Morgunblaðið - 07.03.1995, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C
55. TBL. 83. ARG.
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Segja glæpi
ógna öryggi
Rússlands
Moskvu. Reuter.
Kanada-
menn hóta
tognrum
Ottawa. Reuter.
EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) for-
dæmdi í gær tveggja mánaða bann
Kanadamanna við grálúðuveiðum
undan austurströnd landsins.
Veiðibannið er svar Kanada-
manna við ákvörðun ESB að hafna
grálúðukvóta Norður-Atlantshafs-
fiskveiðiráðsins (NAFO).
NAFO hafði úthlutað ESB-
ríkjunum 3.400 tonna kvóta árið
1995 af 27.000 lesta heildarkvóta,
en ESB gerir kröfu til 18.630 tonna.
Skip þaðan veiddu 45.000 tonn árið
1993.
Emma Bonino, sem fer með sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjóm
ESB, sagði að bmgðist yrði hart
við hugsanlegri töku togara.
Kanadamenn gáfu í gær skip-
stjómm evrópskra togara sólar-
hringsfrest til að yfirgefa slóðina.
Hótaði Brian Tobin sjávarútvegs-
ráðherra, að hafist yrði handa í dag
um að stöðva veiðamar, færu togar-
arnir ekki sjálfviljugir.
ÖRYGGISRÁÐ Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta sagði í gær að skipu-
lögð glæpastarfsemi í landinu væri
orðin svo alvarlegt vandamál að hún
ógnaði öryggi ríkisins.
Öryggisráðið sagði að enginn
árangur hefði náðst í baráttunni
gegn glæpum. „Þetta ástand grefur
undan ríkisvaldinu, dregur úr tiltrú
þess, og ógnar öryggi Rússlands,"
sagði í yfirlýsingu frá skrifstofu for-
setans. Öryggisráðið gagnrýndi inn-
anríkisráðuneytið, saksóknara og
leynilögregluna fyrir slæma frammi-
stöðu í baráttunni gegn skipulögðum
glæpahópum.
í yfirlýsingunni sagði að baráttan
gegn glæpum liði fýrir fjárskort og
þingið og stjórnin voru gagnrýnd
fyrir aðgerðaleysi.
Ráðið kom saman eftir að vinsæll
sjónvarpsmaður, Vladíslav Lístjev,
var skotinn til bana á miðvikudag.
Talið er að leigumorðingjar hafi ver-
ið að verki.
Óttast lögregluríki
Ivan Rybkín, forseti Dúmunnar,
neðri deildar þingsins, sagði að 75
af hundraði þeirra, sem hefðu fram-
ið alvarlega glæpi í Rússlandi,
gengju enn lausir. „í eðlilegu samfé-
lagi teldist slíkt hlutfall óviðunandi,“
sagði hann.
Rússneskir embættismenn véku
í gær yfirsaksóknara og lögreglu-
stjóra Moskvuborgar frá störfum
að kröfu Jeltsíns, þrátt fyrir and-
stöðu borgarstjórans, Júrís Lúz-
hkovs, sem kann að verða keppi-
nautur Jeltsíns í forsetakosningun-
um á næsta ári.
Minna á
samábyrgð
heimsbyggð-
arinnar
BOUTROS Boutros-Ghali fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) setti ráðstefnu SÞ um
félagslega þróun í gær í Kaup-
mannahöfn. Hana sækja um
10.000 gestir, þar af á annað hund-
rað þjóðarleiðtogar, í ræðu sinni
sagði Boutros-Ghali það helsta
takmark ráðstefnunnar að minna
þjóðir heimsins á samábyrgð á
félagslegum aðbúnaði ibúa heims-
ins. Með því að taka félagslega
þróun til umræðu væri tekin af-
staða gegn fátækt og eymd í heim-
inum. Um leið og minnt væri á
samábyrgð væri þörf á félagsleg-
um sáttmála til að undirstrika
hana.
Poul Nyrup Rasmussen forsæt-
isráðherra Dana er forseti ráð-
stefnunnar. I ávarpi sínu sagði
hann að mánuðirnir og árin eftir
ráðstefnuna myndu leiða í Ijós
árangur hennar. Var myndin tek-
in er hann þáði fundarhamarinn
úr hendi Boutros-Ghali.
Enn hefur ekki náðst samstaða
um lokaávarp ráðstefnunnar. Ætl-
unin er að það verði staðfest i lok
vikunnar, er þjóðarleiðtogarnir
mæta til fundar. Það verður sett
upp sem boðorð, sem verða annað
hvort níu eða tíu. Auk þess verður
lögð fram nokkurs konar dagskrá,
sem þjóðir heimsins geta tekið
mið af i baráttu við félagslegt
óréttlæti.
Reuter
Eistland
Aherslan
til hægri
Tallinn. Reuter.
