nemend-
um úr skóla.
hópi „rasspúðasérfræðinga mennta-
málaráðuneytisins“.
Þrátt fyrir að fomámið sé aðeins
eitt ár hefur það sýnt sig, að nemend;
ur sem lokið hafa fornáminu við MHÍ
og að því loknu sótt um skólavist í
erlendum listaháskólum hafa staðið
vel að vígi. Þeir hafa staðið sig með
ágætum í inntökuprófum og verið
teknir inn að því loknu eða jafnvel
beint inn á grundvelli vitnisburðar frá
MHÍ.
Bragi staðhæfír ennfremur að eftir
að fomámið var stytt hafí það verið
„látið laga sig að listbrautardeildum
framhaldsskólanna". Það rétta er að
námsefni fornámsdeildar MHÍ var
lagt til grandvallar þegar endurskipu-
lagning á námsefni í myndlist fyrir
framhaldsskóla fór fram, en það starf
var unnið af starfshópi á vegum
menntamálaráðuneytisins veturinn
1989-90. Myndlistaskólinn á Akureyri
hafði þá þegar sniðið námsefni sinnar
deildar að námsefni fornámsdeildar
MHÍ.
Sömu tortryggni gagnvart breyt-
ingum er að fínna í ómaklegri umijöll-
un Braga um skrifstofu skólans. Hann
virðist ekki hafa neinn skilning á
þörfum listaskóla, og því síður listahá-
skóla, á skilvirkri skrifstofu. í hans
augum er verið að „vélvæða skrif-
stofubáknið" og „skrifstofufólkið
virðist vera á stöðugum námskeiðum
til að læra á græjurnar". Bragi virð-
ist t.d. ekki gera sér grein fyrir að
samskipti skólans við erlenda háskóla
hvort sem er í formi nemenda- eða
kennaraskipta fara um skrifstofuna,
auk þess sem skrifstofan sinnir hefð-
Björgvin Sigurgeir
Haraldsson
Fækkum vélsleðaslysum
með aukínní fræðslu!
FYRIR um 25 árum komu fyrstu
vélsleðamir hingað til lands. Það var
svo fyrir 15-20 árum sem almenning-
ur fór að eignast vélsleða og ferðast
inná hálendi íslands. Vélsleðarnir
urðu fullkomnari og kraftmeiri eftir
því sem árin liðu, biluðu
minna og menn urðu
áræðnari að ferðast um
hálendið.
Vélsleðar eru skrán-
ingarskyldir hjá Bif-
reiðaskoðun íslands og
skulu vera ábyrgðar-
tryggðir hjá vátrygg-
ingarfélagi skv. 91.
grein umferðarlaga.
Samkvæmt umferðar-
lögum era vélsleðar
flokkaðir undir tor-
færutæki og era því
skráningarskyld öku-
tæki. í 55. grein segir:
„Ökuskírteini til að
mega stjóma torfæru-
tæki má eigi veita þeim
sem era yngri en 15 ára enda hafi
hann áður fengið tilskilda öku-
kennslu." Það vekur undrun hvað
mörg ungmenni hafa aðgang að vél-
sleðum. Foreldrar ættu að hafa í
huga að vélsleðar eru ekki leikföng
heldur kraftmikil ökutæki, sem eru
stórhættuleg í höndum unglinga sem
ekki hafa fengið tilskilda kennslu.
Varðandi hjálmanotkun segir í 77.
grein: „Hver sá sem er á bifhjóli eða
torfæratæki sem er á ferð skal nota
hlífðarhjálm." Hjálmur hefur margs-
annað gildi sitt sem vörn gegn höfuð-
meiðslum og nýtist einnig sem vörn
gegn kulda. Undanfarin ár hefur
orðið fjölgun á vélsleðaslysum samf-
ara fjölgun á vélsleðaeign lands-
manna. Þau hafa aldrei verið eins
mörg og síðastliðið ár.
Slysin verða ekki bara
í slæmu skyggni og
vondum veðrum. Þau
gerast alveg eins við
bestu aðstæður, í sól,
björtu veðri og góðu
skyggni. Orsök slys-
anna era yfirleitt:
• of mikill hraði,
• vankunnátta og van-
mat á áðstæðum,
• reynsluleysi í ferða-
og vélsleðamennsku,
• áfengisneysla.
Það virðist vera að
þeir sem sjaldan fara á
vélsleða (fara á sunnu-
dögum í góðu veðri)
lendi ekki síður í slysum
en hinir vanari. Þeir vönu hafa ekki
bara meiri reynslu, heldur þekkingu
á hinum ýmsu sviðum vélsleða-
mennskunar. Nú er kominn tími til
að sporna við fótum og hefja forvarn-
arstarf. Liður í forvarnarstarfi er
fræðsla. Því hefur Björgunarskóli
Landsbjargar og Slysavarnafélags
íslands í samvinnu við Landsamband
íslenskra vélsleðamanna (LÍY) skipu-
lagt fræðslufundi fyrir vélsleðamenn.
