Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 8
8 D FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ
1 m
Bffl 1
Hvar eru erlendar fjöl-
skyldur í Tslandsferð?
ÞEGAR litið er þessa dagana á
bæklinga ferðaskrifstofanna, þar
sem þær bjóða okkur íslendingum
ferðir til útlanda, eru fjölskylduferð-
ir mjög áberándi eins og áður.
Boðnar eru til sölu ferðir til sólar-
landa, stórborga og nágrannalanda,
og sérstaklega bent á hve fjölskyldan
geti átt ánægjulegt frí. Þetta er einn-
ig fyrirferðarmikið í sölubæklingum
erl. ferðaskrifstofa.
Þó eru undantekningar á þessu.
Varla minnist ég þess að hafa séð
í sölubæklingum erlendra aðila, sem
selja ferðir til íslands, myndir af fjöl-
skyldu á ferð um ísland.
Enda er það svo að samkvæmt
könnunum eru það einmitt fjölskyld-
ur, hjón með böm, sem vantar í er-
lenda ferðamannahópinn hér. Þarf
reyndar ekki kannanir til.
Hvernlg frí vill fjölskyldan?
Erlendar fjölskyldur í sumarleyfís-
ferð á Islandi eru sjaldséðar. Höfum
við séð margar erlendar fjölskyldur
á tjaldsvæðum víðs vegar um landið?
I stuttu máli má segja að það sem
fjölskyldur sækist eftir í sumarfrí,
sé að „hafa það gott“ í fríinu. Höfum
við í vöruþróun í íslenskri ferðaþjón-
ustu tekið mið af þörfum fjölskyld-
unnar?
Býður íslensk ferðaþjónusta upp
á þá afþreyingu og þann aðbúnað,
sem fjölskyldur sækjast eftir?
Ef litið er til Norðurlanda þá hef-
ur vöxtur í ferðaþjónustu t.d. í Dan-
mörku verið í mest í tengslum við
sumarhús, sem í reynd eru oftast
heilsárshús.
Gífurlegur fjöldi fjölskyldna frá
meginlandi Evrópu sækir í sumarhús
á Norðurlöndum. Fjölskyldur dvelja
þar og nýta sér þá afþreyingu, sem
er í nágrenni þessara húsa. Njóta
fagurs landslags, stunda sund,
gönguferðir, hjóla o.fl. Þá virðist það
vera svo að fólk hafi sterkar taugar
til þess staðar, sem það fór í frí sem
börn. Böm sem hingað koma í frí
eru því líklegir ferðamenn til lands-
ins, þegar þau vaxa úr grasi.
Þessi ferðamáti höfðar einnig til
íslenskra fjölskyldna. Það sést á
fjölda þeirra, sem fer í sumarhús í
Danmörku, Bretlandi og Hollandi,
svo ekki sé talað um ásóknina sem
er í sumarhús stéttarfélaga hér.
Er hægt að ná flelrl fjölskyldum
tll íslands?
Já, það er hægt og þær yrðu í
flestum tilfellum hrein viðbót við þá
markhópa, sem hingað koma. Sú
vara, sem fjölskyldur sækjast eftir,
er að hluta til fyrir hendi, en það
þarf að þróa hana betur og markaðs-
setja.
Eg hef nú í vetur fengið tvö bréf
frá stórum söluaðilum erlendis, ann-
að frá Þýskalandi, hitt frá Dan-
mörku, þar sem rætt er um mikil-
vægi þess að ná til þessa stærsta
markhóps í ferðaþjónustu fjölskyld-
unnar. I báðum þessum bréfum er
rætt um sumarhús, sem þá söluvöru,
sem höfði til þessa hóps.
Nú er vitað að í landinu eru um
10.000 sumarhús af öllum stærðum
og gerðum. Samkvæmt bréfum sölu-
aðilanna er eftirspurn.
Reynt hefur verið, í litlum mæli
þó, að markaðssetja sumarhús á Is-
HVERNIG
VAR FLUGIÐ
Til Marokkð í leiguflugi
HELSTA áhyggjuefnið fyrir leiðang-
ur til Agadir í Marokkó var hvort
reykingar yrðu leyfðar í fluginu. Ef
ekki, hefðu vænar birgðir af nikótín-
tyggjói og -plástrum verið í handfar-
angri.
Eydís, Boeing 737-þota Flugleiða,
annaðist flutninginn og var farþega-
rýmið fullnýtt. Indælar flugfreyjur
sáu um að fjölskyldur gætu setið
saman og allir væru sáttir við sessu-
nauta sína. íslenskar flugfreyjur eru
með þeim allra alúðlegustu sem ég
hef séð að störfum og eru flugfélagi
sínu til sóma. Vélin renndi af stað
á réttum tíma og þegar hún hóf sig
á loft blístraði einhver Please release
me sem Tom Jones söng um árið.
