Morgunblaðið - 08.03.1995, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
__________KOSNINGAR 8- APRÍL_
Atvinnumálastefna
Kvennalistans
Á NÆSTU árum
munu verða verulegar
breytingar á vinnu-
markaði sem munu
knýja okkur til þess
að hugsa á annan hátt
um atvinnumöguleika
og nýsköpun.
Hér á eftir mun ég
aðeins benda á nokkur
atriði til þess að vekja
athygli á þeirri alvöru
sem býður ráðamanna
og stjórnenda þjóðar-
innar á næstu árum.
Vinnumarkaður
framtíðar
Það er nokkuð ljóst
og svo hefur verið lengi, að störf-
um mun halda áfram að fækka í
hefbundnum atvinnugreinum eins
og sjávarútvegi og landbúnaði.
Ýmislegt bendir til þess að fækkun
starfa muni einnig vera í iðngrein-
um s.s. smíðum, múrverki og raf-
iðnaði.
Samsetning vinnuafls á vinnu-
markaði mun breytast verulega.
Fleiri munu hafa lengri mennt-
un og þessir aðilar óska eftir öðr-
um störfum en þeim sem hingað
til hafa verið í boði. Þessa þróun
má sjá glögglega í dag þegar aug-
lýst er eftir fólki með ákveðna
sérþekkingu eins og t.d. í við-
skiptafræði eða skyldum greinum.
Ekki er óalgengt að yfir 100 um-
sækjendur, með tilskilin próf, sæki
um starfið. Þetta gildir um margar
aðrar greinar. Aldurssamsetning
þjóðarinnar er að breytast veru-
lega. Þjóðin er smátt og smátt að
eldast og hlutfall fólks á starfs-
aldri mun aukast verulega á næstu
árum. Þetta gæti þýtt að á næstu
20 árum muni atvinnuþátttaka
aukast um 30%. Með öðrum orðum
má búast við að samkeppnin um
hvert starf aukist verulega.
Samkeppni mun aukast og ef
við eigum að geta staðist sam-
keppniskröfur, kallar það á mun
meiri framleiðni og allt annan
hugsunarhátt í öllum störfum en
við höfum tamið okkur. Það þarf
viðhorfsbreytingu til 'þess hlut-
verks að hafa með höndum starf
á vinnumarkaði. Atvinnurekendur
þurfa í ríkara mæli að nýta sér
þekkingu, færni og reynslu eigin
starfsmanna í því augnamiði að
efla og bæta rekstrarstöðu fyrir-
tækjanna. Þá þurfa
atvinnuframleiðendur
mun rýmri aðstöðu til
þess að geta samið við
sína starfsmenn.
Skuldsetning unga
fólksins
Samhliða miklum
breytingum á vinnu-
markaði hafa skuldir
þjóðarinnar aukist gíf-
urlega og lætur nærri
að erlendar skuldir
okkar séu nú allt að
60% af landsfram-
leiðslu. Óbreytt stefna
i þessum málum þýðir
að við munum - með
skuldum okkar og fjárfestingum -
ákvarða lífskjör unga fólksins. í
dag liggja ekki fyrir upplýsingar
um það hver greiðslubyrðin mun
verða eftir 5 til 15 ár. Þessar upp-
lýsingar liggja hinsvegar fýrir á
sumum Norðurlöndunum.
Þar hefur komið í ljós að hún
mun trúlega verða 20% meiri en
greiðslubyrði foreldranna ef takast
á veija það velferðarkerfi sem nú
er þekkt og til þess að eiga kost
á sömu menntun á svipuðum kjör-
um og hægt hefur verið hingað til.
Ekki er fjarri lagi að ætla, að
svipaðar niðurstöður komi í ljós
hérlendis. Þær staðreyndir sem
hér hafa verið tíundaðar þýða að
við þurfum að temja okkur nýjan
hugsunarhátt og leggja grunn að
nýrri atvinnumálastefnu sem tek-
ur mið af þeirri aðstöðu sem við
búum við í dag en horfir jafnframt
til framtíðar.
Blákaldur
raunveruleiki
Og hver er svo staðan í dag?
Til þess eins að viðhalda óbreyttri
stöðu á vinnumarkaði, og þá er
gert ráð fyrir a.m.k. 4% atvinnu-
leysi, þurfum við að búa til a.m.k.
