Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 1
o
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
BLAD
Viðtal
3 JóhannJónsson
eigandi Lifrar-
samlagsins
í Eyjum
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
0 Eldisrækjan
tekur til sín
æ stærri hluta
af markaðinum
LOÐNUHROGNIN FRYST
• Vestmannaeyjum - Frysting
loðnuhrogna hófst í ísfélaginu á
sunnudaginn, er fryst voru hrogn
sem komu ór afla, sem landað var
ór Guðmundi VE. Hrognafryst-
ing hófst síðan i Vinnslustððiimi
f gær og eru menn vongóðir um
að vinnsla hrognanna gangi vel.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Loðnuhrognin eru orðin góð til
vinnslu, en bræla á miðunum hef-
ur hamlað veiðum og vinnslu.
Fryst voru um 100 tonn I ísfélag-
inu á sunnudag, en vegna skorts
á hráefni var ekki hægt að halda
áfram á mánudag.
Afkastamesta pökkunarlína
landsins til Sauðárkróks
FISKIÐJAN Skagfirðingur hf. hefur
ákveðið að breyta áherslum í bolfisk-
vinnslu félagsins með því að auka fram-
leiðslu úr frystu hráefni. Pöntuð hefur
verið til landsins pökkunarlína frá Japan
sem getur meðal annars pakkað í plastpoka af öllum stærðum. Einar Svansson
framkvæmdastjóri FISK segir að tækin, sem eru þau nýjustu á markaðnum,
séu þau afkastamestu í sjávarútvegi hér á landi og möguleikarnir séu óendanleg-
ir. Fjölbreytnin í fiskvinnslu fyrirtækisins muni því aukast til muna.
Vaxandi vinnsla
á frystu hráefni
Hefðbundin bolfískvinnsla hefur átt
undir högg að sækja nyrðra síðasta
kastið. Hráefnisöflun hefur sífellt orðið
erfiðari og segir Einar að til að mæta
þessum fyrirhuguðu breytingum hafi
þurft að segja öllu starfsfólki upp störf-
um í frystihúsinu. Búið er að ganga
frá öllum endurráðningum og fyrir
liggur að um tuttugu manns munu
ekki endurheimta vinnuna.
í notkun í apríl
Einar segir að verið sé að setja pökk-
unarlínuna upp í bráðabirgðahúsnæði
á eyrinni á Sauðárkróki og gerir ráð
fyrir að hún verði tekin í notkun í
byijun apríl. Umfangið verði síðan
metið er líða fer á árið en fyrirhugað
er að línan verði í framtíðinni til húsa
í fóðurstöð Melrakka. Að sögn Einars
er stefnt að því að gera þau húsa-
kynni að stórri pökkunarstöð fyrir
frystar afurðir. Frystiklefinn í Mel-
rakka er sá stærsti á Norðurlandi og
þótt víðar væri leitað; getur tekið um
1.000 tonn af fiski.
Mættl pakka
Bretlandsrækjunnl hér
Einar segir að Samheiji hf. á Akur-
eyri hafi i hyggju að festa kaup á
áþekkum tækjum se_m notuð verði til
að pakka rækju. „Ég var að skoða
tölur í Verinu um rækju sem Bretar
kaupa af okkur og staðreyndin er sú
að hægt væri að pakka stórum hluta
hennar hér á landi. Samheiji ætlar sér
núna að fara á næsta stig og vonandi
fylgja aðrir í kjölfarið. Það er mjög
eðlilegt að við skoðum þetta mál frek-
ar enda ástæðulaust að láta aðrar þjóð-
ir græða á okkur.“
Fréttir
Sóttu 3 skip
til Sakhalin
• TVEIR íslendingar, feðg-
arnir Ólafur Skagvík og
Sölvi Ólafsson, tóku nýlega
þátt í því að sækja þijó
umdeild skip til Sakhalin-
eyjar við Kyrrahafsströnd
Rósslands. Alþjóðlega fyrir-
tækið Caterpillar átti stóra
kröfu í skipin, en þau höfðu
síðan verið seld með ólög-
legum hætti til Rússlands.