Þegar slokknaði á ljósaskiltum, lið-
aðist tóbaksreykur um öftustu sæt-
araðirnar.
Ekkert Morgunblað var í blaða-
vagninum þegar hann kom aftur í
til reykingafólks. Það kláraðist
framar í vélinni og sagði freyjan það
alltaf gerast. Ég undi mér ágætlega
við lestur Herald Tribune, en velti
fyrir mér af hveiju Flugleiðir miða
blaðakaup ekki við áhuga farþega
sinna.
Spáin var góð, sagði flugstjórinn,
þótt gera mætti ráð fyrir „smá nuddi
í klifrinu". Þegar kom að nuddinu
heyrðist Please release me aftur, nú
með slaufum og meiri tilþrifum en
áður, en farþegar sem skilgreindu
nuddið sem meiriháttar hristing voru
fegnir þegar kyrrð komst á.
Fóður í flugvélum
Venja er að greina frá flugvéla-
fóðri í þessum pistlum. Á leið til
Agadir voru bornar fram tvær mált-
íðir og var sú fyrri lakur kostur.
Seig franskbrauðssamloka með agn-
arsmárri skinkusneið, smurostur,
þessi þríhyrndi útlenski, með plast-
bragðinu, safí og súkkulaðimoli. Ég
horfði öfundaraugum á litla sæta
konu, sem hafði pantað grænmetis-
mat og fengið samloku með gimileg-
um tómatsneiðum.
Eftir mat, kaffí og koníak losnaði
um málbeinið og samferðamenn
kynntust svolítið betur. Langar raðir
mynduðust í átt að klóinu og héld-
ust nær óslitnar það sem eftir var
leiðar. Söluvagni Saga boutique var
rúllað eftir ganginum og var sitthvað
á tilboðsverði. Það er snjöll leið til
að örva sölu um borð og rýma til
fyrir nýjum vörum.
Á írlandi var millilent til að taka
bensín, en vegna mikillar flugum-
ferðar varð fyrirhugaður hálftíma
stans að klukkutíma. Enginn gerði
sér rellu út af því og þegar vélin var
komin ofar skýjum og Please release
me hafði hljómað enn eina ferðina
kom aðalmáltíð dagsins.
Vín um borð
Ferskt salat var forréttur og
bragðlítið lasagne batnaði þegar
búið var að sturta hressilega úr salt-
og piparbréfum. Vatnsdeigskaka
með hnetukremi í suður-evrópskum
stíl var ágæt.
Smáflaska af uppskeruvíninu
Beujolais Noveau var föl fyrir 250
kr. en þetta val kom á óvart, því ég
vissi ekki betur en menn hættu að
drekka uppskeruvín um áramót. Alla
vega tók ÁTVR vínið út af lista í
janúar. Ég var dauðfegin að Noveau-
vínið skyldi vera búið loksins þegar
vagninn kom aftur í. Chateau Gu-
erry, cotes de Burg '91 sem leysti
það af hólmi var meira viðeigandi.
Meðan farþegar borða, selja flug-
freyjur vín, taka við greiðslu, um-
reikna í þá mynt sem hverjum hent-
ar og gefa til baka. Með matarbakka
á borðinu er ekki auðhlaupið að ná
í peninga í vasa eða veski, og vínsal-
an er svo tímafrek að flestir eru
komnir langleiðina að eftirrétti þeg-
ar þeir fá lpks borðvínið. Þetta er
óviðunandi. Ég set einnig spuminga-
merki við verðlagningu vínsins, sem
Flugleiðir selja á tollfrjálsu svæði
en á svipuðu verði og ÁTVR.
Þegar Eydís flaug yfír Spán glitti
í land öðru hvoru og eftir 6V2 klukku-
tíma um borð var blístrað Please
release me í hinsta sinn í þessari
flugferð. Við stigum á land í Aga:
dir, í 20 gráðu hita og hafgolu. í
hinni nýju og bráðhuggulegu flug-
stöð mynduðust biðraðir og vega-
bréfaskoðun gekk hægt. Það fór
ekki milli mála að við vorum komin
í annað menningarsamfélag, þar
sem hraði er bara hugtak. ■
Brynja Tomer
HVAR eru erlendar fjölskyldur á ferð um ísland. Myndin er úr
ferðabæklingi Úrvals -Útsýnar
landi meðal Þjóðveija og nokkur
árangur náðst, en þó er þar hængur
á. Þeir, sem fara frá meginlandi
Evrópu í sumarhús á Norðurlöndum,
aka flestir á eigin bflum. Fólk vill*
eðlilega geta skoðað sig um í land-
inu, ekið í sund og aðra afþreyingu,
sótt vistir o.fl.
Nú ekur enginn frá Evrópu til
íslands, þannig að til þess að hægt
sé að selja sumarhús á íslandi verð-
ur að selja „sumarhús og bíll“.