1.000 ný störf á ári hveiju. Þá er
búið að taka tillit til þeirra sem
hætta á vinnumarkaði. Ef við ætl-
um að draga úr atvinnuleysinu,
þarf að búa til að meðaltali 2.000
ný störf á ári næstu 5 árin. Þetta
er varlega áætlað.
Milljónaaustur til skammtíma
átaksverkefna flokkast ekki undir
framtíðaratvinnumálastefnu - það
er plástur en ekki lækning. Upp-
bygging atvinnutækifæra er ná--
tengd uppbyggingu sjálfstrausts
og sjálsbjargarviðleitni einstakl-
inganna sem byggja þetta land.
Það er niðurlægjandi fyrir vel
menntaða þjóð — vel menntaða
atvinnuleysingja — að aðrir taki
endalaust ákvarðanir um það hvað
sá atvinnulausi á frekar að starfa
við, á meðan ijölmargar arðbærar
atvinnuskapandi hugmyndir hans
i-ykfalla á borðum ráðamanna
vegna þess að þær falla ekki und-
ir skilgreind átaksverkefni eða
úreltar reglur atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs.
Atvinnumálastefna
Kvennalistans byggir á öðru
gildismati
Kvennalistinn hefur ávallt hald-
ið fram að nýsköpunin fælist í
hinu smáa, efla þurfi frumkvæði,
horfa fram á veginn og taka mið
að því sem við köllum sjálfbæra
þróun. Sjálfbær þróun þýðir í
stuttu máli að við tökum ekki of
mikið af því sem við höfum, við
þurrkum ekki upp fiskimiðin og
Afskipti stjórnvalda af
atvinnurekstri eiga
að vera þau, að mati
Hansínu B. Einars-
dóttur, að efla mennta-
kerfið svo það þjóni at-
vinnulífinu sem bezt. ■
sjáum svo til, við sáum í stað þess
sem við uppskerum.
Stefnan var í fyrstu gjarnan
kennd við hina hagsýnu húsmóður
og miskunnarlaust spottuð. Ef við
lítum hinsvegar til annarra landa
og skoðum uppbyggingu atvinnu-
lífs t.d. í Bandaríkjunum og Evr-
ópu kemur glögglega í ljós að
þessi stefna hefur ekki einungis
skilað þessum þjóðum ótrúlegum
§ölda starfa, heldur líka reynst
mjög arðbær.
Meginástæðan er sú að litlar
einingar, lítil fyrirtæki, sem
sprottin eru upp úr frumkvæði og
visku þeirra sem hugmyndirnar
eiga, með markvissri aðstoð hins
opinbera, standast betur sam-
keppni og breytingar sem verða á
markaðinum, einmitt í krafti
smæðarinnar.
Þessi stefna er enn atvinnu-
málastefna Kvennalistans í hnot-
skurn. Við viljum leggja áherslu á
aðstoð við þá sem hafa frum-
kvæði, þar sem rik áhersla er lögð
á framtíðina og sjálfstæði ein-
staklinga og sveitarfélaga.
Við höfnun atvinnumálastefnu
sem byggist .á því að stjórnvöld
ákveði meira og minna hvað skuli
styrkja, hvað niðurgreitt og hvar
eigi að ijárfesta, oft með aðra
hagsmuni að leiðarljósi en hags-
muni heildarinnar eins og marg
oft hefur gerst t.d. í tengslum við
kvótakerfið í sjávarútvegi og enda-
lausar niðurgreiðslur og miðstýr-
ingu.
Hlutverk stjórnvalda
í markvissri
atvinnuuppbyggingu
Afskipti stjórnvalda af atvinnu-
rekstri eiga m.a. að felast í því
að efla menntakerfið þannig að
það þjóni atvinnulífinu sem best.
Þetta verður best gert með því að
leggja aukna áherslu á símenntun,
verkmenntun og rannsókna- og
þróunarvinnu.
Stjórnvöld eiga að skapa at-
vinnulifinu skilyrði til raunhæfrar
fjármögnunar í stað þess að veita
endalausa smástyrki, sem einungis
duga til þess að næra sjálfa hug-
myndina og síðan blasir ekkert
annað við en gjaldþrot.