Lögfræðingur Caterpillar
sá loks enga aðra lausn en
fara með skipstjórnarmenn
til Rússlands og taka skipin
lögtaki, með öllum tiltækum
ráðum og ekki öllum lögleg-
um og sigla þeim til Pusan
í Kóreu og þaðan til Seattle.
Mettúr á
rækjunni
• RÆKJUSKIPIÐ Pétur
Jónsson RE lagðist að
bryggju á sunnudag með
247 tonn af rækju eftir 29
daga úthald. Landað var úr
skipinu í gær og gerir
Bjarni Sveinsson skipstjóri
ráð fyrir að verðmæti aflans
sé á bilinu 75 til 80 milljón-
ir. „Það er ekki búið að
ganga frá sölu ennþá en við
erum með mikið af dýrri
rækju. Ég held til að mynda
að við séum með 78 tonn á
Japan en mjög hátt hlutfall
af aflanum fer í pökkun.“/4
Mikill
rússaþorskur
• ERLEND fiskiskip lönd-
uðu meira en 10.000 tonnum
af þorski í Noregi í janúar
síðastliðnum, eða meira en
nokkru sinni áður. Rússar
eru þar afkastamestir og
lönduðu þeir meiru en þús-
und tonnum á viku. Auk
þess lönduðu togarar frá
Evrópusambandinu milli
500 og 1.000 tonnum./3
Tveir ráðnir
á skip í Perú
• AXEL Jónsson skipstjóri
og fyrrum einn eigenda
Haukafells SF hefur ráðið
sig sem skipstjóra á Snæ-
fara VE, sem seldur hefur
verið til Agra Pesca í Perú.
Steinn Ágúst Baldvinsson,
vélstjóri, hefur einnig ráðið
sig á sama skip og halda
þeir félagar með Snæfar-
ann áleiðis til Perú eftir um
það bil tvær vikur. íslenzk
áhöfn verður á skipinu á
leiðinni til Panama./8
Markaðir
Norðmenn
auka laxeldið
• NORÐMENN eru enn að
auka laxeldi sitt og í síðustu
viku fyrir jólin í fyrra seldu
þeir alls 7.500 tonn. Salan í
öllum mánuðum síðasta ár
var meiri en salan árið áð-
ur. Verð á laxinum náði
hámarki um mitt ár, en
lækkaði hratt eftir það allt
til áramóta. Verð á fyrstu
mánuðum þessa árs var
einnig lágt. Veiðar á laxi við
Kyrrahafsströnd Bandaríkj-
anna gengu vel á síðasta ári
og alls bárust á land um
384.500 tonn, sem er litlu
meira en árið áður. Eftir-
spurn eftir laxi fer vaxandi
og þrátt fyrir stöðugan vöxt
í eldinu er reiknað með
þokkalegri tið fram undan.
NOREGUR:
Úflutningur á
ferskum laxi 1993-94
10
5
1 9 9 3 1 9 9 4
Hátt verð
á sardínu
Verðþróun á
uppsjávarfiski 1993-94
Sardínur —
1,4 dollarar/kg
<«•••....^...--------------
01-----—-----1-----------1-
1 9 9 3 1 9 9 4
• NOKKUR skortur virðist
vera á makríl á heimsmark-
aðnum um þessar mundir
og því er búizt við hækkandi
verði á honum. Verð í Japan
hefur verið stöðugt, meðal
annars vegna þess að Norð-
menn hafa dreift útflutningi
sínum á fleiri lönd. Verð á
sardínu hefur farið hækk-
andi og fæst hæsta verðið
fyrir hana af svo kölluðum
uppsjávarfiskum, en til
þeirra teljast meðal annarra
inakril, sardína, hrossa-
makríll, síl dog loðna./G