Morgunblaðið - 01.03.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 01.03.1995, Síða 1
1 ÞRAUTiRl Heimilisfang: MYNDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík D BLAÐ PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 Gaman í froðubaði! EG HEITI Eydís Eva Bergsdóttir og á heima í Portúgal. Besti vinur minn á íslandi heitir Alexand- er, en nú er langt á milli okkar. Vonandi hittumst við í sumar. Á myndinni er ég í froðubaði, en það þykir mér gaman. Ég er 5 ára og ég les alltaf Myndasögur Moggans. Eg hlakka til Kæra Barnablað! Ég hef mjög gaman af myndunum sem þú birtir og mig hefur lengi langað til að senda þér eina. Ég er far- in að hlakka til sumarsins með öllum skemmtilegu úti- leikjunum og langar að kalla þessa mynd vorstemmningu. Rósa Birna Þorvaldsdóttir, Suðurvangi 14, 220 Híifnarf. sumarsins Rósa er sjö ára og er í Víðistaðaskóla. Þetta er reglulega björt og falleg vormynd, Rósa mín. Krakkamir eru öll komin í létt og litrík sumar- föt, og eru að hoppa í parís og boltaleik. Sólin sefur á himninum, svo að það hlýtur að vera hálfskýjað. Og það er meira að segja sprottið upp rautt blóm, mitt á milli krakkanna. Strákur á skíðum HÉRNA kemur skíðamynd, sem gefur skemmtilega öðruvísi hughrif en vormyndin hennar Rósu Birnu eða myndin af Eydísi Evu í froðubaðinu. Myndinni fylgir saga um lítinn skíðastrák: Einu sinni var lítill strákur og hann var á skíðum. Honum fannst alveg ofsalega gaman áð renna sér. Hann var skilinn eftir í skíðabrekk- unni og þaðan gat hann labbað heim til sín. En strákurinn fór á annan skíðastað lengra í burtu og þaðan rataði hann ekki heim til sín. Hann spurði mann, sem hann hitti, hvort að hann vissi hvar hann ætti heima. „Nei, farðu burtu,“ sagði maðurinn. Svo spurði hann konu, hvort að hún vissi það? Hún sagði: „Nei, því miður veit ég ekki hvað þú átt heima.“ Þá spurði hann strák, sem var líka að renna sér. Strákurinn svaraði: „Já, ég veit það. Þú átt heima á Kvisthaga l.“ Og þá er sagan búin. Sigurður Kjartan Kristinsson, sex ára síðan 17. janúar ’95. Sigurður á heima á Frostaskjóli 115, 107 Reykjavík, og við kunnum honum bestu þakkir fyrir góða sögu. Skrítin vél! IBANDARÍKJUNUM hafa menn búið til skrítna vél, sem getur mælt hvað hár og neglur vaxa mikið dag frá degi. Bæði hárið og neglurnar vaxa mest yfír daginn. Neglur vaxa aðeins hægar en hárið, sem vex um 0,4 millimetra á sólarhring. En vitið þið, krakkar, að neglurnar okkar eru ummyndaðar klær, og það eru aðeins menn og apar sem hafa neglur. Að teikna sumarblóm ÞAÐ ER ekki úr vegi að æfa sig í að teikna nokkur sumarblóm, fyrst að svona margir krakkar eru farnir að hlakka til sumarsins. Horfið þið bara á blýantinn og fylgið honum eftir! Góða skemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.