Hlutverk stjórnvalda á að vera
að afla upplýsinga, veita aðstoð
við markvissa markaðssetningu á
landi, framleiðslu og hugviti svo
eitthvað sé nefnt. Við eigum fjöl-
marga möguleika til nýrra at-
vinnutækifæra, en til þess að geta
nýtt slíka möguleika þarf að koma
til ný hugsun — betri heildarsýn.
Hvað hafa mörg störf glatast við
gjaldþrot fyrirtækja?
Hversu mörg störf hefði verið
hægt að halda í — hversu mikla
vinnu var búið að leggja af mörk-
um? Ekki þarf að minnast á félags-
legar afleiðingar gjaldþrotanna.
Enn erum við á sömu buxunum
— fjölmörg fyrirtæki og ijölmarg-
ar hugmyndir, fjölmörg störf eru
í burðarliðnum en allt situr fast,
vegna þess að það vantar fjár-
mögnun til lengri tíma, það vantar
aðstoð við markaðssetningu og
vöruþróun.
Hansína B.
Einarsdóttir
Á sama tíma eru fleiri hundruð
ungmenni, með sérskóla- og há-
skólamenntun, atvinnulaus og fá
ekki starf við sitt hæfi. Fyrirtækin
hafa ekki bolmagn til þess að ráða
þau til starfa en í raun sárvantar
fyrirtækin þekkingu þeirra.
Eitt af hlutverkum stjórnvalda
er að sjá tengslin og hina gagn-
kvæmu hagsmuni sem felast í því
að nýta menntun og starfskrafta
unga fólksins í þágu atvinnulífsins
með því að efla samstarf skóla-
kerfisins og atvinnulífsins.
Atvinnumálastefna
Kvennalistans er framsækin
umhyggjustefna
Atvinnumálastefna Kvennalist-
ans felst í því að horfa til framtíð-
ar en jafnframt leggja Kvenna-
listakonur áherslu á umhyggju í
víðasta skilningi. Við eigum fjöl-
mörg tækifæri, ótal ónýtta mögu-
leika en við megum ekki gleyma,
að allt það sem við nú gerum,
þarf að skila sér í arði í framtíð-
inni. Til þess að svo geti orðið
þarf verulega viðhorfsbreytingu.
Við getum ekki fullyrt að flest
ný störf verði til í ferðaþjónustu
og tengdum greinum nema
tryggja jafnframt að það sem
dregur ferðamenn til landsins —
sem fyrst og fremst er sérstaða
íslenskrar náttúru, hreint loft og
land — verði áfram sérstaða okkar.
Gæðaframleiðsla á kjöti, sjávar-
afurðum og öðru, allt er þetta í
raun sömu skilyrðum háð — um-
hyggju fyrir náttúrunni — virðingu
fyrir lífinu í kringum okkur.
Til þess að tryggja þessa fram-
tíðarsýn og til þess að geta í raun
talað um ný atvinnutækifæri þarf
umhyggjusjónarmið kvenna að
ráða.
Þegar öllu er á botninn hvolft
eru það ást, umhyggja og friður
sem allir sækjast eftir og gefur
lifinu gildi.
Konum er fyllilega treystandi
til þess að leggja grunninn að
samfélaginu, byggja upp gildis-
matið og kenna umferðarreglurn-
ar. Hugmyndafræði, reynsla og
umhyggja kvenna hefur aldrei
fengið að njóta sín við stjórnvöl-
inn, þar sem ákvarðanir um lífs-
skilyrði og framtíð okkar allra eru
teknar, — þar ríkir enn hið kalda
mat efnishyggjunnar sem löngu
hefur runnið sitt skeið á enda.
Nú er mál að linni — móðir
náttúra krefst umhyggju —
mannfólkið þarf umhyggju og al-
veg eins og við konur lífnærum
þessa þjóð með okkar umhyggju
getum við ekki síður stýrt þessari
þjóð með hagsmuni heildarinnar
í huga.
Höfundur skipiir 1. sæti
framboðslista Kvennalistans í
Vesturlandskjördæmi.
Ólafur Ragiiar og úlfurinn
AÐ undanförnu hefur mátt
heyra Ólaf Ragnar Grímsson hrópa
ákaflega um að Framsókn og Sjálf-
stæðisflokkur séu búin að ganga
frá samkomulagi um ríkisstjórn að
loknum kosningum. Rétt si svona.
