Morgunblaðið - 05.03.1995, Page 1
ÁL-A UDI A8 REYNSL UEKIÐ ÍSVÍÞJÓÐ - TIGRA SPORT-
BÍLLINN í KULDAPRÓFI - HÖFÐABAKKABRÚ OPNUÐ
í HA UST - HÁLKUAKSTUR Á LEIRTJÖRN
Toyota Corolla
Corolla Hatchback, 3ja dyra.
Nú geturðu eignastToyota Corolla
s á verði frá 1.144.000 kr.
I _
1 t$g) TOYOTA
< Tákn um gæOi
FJÓRAR útfærslur sama bíls. Með lítilli fyrirhöfn er hægt að breyta VRC úr
opnum sportbíl í pallbíl, stallbak og langbak.
Benz sem skiptir
um ham eftir vali
MERCEDES-BENZ ætlar ekki að slá slöku við á bílasýningunni í Genf
sem hefst í byijun mars frekar en á öðrum stórum evrópskum bílasýning-
um. Það er jafnan mikið um að vera á básum Mercedes á sýningum og
skemmst að minnast sýningarinnar í Frankfurt í hitteðfyrra þegar A-
línan var frumkynnt og í París síðastliðið haust þegar SLK sportbíllinn
var sýndur fyrst. í Genf ætlar Mercedes að kynna VRC, bíl sem skiptir
um ham eftir því sem eigandinn kýs.
VRC (Variable Research Car) er
eins og nafnið gefur til kynna á
rannsóknarstigi enn sem komið er
en helsti eiginleiki bílsins er sá að
hægt er á einfaldan hátt að breyta
honum úr t.d. opnum sportbíl í lok-
aðan stallbak eða úr pallbíl í lang-
bak. Fljótlegt og vandalaust er að
breyta bílnum og þannig er hægt
að auka notagildi hans eftir efnum
og ástæðum í rúmgóðan langbak
þegar farið er í verslunarleiðangra,
fjögurra sæta opinn bíl til að frí-
lista sig um helgar en pallbíl með
miklu hleðslurými í vinnuna eða
tómstundimar.
Mercedes-Benz er með VRC bíln-
um að svara kröfum markaðarins
en niðurstöður viðamikillar kpnnun-
ar sem fyrirtækið gekkst fyrir
benda til þess að auk hins hefð-
bundna samgönguhlutverks eigi
bíllinn einnig í framtíðinni að þjóna
stærra hlutverki í frístundaiðju bí-
leigenda. VRC er ætlað að uppfylla
hinar margvíslegu þarft.ir bíleig-
enda sem hefðbundnir bílar geta
ekki uppfyllt vegna fyrirfram
ákveðins sköpulags síns.
Breytt um lag ð nokkrum
mínútum
Grunngerð bílsins verður í raun
ekki annað en opinn bíll á undir-
vagni með vél gírkassa, framrúðu,
hurðum, mælaborði og sætum.
Grunngerð bílsins og „yfirbygging-
in“ er svo tengd saman á hugvits-
samlegan hátt með segli og læsing-
um þannig að samskeytin verða
hvergi sjáanleg. Það tekur aðeins
örfáar mínútur að setja yfirbygg-
ingu á bílinn en allir hlutirnir eru
gerðir úr léttefnum, þ.e. trefjaplasti
og áli og hver þeirra vegur ekki
meira en 30 til 50 kg.
Mercedes-Benz sér fyrir sér að
eigendur VRC-bíla eignist aðeins
grunngerð bílsins en hinir ýmsu
hlutar yfírbyggingar fáist leigðir
gegn vægu verði á sérstökum þjón-
ustustöðvum. Það færi síðan eftir
árstíð eða persónulegum þörfum
VRC-eigenda hvaða hluti þeir
leigja. ■
MERCEDES-
Benz sér fyr-
ir sér VRC-
bílnum fylgi
þjónustu-
stöðvar þar
sem hægt er
að leigja sér
mismunandi
bílhluta eftir
þörfum hvers
og eins.
Hyundai Marcia
HYUNDAI Marcia heitir nýj-
asta gerðin frá stærsta bílfram-
leiðanda í Suður-Kóreu. Bíllinn
var afhjúpaður í Seoul síðastlið-
inn fimmtudag. Þetta er næst-
stærsti bíllinn í fjölbreyttri línu
Hyundai, sannkallaður glæsi-
vagn, með 2,5 lítra vél með
tveimur ofan á liggjandi knast-
ásum. Marcia verður fyrst um
sinn aðeins á markaði í Suður-
Kóreu og verðið er 30 þúsund
bandarikjadalir sem samsvarar
um nálægt 2 milljónir ÍSK.
Bílheimar innkalla
200 Opel Astra
BÍLHEIMAR hf. mun innkalla
um 200 Opel Astra bíla á næstu
vikum vegna framleiðslugalla í
eldsneytiskerfinu. Júlíus Vífill
Ingvarsson framkvæmdastjóri
Bílheima segir að um sé að ræða
galla í hosu frá bensínloki niður
í bensíngeymi sem getur valdið
rafsviði þegar bíllinn er fylltur
bensíni. Rafsviðið getur kveikt
lítinn loga við bensínlokið. Alls
hefur þurft að innkalla um 3
milljónir Opel/Vauxhall bíla af
árgerðum frá 1992, þar af helm-
inginn vegna fyrrnefnds gaila, en
hinn helmingurinn er af öllum
gerðum Opel/Vauxhall bíla sem
búnir eru líknarbelgjum. Þar er
um að ræða hugsanlegan galla
sem gæti komið í veg fyrir að
belgirnir blásist upp við árekstur.
1,9 VW innkallaðir
„Níu sinnum hafa komið upp til-
felli þar sem þetta hefur komið
upp í Astra. Það myndast dálítill
logi við bensínlokið en það hefur
aldrei orðið neitt tjón eða slys
vegna þessa,“ sagði Júlíus Vífíll.
Bílheimar munu skipta um
hosurnar eigendum bílanna að
kostnaðarlausu.
Þá hefur Volkswagen þurft að
innkalla 1,9 milljón bíla af gerð-
inni Golf og Jetta af árgerðunum
1983-1989 með 1,6 og 1,8 1 vél-
um, en að sögn Finnboga Eyjólfs-
sonar blaðafulltrúa Heklu er ekki
vitað til þess að kalla þurfí inn
bíla hérlendis.
Finnbogi sagði að gallinn sem
um væri að ræða í VW bílunum
væri leki frá miðstöð en varðaði
ekkert öryggisbúnað bílsins.
Þetta er mesta innköllun VW
frá upphafi og talsmenn fyrirtæk-
isins segja að hún muni kosta það
sem svarar nálægt 8,6 milljörðum
ÍSK.
Þriðja stóra innköllunin var svo
hjá 23. febrúar sl. þegar 274
þúsund bílar af gerðinni Ford
Taurus, Probe og Mercury Sable
af árgerð 1990 voru kallaðir inn
vegna galla í útblásturskerfí.
Þessar innkallanir sýna að þrátt
fyrir stóraukin gæði í bílafram-
leiðslu geta framleiðendur aldrei
útilokað að gallar komi upp í
framleiðslu ökutækja sem eru
samsett úr yfir 6 þúsund einstök-
um hlutum. ■