TIIT Váhi, sigurvegari í þingkosn-
ingunum í Eistlandi, ítrekaði í gær
stuðning sinn við kapitalisma og
fijálst markaðskerfi og sagði, að
hvergi yrði hvikað frá umbótastefn-
unni í efnahagslífínu.
„Eistlendingar þurfa hægristjórn
og hægristefnu,“ sagði Váhi, leiðtogi
kosningabandalags Sambands- og
Dreifbýlisflokksins, en bandalaginu
var spáð í gær rúmlega 30% at-
kvæða og 41 þingmanni af 101.
Næstur að atkvæðum kom Um-
bótaflokkurinn með 16,3% og 19
þingmenn og í þriðja sæti er Mið-
flokkurinn Edgars Savisaars, fyrr-
verandi forsætisráðherra, en honum
var spáð um 14% atkvæða og 16
þingmönnum. Föðurlandsflokkurinn,
sem verið hefur í stjórn frá 1992,
beið mikinn ósigur og var ekki spáð
nema sjö þingsætum.
Rússneskumælandi fólk, sem er
allt að þriðjungur landsmanna, fékk
nú að kjósa í fyrsta sinn og náði
flokkur þess, „Eistland er heimili
okkar", lágmarkinu eða 5%.
Níundi
ráðherr-
ann fýkur
London. Daily Telegpraph.
JOHN Major forsætisráðherra
Bretlands varð fyrir áfalli í
gær, er Robert Hughes, vís-
indaráðherra, sagði af sér
vegna framhjáhalds.
Hughes, sem þótti eiga
mikla pólitíska framtíð fyrir
sér, er níundi ráðherrann í
stjórn Majors sem segir af sér
vegna hneykslismála frá 1992.
John Horam var skipaður
arftaki Hughes í stjórninni.
Hann var á sínum tíma ráð-
herra í stjórn Verkamanna-
flokksins en gekk til liðs við
flokk sósíaldemókrata um
skeið áður en hann gekk í rað-
ir Ihaldsflokksins. Komst hann
á þing í síðustu kosningum í
kjördæminu Orpington.
SYRGJENDUR leggja blóm á gröf rússneska sjónvarpsmannsins Vladíslavs Lístjevs,
sem var myrtur í síðustu viku.
Reuter
Gengislækkun spænsku og portúgölsku gjaldmiðlanna
Greinir á um framtíð ERM
SKIPTAR skoðanir eru um hvaða áhrif gengis-
lækkun spænsku og portúgölsku gjaldmiðlanna,
sem ákveðin var í gærmorgun eftir 11 tíma auka-
fundi fjármálaráðs Evrópusambandsins (ESB),
hefur á framtíð Gengissamstarfs Evrópu (ERM)
og sameiginlegan gjaldmiðil ESB-ríkjanna.
Evrópskir sérfræðingar í gengismálum voru nær
sammála um að bæði gengissamstarfið og sameig-
inlegur gjaldmiðill væru hugsanlega úr sögunni.
Utanríkis- og fjármálaráðherrar nokkurra ESB-
ríkja lýstu gagnstæðri skoðun.
Ákvörðunin um að fella pesetann um 7% og
escudo um 3,5% þykir sýna, að ESB geti ekki
hindrað fall einstakra gjaldmiðla. Er þetta fjórða
gengislækkun pesetans á hálfu þriðja ári. Lækkun-
in þótti yfirvofandi þar sem spákaupmenn höfðu
losað sig við peseta að undanförnu vegna pólití-
skra og peningalegra hneykslismála á Spáni.
Talið var hugsanlegt, að bæði Bretar og ítalir
drægju sig út úr ERM.
Gengislækkunin þykir styrkja þau sjónarmið,
að efnahagsleg eining og myntbandalag eigi að
þróast á mismunandi hraða. Ölíkur efnahagslegur
bakgrunnur ESB-ríkjanna þýði, að sum þeirra
muni áfram eiga við óstöðugleika í gengismálum
að etja og færi því betur á því að skipta gengissam-
starfinu upp í tvo hópa eða skilja veikari gjaldmiðl-
ana eftir fyrst um sinn.
Gæti flýtt fyrir?
Heyrðist sú skoðun meðal hagfræðinga, að
gengisfellingin gæti jafnvel flýtt fyrir því að ríki,
sem búa við hlutfallslegan stöðugleika í gengismál-
um, taki upp sameiginlegan gjaldmiðil.
Mikil dollarakaup seðlabanka Bandaríkjanna og
annarra helstu iðnríkja heims í síðustu viku stöðv-
uðu ekki lækkun dollars í gær.
Sérfróðir sögðu, að einungis vaxtahækkun
bandaríska seðlabankans gæti stöðvað fallið hanns.
■ Kallar ekki á breytingu/8
■ Biðineftir hærra verði/18