Morgunblaðið - 03.03.1995, Síða 1
JHwjpmfrlnfetfe
FÖSTUDAGUR 3. MARZ1995
Heildarvanskil í Vanskil sem hiutfall af Hlutfall lántakenda
janúar1995 uppfærðum eftirstöðvum ívanskilum
Upphygg-
ing 8úða-
vikui1
UPPBYGGINGIN er hafin í
Súðavík eftir snjóflóðið
mikla í janúar og nú eru þegar
risin þar átján ný hús. Þar er
um bráðabirgðahúsnæði til
eins árs að ræða, en gert ráð
fyrir, að byrjað verði á fram-
kvæmdum við nýtt sjávarþorp
1. maí nk. í gangi er skipulags-
samkeppni, sem lýkur 14. marz
og síðan hefur dómnefndin
eina viku til þess að komast
að niðurstöðu um val á beztu
skipulagstillögunni. Þetta kem-
ur fram í grein, þar sem fjallað
er um uppbygginguna í Súðavík
í máii og myndum. gg
Vanskilln
naestá
8uður-
landi
VÁNSKIL á fasteignaveð-
bréfum íhúsbréfakerfinu
eru hlutfallslega mest á Suður-
landi en síðan á Reykjanesi og
Austurlandi. Minnst eru þau
hlutfallslega í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Ekki er auð-
velt að finna skýringar á þessu
milli landshluta. Lélegt at-
vinnuástand á Suðurnesjum
kann að einhverju leyti að vera
skýringin á háu vanskilahlut-
falli þar. Sú skýring er þó ekki
einhlít, þegar á það er litið, að
vanskilin eru minnst í Norður-
landskjördæmi eystra þrátt
fyrir slakt atvinnuástand
þar að undanförnu. í jan-
úarlok námu heildarvan-
skilin 1.467 millj. kr.
Ævintýr-
* " ”TI
DANFOSS er orð sem marg-
ir þekkja. í hugum flestra
hérlendis er það heiti ofnloka,
en er í rauninni heiti á einu
stærsta iðnfyrirtæki Danmerk-
ur, sem er þó alþjóðlegt. Við-
skipti þess spanna allan heim-
inn og framleiðslan fer fram í
mörgum löndum. Þannig
kemst Sigurður Grétar Guð-
mundsson m. a. að orði í grein,
sem hann skrífar um þetta fyr-
irtæki hér í blaðinu í dag með
fyrirsögninni: Ævintýrið um
Danfoss.
Á SÍÐUSTU 5
ÁRUM HAFA
UM
1 200 AÐILAR
FELAGAR
í ALVÍB
VlLT ÞÚ EKKI
BÆTAST í
HÓPINN?
Almennur lífeyrissjóður VÍB, ALVÍB,
er séreignarsjóður þar sem framlög
sjóðfélaga eru eign hans og færast á
sérreikning hans.
8,7% ávöxtun frá upphafi.
Persónuleg ráðgjöf til sjóðfélaga um
lífeyris- og eftirlaunamál.
ítarleg ársfjórðungsleg yfirlit.
Félagar í ALVÍB vita alltaf nákvæmlega
hver inneign þeirra er og hvaða
eftirlaunum þeir geta átt von á.
Ávöxtun hvers sjóðfélaga er reiknuð út
sérstaklega.
Inneign í ALVÍB erfist.
Allir geta greitt viðbótariðgjöld í ALVÍB.
Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í
annan lífeyrissjóð geta greitt öll sín
iðgjöld í ALVÍB.
Lágur rekstrarkostnaður.
Örugg eignasamsetning.
Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar
um ALVÍB í afgreiðslunni í
Ármúla 13a eða í síma 560-8900.
Verið velkomin í VÍB.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐ B RÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, sími: 560-8900.