Tveir fræðslufundir hafa þegar verið
haldnir og voru þeir mjög vel sóttir.
Fræðslufundir fyrir vél-
sleðamenn hafa verið
skipulagðir. Sigrún
Óskarsdóttir telur
tímabært að sporna við
vélsleðaslysum með
fræðslu o g forvarn-
arstarfí.
Sýnir það okkur að þörfin fyrir
fræðslu er mikil.
Fimm fræðslufundir eru eftir og
verður efni þeirra:
• Móttaka þyrlu, Landhelgisgæslan.
• Veðurfræði.
• Ofkæling og útbúnaður vélsleða-
manna.
• Skyndihjálp á fjöllum.
• Akstur vélsleða, viðhald og með-
ferð þeirra.
Björgunarskóli Landsbjargar og
Slysavarnafélags íslands selur þeim
sem áhuga hafa námsgögn, t.d. um
almenna ferðamennsku, skyndihjálp,
rötun og fl. Öll fræðsla og upplýs-
ingar varðandi öryggi í ferða-og vél-
sleðamennsku er til góðs og leiðir
væntanlega til fækkunar á slysum.
Höfundur er yfirkennari
slysavarnasviðs Björgunarskóla
Landsbjargar og Slysavamafélags
íslands.
Sigrún
Óskarsdóttir
bundinni þjónustu við nemendur og
kennara, sem er tímafrek vegna sér-
stöðu skólans. í augum Braga felst
hins vegar í bættri þjónustu skrifstof-
unnar einungis „umbúðavæðing".
Alvarlegustu aðdróttanir Braga í
umræddri grein varða þó ekki skipu-
lag skólans, heldur ónafngreinda ein-
staklinga, sem þar kenna. Hann ber
sífmum á brýn að þeir hefti skoðana-
frelsi nemenda og komi því til leiðar
að ,jafnvel efnilegum nemendum í
verklegum fögum“ sé „vikið úr skóla,
dirfíst þeir að hafa aðrar skoðanir en
þeir“. Hann ýjar ennfremur að því
að einstaka nemendur séu lagðir í
einelti „fyrir aðrar skoðanir í listum
og pólitik". Hvorugt getur Bragi stutt
rökum eða dæmum, enda reynir hann
það ekki. Rakalaus áburður um órétt-
mæta brottvísun nemenda er þó sýnu
alvarlegri, þar eð hann beinist ekki
aðeins að ónafngreindum einstakling-
um, heldur felst í honum sú alvarlega
ásökun að umfjöllun og afgreiðsla
skólastjómar MHÍ sé hlutdræg. Bragi
sat áram saman í skólastjóm MHÍ
og ætti því að vita að einstakir kenn-
arar hafa ekki vald til að vísa nemend-
um úr skólanum, heldur heyrir það
undir skólastjóm. Nemandi sem vísað
hefur verið úr MHI, sem er næsta
fátítt, á þess að sjálfsögðu kost að
skjóta þeirri ákvörðun til mennta-
málaráðuneytisins.
Hitt er svo annað mál að undarlegt
hlýtur að teljast að hægt sé að fá birt
í Morgunblaðinu staðhæfulaus
hnjóðsyrði svo alvarlegs eðlis um
stofnun og einstaklinga og það í föst-
um menningarþætti, sem „Sjón-
menntavettvangi", vettvangi sem
ætla mætti að skrifaður væri af
ábyrgð og hlutleysi eins og vikið var
að hér í upphafi. Það sætir furðu, að
fastur greinarhöfundur Morgunblaðs-
ins eigi þess kost að notfæra sér að-
stöðu sína við blaðið til þess að koma
höggi á meinta andstæðinga. En
sannleikurinn er sá að Bragi var og
er greinilega ennþá mjög ósáttur við
afgreiðslu skólastjómar á máli eins
fyrrverandi nemanda við skólann.
Hann kýs að ræða um það mál án
þess þó að upplýsa lesendur um að
þar geti hann ekki komið fram sem
hlutlaus gagnrýnandi. Morgunblaðinu
hlýtur að vera það kappsmál að les-
endur þess geti gengið út frá því sem
vísu að gagnrýnandi á vegum blaðsins
sé ekki í slíkum persónulegum tengsl-
um við málefni sem hann gerir að
umtalsefni, að ætla megi að honum
sé ókleift að gæta fyllsta hlutleysis í
skrifum sínum.
Höfundur er myndlistarmaður og
dcildarstjóri fornámsdeildar
Myndlista- og handíðaskóla
íslands.
Aðhald í heil-
brigðiskerfinu
EITTHVAÐ aðhald í
heilbrigðiskerfínu er að
sjálfsögðu eðlilegt, eng-
inn efast um það. Heil-
brigðiskerfíð nær yfir
alla íslendinga bæði
heilbrigða og sjúka.
Sem betur fer eru marg-
ir heilbrigðir og þurfa
ekkert á heilbrigðis-
þjónustu að halda, en
til er hópur fólks sem
hefur verið svo óián-
samt að fá sjúkdóm,
ekki bara langvarandi
heldur ævihingan. Þetta
fólk er ekki hægt að
setja í sama hóp og
þetta heilbrigða.
Margir sjúklingahópar hafa mót-
mælt hinu fyrirhugaða tiMsanakerfi,
og að sjálfsögðu eram við sem störf-
um í hagsmunasamtökum sjúklinga
mjög áhyggjufull vegna þeirra erfíð-
leika sem bæði geta verið fjárhagsleg-
ir og læknisfræðilegir.
Heilbrigðisráðherra gat þess í
fréttatíma Ríkissjónvarpsins að þessi
félagasamtök hefðu fengið sérfræð-
inga til að semja þessi mótmæli. Ég
vona að hinum háttvirta ráðherra
hafi orðið fótaskortur á tungu sinni,
því svona litilsvirðingu sýnir maður
ekki neinum.
Heilbrigðisráðherra kallaði til sín
þá sjúklingahópa sem mótmælt hafa
hinu nýja tilvísunarkerfí, daginn eftir
að hann hafði undirritað það. Hann
mætti ekki sjálfur og aðstoðarmaður
hans mætti 30 mínútum of seint.
Þessi hópur fólks var ekki hafður
með í ráðum þegar vinnan við tilvís-
unarkerfið var unnin, sem hefðu ver-
ið mun þægilegra fyrir báða hópa,
þá hefðum við trúlega getað komist
að sameiginlegri lausn, án þess að
vera að álasa hveiju öðra í fjölmiðlum
landsins.
Það var lítið nýtt fyrir okkur á
þessari kynningu, enda birt í Morg-
unblaðinu þennan sama dag.
Ráðuneytisstjóri kynnti tilvísana-
kerfið sem gert er fyrir hinn venju-
lega Islending sem fær sjúkdóma sem
hægt er að lækna.
Þar kom fram að beina ætti fólki
á göngudeildir sjúkrahúsanna í stað
þeirrar þjónustu sem sérfræðingar
hafa veitt út í bæ. Göngudeildir eru
ekki til fyrir alla þessa sjúklingahópa
og flestar af þeim sem fyrir eru, era
illa í stakk búnar til að anna þeirri
aukningu sem þetta hefði í för með
sér. Þar kom einnig fram að allar þær
kvartanir sem upp koma skal visa til
landlæknis, trúlega yrði það mjög
þungt í vöfum.
Ti( að koma til móts við sjúklinga
sem era i tangtímameðferð var tími
tilvísananna lengdur frá
12 mánuðum í 18 mán-
uði, langtímameðferð er
ekki það sama og ævi-
löng meðferð.
Sjúklingar sem era
með ævilanga sjúkdóma
mynda i flest öllum til-
vikum mjög náin tengsl
við sinn sérfræðing, rof
á þeim tengslum hefur í
för með sér upplausn,
óvissuástand og öiyggis-
leysi sem getur haft mik-
il áhrif á meðferðina.
Allir hafa rétt á heil-
brigðisþjónustu en í dag
stækkar stöðugt sá hóp-
ur fólks sem á erfítt með
að greiða fyrir þá læknisþjónustu sem
það þarfnast. Tökum til dæmis sykur-
sjúkling sem búinn er að hafa sjúk-
dóminn til fjölda ára, viðkomandi
þarf til dæmis að fara í augnskoðun,
sem kostar 4.340.00, heimsókn tií
Göngudeildir eru ekki
til fyrir alla sjúklinga-
hópa. Guðrún Þóra
Hjaltadóttir segir að
göngudeildir, sem starf-
ræktar eru, séu illa í
stakk búnar til að mæta
aukinni aðsókn í kjölfar
tilvísanakerfis.
efnaskiptasérfræðings 1.750 kr.,
rannsóknargjald 900 kr., taugalæknis
1.750 kr., samtals 8.740 krónur.
Segjum að viðkomandi hafi ekki
efni á að borga, viðkomandi fær
sendan reikning fyrir upphæðinni,
mánuði seinna ítrekun, ekki lagast
fjárhagurinn og er þá skuldin send
lögfræðingi til innheimtu.
Fjárnám? Gjaldþrot?
Er þetta heilbrigðiskerfí fyrir alla?
Aðstoðarmaður ráðherra, Sigfús
Jónsson, leysti það „faglega" á þess-
um fundi, hann vildi meina að þeir
sem væru á góðum launum eins og
hann sjálfur fengju ekki að borga nóg
fyrir þá þjónustu sem þeir fengju hjá
læknum eða sérfræðingum. Þeir vildu
glaðir borga meira. Eins og staðan er
í dag hjálpar það ekki okkur hinum.
Erum við þá ekki komin aftur að
frumskógarlögmálinu.
Höfundur er formaður Samtaka
sykursjúkra.
Guðrún Þóra
Hjaltadóttir.