Morgunblaðið - 02.03.1995, Síða 1
Hvaöa heimsmynd vilt þú ?
Þessi mynd sýnir eyðslu þjóða heims í vopn og hernað nær þúsund
billjónir bandaríkjadala, í hlutfalli við þá fjármuni sem þarf til að leysa
mörg vandamál heimsins.
IODDOOQ
DLJUI
DDQ
DDOl
DDDl
DDDDl
PDDDDDDDDDDDDC
VANNÆRINGU
Gegn jardvegseyðingu Jafnvj MANNF.
pEGN EYOINGU
Nýting
UMHVERFISVÆNNAR ORKU
HÁMARKS ORKUNÝTING
íUppræta ólæsi
Eftirgjöf
ÁSKULDUM
ÞRÓUNNARÞJOÐA
HÚSNÆÐI
FYRIR ALLA
HREINT VATN FYRIR ALLA
Gegn
GRÓÐURHÚSA-
ÁHRIFUM
HEILSU-
GÆSLA
FYRIR
ALLA
Gegn
HUNGURSNEIO
Ef þú ættir að gera innkaupalista fyrir mannkyn og jörð, hvað mynd-
ir þú láta ganga fyrir? Væri ekki eðlilegt að láta brýnustu lífsnauðsynjar
ganga fyrir. Svo sem hreint og ómengað vatn, matvæli og heilsugæslu.
Þá viltu hafa hreint í kringum þig, geta andað að þér hreinu og ómeng-
uðu lofti svo þú vilt úthluta ómengaðri orku öllum til handa og þannig
bjarga heiminum frá öðru Chernobyl slysi. Þú vilt fjárfesta í nýjum og
hreinum orkugjöfum , og þú setur það á listann. Einnig finnst þér það
lágmarkskrafa að hafa þak yfir höfuðið, og að nágrannar þínir kunni að
lesa og skrifa og virði lágmarks umgengnisreglur. Þessvegna bætir þú
lágmarksmenntun handa öllum með á listann. Þetta myndi að sjálfsögðu
einnig leiða til meiri stöðugleika í mannfjölguninni.
En höfum við efni á þessu? Kostnaðurinn skiptir milljörðum. En
hvað kostar að gera þetta ekki? Hver er framtíð okkar ef jörðin verður
óbyggjandi vegna mengunar. Eða ef fátæku þjóðirnar, vegna skorts á
menntun og getnaðarvörnum, halda áfram að fjölga sér sjö sinnum hrað-
ar en vesturlandabúar. Eigum við kannski að halda áfram að fjárfesta í
vopnum, svo ef þetta fólk brýst til uppreisnar einn góðan veðurdag, get-
um við sent á það eina eða tvær kjarnorkusprengjur af „nýjustu gerð“?
Staðreyndin er sú að meðan heimsbyggðin eyðir trilljónum í ný
vopn og stríðsrekstur á hverju ári, gætum við fyrir aðeins um 25% af
þeirri upphæð komið í framkvæmd því sem er á innkaupalistanum.
Alþjóðleg friðarstofnun á íslandi
Á árinu 1993 komu saman aðilar af ýmsum þjóðernum og stofnuðu undir-
búningsfélag (United World Foundation) með því markmiði að sameina
friðarsamtök heims ásamt fyrirtækjum, einstaklingum og stjórnmála-
mönnum í sameiginlegt átak um alheimsfrið og þróunar- og umhverfis-
mál.
Markmið átaksins er að leysa varnar-, þróunar og -mannúðarmál með
breyttu hugarfari.
Til að kynna málið stóðum við fyrir alþjóðlegri friðarráðstefnu í
Barcelona á Spáni í Apríl 1994, þar sem komu saman aðilar frá friðarsam-
tökum, fulltrúar ríkisstjórna og fólk í viðskiptum. Þar voru lögð fyrstu
drögin að PEACE-2000 ,,“FRIÐUR-2000“„
Ástæða þess að ísland hefur veríð valið sem heimasetur stofnunar-
innar ,,“FRIÐUR-2000“„ er sú að land okkar stendur sem einstök fyrir-
mynd fyrir aðrar þjóðir:
• íslendingar eru eina þjóðin sem aidrei hefur haft skipulagða herþjón-
ustu og skólakerfi landsins kennir ekki hernað og manndráp.
• ísland er með samning við annan aðila um varnarmál. Á sama hátt gætu
aðrar þjóðir leyst sín öryggis- og varnarmál, með samningum við stofnun
eins og Sameinuðu þjóðirnar.
• ísland er eitt ómengaðasta land heims. Við notum náttúrulega orku við
hitun heimahúsa og til framleiðslu raforku. Aðrar þjóðir geta notað sólar,
vind og sjávarorku í mun ríkari mæli en nú er gert.
• Lega landsins og álit fólks erlendis á íslandi sem hlutlausu og traustu
lýðveldi, með eista virka þing heims. Árið 1985 var Reykjavík valin sem
fundarstaður fyrir leiðtogafund Stórveldanna,en sá fundur átti einn
stærsta þáttinn í að stöðva kalda stríðið. ísland er því kjörið sem aðsetur
alþjóðlegra friðarstofnuna.
Stofnunin „FRIÐUR-2000“ mun stuðla að breyttu hugarfari í heimsmálum.
Við múþunrtlbeitáQkkur fyrir eftirfarandi: w J
• Að fá kjarnorkuvopn bönnuð með alþjóðlegri lagagerð.
• Endurskipulagningu Sameinuðu Þjóðanna með því markmiði að stofn-
unin verði lýðræðislegri og í stakk búin til að takast á við öryggis og þró-
unarmál heimsins.
• Fjárfesting í þróunarverkefnum til aðstoðar Austur Evrópu og þróunar-
landa, meðal annars með breytingum á hergagnaverksmiðjum til fram-
leiðslu á tækjum til orkuframleiðslu með sólar, vind og sjávarorku.
• Gerð og dreifing á sjónvarpsefni til að vekja athygli almennings á þess-
um málum.
• Koma á kennslu um friðar, þróunar og samskiptamál í skólakerfi þjóða
heims til að byggja grunn að friðsamlegum heimi og skilningi kynslóða
framtíðarinnar.
• Veita mannúðarsamtökum aðstoð í málum sem tengjast skaða af völd-
um kjarnorkuófriðar og eyðslu í hernað, og sýna fram á hvernig hægt er
með breyttu hugarfari, að leysa slík mál til frambúðar.