Að hætti hrópandans slær ÓRG
þessu fram án nokkurs rökstuðn-
ings, án nokkurra heimilda eða
m.ö.o. alveg út í bláinn. Minna
hróp þessi helst á dæmisöguna
frægu um manninn sem hræddi
fólk með úlfi ítrekað með þeim af-
leiðingum að fólkið hætti að taka
mark á honum. Úlfur, úlfur.
Fólk í fyrirrúmi
Glæsilegt flokksþing Framsókn-
ar samþykkti áherslur flokksins
fyrir kosningar undir kjörorðinu
„Fólk í fyrirrúmi." Þetta merkir að
við ætlum að beita okkur fyrir
ferskum vindum í atvinnulífi,
leggja áherslu á jöfnun lífskjara
og efla siðgæði í
stjórnmálum. Að auki
koma svo mörg önnur
mál er falla undir þessa
þijá þætti. Við setjum
á oddinn að efla skil-
yrði fjölskyldna og
fólks í landi okkar til
að lifa sómasamlegu
lífi. Þetta er stefna okk-
ar i megindráttum og
þar er auðvitað hvergi
minnst á aðra flokka
enda ekki tímabært.
, Halldór eða
Ólafur Ragnar
Undirbúningur Framsóknar-
manna hefur tekið mið af ofan-
greindu kjörorði. Við höfum útfært
þau þannig að trúverðug séu og
við loforð megi standa. í þeirri
vinnu er ekkert rúm fyrir hrellingar
Ólafs Ragnars enda ekki komið að
neinum viðræðum um
myndun næstu stjórn-
ar. Halldór Ásgríms-
son hefur stýrt mál-
efnavinnu _af skynsemi
og festu. Úlfahróp Ól-
afs Ragnars breyta
engu þar um. Kjósend-
ur vita líka að Halldór
er heiðarlegur stjórn-
málamaður og • trú-
verðugur. í raun næg-
ir að beina þeirri
spurningu til kjósenda
hvort þeim þyki trú-
verðugra - gjallandi
Ólafs Ragnars eða
málefnaleg vinna og heiðarleiki
Halldórs Ásgrímssonar?
Eftir kosningar?
í þættinum Á tali á Stöð 2 hinn
19. febrúar sl. taldi ÓRG sig og
Þjóðvaka eina valkost þeirra sem
Hver samstarfsaðilinn
verður, segir Hjálmar
Arnason, ræðst af mál-
efnum en ekki kreddum.
ÓRG einn skilgreinir vinstra lið.
Hann telur íhaldið vont, krata óa!-
andi, framsókn glataða og í þættin-
um afmáði hann kvennalistann al-
gjörlega eftir að talsmaður hans
neitaði að viðurkenna þrönga skil-
greiningu ÓRG á gömlum hugtök-
um. Æ, æ, kreddur formannsins
virðast vera að leiða hann í algjöra
einangrun og þröngsýni.
Kjörorð Framsóknar um Fólk í
fyrirrúmi lýsir vilja okkar til að
vinna í þágu flokksins. Engu máli
skiptir hvernig ÓRG flokkar mál-
efnin (minnist reyndar ekkert á þau
í úlfahrópi sínu). Eftir kosningar
verður auðvitað sest niður og stað-
an metin. Hveijir eru líklegastir til
að ná samkomulagi um málefni?
ÓRG veit að þá semja menn um
málefni en ekki kreddur. Þetta er
það sem Halldór Ásgrímsson hefur
sagt af fullri hreinskilni og ekkert
annað. Framsóknarmenn treysta
formanni sínum til að skila málefn-
um sínum í höfn. Hver samstarfs-
aðilinn verður hlýtur að ráðast af
málefnum en ekki kreddum. Æs-
ingur ÓRG er skiljanlegur í ljósi
þess að hann virðist vera að mála
sig út í horn á sama tíma og Fram-
sóknarflokkurinn nær til stöðugt
fleiri kjósenda með traust og heið-
arleika að vopni. Kjósendum líst
vel á stefnuna sem hefur fólk í
fyrirrúmi. Fólk er orðið þreytt á
gömlum tuggum ÓRG. Þó hann
vilji leggjast í skotgrafir og úlfa-
hróp við upphaf baráttunnar þá er
það bara hans vandamál. Við reyn-
um að vinna af einurð og tökum
eitt skref í einu.
Höfundur skipar 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi