Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
■ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR
BLAD
HANDKNATTEIKUR
Spennandi
lokaþáttur í
Víkinni
GIJNNAR Gunnarsson,
þjálfari Víkinga, tryggði
sínum mönnum signr,
23:22, yfir ÍR-ingum í
geysilega spennandi
lokaþætti í Víkinni í .
gærkvöldi. Gunnar skor-
aði sigurmarkið þegar
aðeins þrjár sek. voru til
leiksloka, með skoti utan
af velli. „Þegar ég fékk
knöttinn var lítið eftir
og því ekkert annað að
gera, en láta skotið ríða
af — heppnin var með
mér,“ sagði Gunnar. Hér
á myndinni fyrir ofan
sækir Dimitrijevic að
marki Vfkinga, Magnús
Már Þórðarson er inn á
línu, en Friðleifur Frið-
leifsson og Rúnar Sig-
tryggsson til varnar.
MorgunbaOid/KAA
SKIÐI
Asta númer eitt
og tvö í Svíþjóð
Asta S. Halldórsdóttir, skíðakona frá ísafirði,
sigraði í alþjóðlegri stórsvigskeppni, sem
fram fór í Svíþjóð á sunnudag og varð önnur í
sömu grein á laugardag. Sigurinn á sunnudag
gaf Ástu 35,19 (FIS) stig sem er með því besta
sem hún hefur náð í stórsvigi og hún hlaut 39,24
stig fyrir árangur sinn á laugardaginn. FyriV
mótin um helgina hafði Ásta 41,56 stig og bætti
því árangur sinn um rúmlega fjögur styrkstig,
eða í 37,20 stig.
Sigurvegari í stórsviginu á laugardaginn var
Ingrid Helander frá Svíþjóð og var hún rúmlega
hálfri sekúndu á undan Ástu. Þetta snérist síðan
við á sunnudag og þá var Ásta sekúndu á undan
Helander, sem á best 28,40 stig í stórsvigi.
Systumar Hildur og Brynja Þorsteinsbörn frá
Akureyri kepptu einnig í sömu mótum og Ásta
um helgina. Hildur varð í 8. sæti á laugardag
og var 4,88 sek. á eftir Ástu en Brynja var úr
leik. Á sunnudag varð Brynja í 8. sæti, 4,22 sek.
á eftir Ástu og Hildur í 9. sæti 4,33 sek. á eft-
ir Ástu. Hildur fékk 65,60 stig fyrir stórsvigið
á laugardag og 61,47 stig fyrir mótið á sunnu-
dag. Brynja hlaut 60,80 stig fyrir árangur sinn
á sunnudaginn. Þetta er besti árangur systranna
í stórsvigi í vetur.
ÞOLFIMI
Magnús
varði
Evrópu-
titilinn
MAGNÚS Scheving
varði Evrópumeistara-
titilinn í þolfimi í Sofia
i Búlgaríu á laugardag.
Magnús — sem sést í
keppninni á myndinni
hér til hliðar — sigraði
Z með miklum yfirburð-
■ um á mótinu. Hann
^ fékk8,75í einkunnfyr-
J| ir listræna útfærslu en
f 9,33 fyrir tæknilega
| útfærslu. Samanlagt
fékk hann því einkun-
I ina 9,1 sem færði hon-
um titilinn annað árið í
röð. Systkinin Anna og
g Karl Sigurðarbörn
urðu í sjötta sæti í para-
§ keppni mótsins.
■ Nánar/ B8
HANDKNATTLEIKUR
Baumruk nefbrotinn
PETR Baumruk, leikmaður og þjálfari Hauka, tví-
brotnaði á nefi eftir samstuð við Dag Sigurðsson
í leik Hauka og Vals í 8-liða úrslitum á sunnudags-
kvöld. Einar Þorvarðarson, liðsstjóri Hauka, sagði
í gærkvöldi að þrátt fyrir meiðsli Bamruks myndi
hann spila gegn Val í kvöld og nota andlitsgrímu
til að verja nefið.
Það á ekki af Haukum að ganga því Sigurjón
Sigurðsson meiddist á þumalfingri vinstri handar
(skothandar) á æfingu í gær og fór í myndatöku
á Borgarspítalanum seint í gærkvöldi. Jafnvel er
talið að hann sé fingurbrotinn.
KNATTSPYRNA
Rúnar opnaði
markareikninginn
RÚNAR Kristinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu,
opnaði markareikning sinn hjá sænska úrvalsdeild-
arliðinu Örgryte um helgina. Liðið fór til Danmerk-
ur og gerði 1:1 jafntefli við meistara Silkeborg í
æfíngaleik en Rúnar gerði mark Örgryte með
skalla.
Sigur hjá Nurnberg,
en ólöglegt lið
NÚRNBERG lagði Meppen að velli, 2:0, um helg-
ina, í þýsku 1. deildinni í knattspymu, en liðið mun
ekki halda stigunum, þar sem fjórir útlendingar
voru inná vellinum síðustu níu mín. Þar sem aðeins
má nota þijá útlendinga, verður Meppen dæmdur
sigur. Arnar Gunnlaugsson, Argentínumaðurinn
Bustos og Tékkinn Kubik voru inná þegar Austur-
ríkismaðurinn Hintermeier kom inná sem fjórði
útlendingurinn. Niirnberg, sem er í fallbaráttu,
má ekki við að missa þessi tvö stig. Félagið á í
miklum fjárhagslegum vandræðum, er skuldum
vafið.
Þorvaldur og Lárus
Orri stóðu sig vel
ÞORVALDUR Örlygsson og Lárus Orri Sigurðsson
áttu góðan leik þegar Stoke vann W.B.A. 3:1 í 1.
deild ensku knattspyrnunnar um helgina. Lárus
Orri var traustur í miðvarðarstöðunni og Þorvaldur
átti þátt í öllum inörkum Stoke. „Við höfum spilað
illa að undanförnu ogþví var þetta kærkominn
sigur en við áttum góðan Ieik,“ sagði Þorvaldur við
Morgunblaðið.
HANDKIMATTLEIKUR: BIKARMEISTARARNIR TOPUÐU í GARÐABÆNUM / B3