Betra verð á bílalelgubílum
nauðsynlegt
Verð á bílaleigubílum þarf að
lækka til að þessi vara verði sam-
keppnishæf 'í verði við aðrar
fjölskylduferðir.
Slíkt yrði ekki eingöngu til að
skapa grundvöll fyrir markaðssetn-
ingu þessarar vöru heldur myndi
einnig auka enn frekar möguleika á
meiri dreifíngu erlendra ferðamanna
um landið. Þannig skapaðist enn
frekari grundvöllur til betri nýtingar
í ferðaþjónustu á landsbyggðinni.
Viðræður hafa átt sér stað um
að ríkisvaldið leggi sitt af mörkum
til að möguleiki sé til að lækka verð
á bílaleigubílum hér. Alþingi sam-
þykkti nú á síðustu dögum þingsins
heimild til fjármálaráðherra til lækk-
unar vörugjalda af bílaleigubílum.
Þessu ber að fagna.
Samhliða því að ríkisvaldið lækkar
aðflutningsgjöld af bílum til bflaleiga
hlýtur verð á þessari þjónustu að
lækka. Þá má gera ráð fyrir aukinni
nýtingu, sem ætti að gera bílaleigum
kleift að lækka einnig sinn hlut frek-
ar en þeir hafa gert á undanförnum
árum.
Virðisaukaskattur á bílaleigubíla
vegur hér einnig þungt og er ferða-
lag með bílaleigubíl eina ferðalagið,
sem er með virðisauka hér á landi.
Út í þá umræðu verður ekki farið
nú, en þó skal minnt á það órétt-
læti að mínu mati, sem felst í því
að leggja virðisaukaskatt á hvern
ekinn km. Rekstraraðilar hafa hér
tekið ákvörðun um að innheimta
leigugjald með þessum hætti, þó
þetta sé að verða óþekkt í samkeppn-
islöndum okkar.
Þeir, sem hafa áhuga á því að sjá
sem mest af landinu, greiða ekki
aðeins virðisaukaskatt af hveijum
eknum km, heldur greiða þeir að
sjálfsögðu aukinn vegaskatt með
aukinni bensínnotkun.
Þessi tvöfalda skattlagning á
hvern ekinn km er því ekki hvatning
til ferðafólks að ferðast vítt og breitt
um landið á bílaleigubflum.
En aukin dreifíng er einmitt eitt
af meginmarkmiðum í ferðaþjónustu
hér á landi. Ná betri nýtingu fjárfest-
inga um allt land og ná auknum
tekjum með lengri dvöl. Með lækkun
á heildarverð bflaleigubíla, sem að
hluta til kæmi frá ríkisvaldinu, sem
nú hefur tekið ákvarðanir um það
og að hluta frá rekstraraðilum myndi
opnast leið til að ná hingað hluta
af stærsta hópi ferðamanna í heimin-
um, fjölskyldum.
Gera má ráð fyrir að þær tekjur,
sem ríkisvaldið og rekstraraðilar
misstu í fyrstu skiluðu sér til baka
og vel það í auknum viðskiptum og
auknum akstri, sem skilar auknum
vegaskatti. ■
Magnús Oddsson
Höfundur er ferðamálastjóri
UM HELGÍNA
ÚTIVIST
Gullfoss í klakaböndum
nefnist ferð á sunnud. kl. 10.30
og verður ekið austur um Gríms-
nesið og komið að Geysi. Þaðan
er farið að Gullfossi sem væntan-
lega er í klakaböndum. Þaðan er
gengið niður með gljúfrinu ef
færð leyfir. Leið heim mun ráð-
ast af veðri og færð. Upplögð
ferð fyrir alla fjölskylduna.
Kl. 10.30 sama dag er skíða-
ganga í Innstadal og hefst hún
á Hellisheiði í Innstadal og niður
um Sleggjubeinsskarð. Reikna
má með um 5-6 klst. langri
göngu. Brottför í dagsferðir er
frá BSÍ að vestan og eru miðar
seldir við rútu. Minnt á skjólgóð-
an fatnað og nesti.
Helgarferð 4.-5 mars og er
það skíðaganga við rætur Heng-
ils. Lagt af stað á laugardags-
morgun og ekið austur á Hellis-
heiði. Gangan hefst austarlega
og gengið yfír hana og niður í
Grafning. Gist í Nesbúð við
Nesjavelli. Á sunnudag verður
gengið um Dyradal og Marardal,
vestur fyrir Húsmúlann og lýkur
ferðinni við Kolviðarhól. Góð
gistiaðstaða í Nesbúð, heitir pott-
ar og sturtur. Innifalið í miða-
verði er kvöldmatur og morgun-
verðarhlaðborð. Fararstjóri er Óli
Þór Hilmarsson. Upplýsingar á
skrifstofu Útivistar. ■