Morgunblaðið - 09.03.1995, Blaðsíða 1
V
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
FIMMTUDAGUR 9. MARZ
BLAD
D
FIMLEIKAR
Rússar með í
íslandsmótinu
Fimleikameistaramót íslands verður í Laugar-
dalshöll um helgina. Allt besta fimleikafólk
landsins tekur þátt í mótinu og rússnesku fím-
leikastrákarnir Ruslan Ovtchinikov, Gerplu, og
Sergei Maslenikov, Ármanni, verða með í liða-
keppninni og keppa sem gestir í einstaklings-
keppninni. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar taka
þátt í Islandsmóti. Búist er við spennandi keppni
í karlaflokki þar sem talið er að Guðjón Guð-
mundsson og Jóhannes Níels Sigurðsson, sem
hefur æft í Danmörku í vetur, komi til með að
berjast um sigurinn.
Mótið hefst á föstudagskvöld kl. 20.00 með
liðakeppni og jafnframt er keppni um rétt til
þátttöku í úrslitum á einstökum áhöldum.
HANDKNATTLEIKUR
Ekkert mál
fyrir Árna
VÍKINGAR léku við hvern sinn
fingur þegar þeir tóku á móti
bikarmeisturum KA í undanúr-
slitum Islandsmótsins í gær-
kvöldi. Að vísu var jafnræði með
liðunum hvað mörk varðar í 35
mínútur en þá settu heimamenn
í fluggír og norðanmenn sátu
eftir. Staðan var 14:13 í hálfleik
en lokatölur 32:24. Vörn KA hef-
ur verið aðal liðsins að undan-
förnu en hún var ekki uppá
marga fiska í gærkvöldi. Á
myndinni er boltinn á leiðinni i
KA-netið framhjá Sigmari Þresti
Óskarssyni eftir skot Árna Frið-
leifssonar án þess að jaxlarnir
Alfreð Gíslason til vinstri og
Erlingur Kristjánsson fái nokkuð
að gert.
■ Víkingar.../D4
KNATTSPYRNA
Shearer sá um Arsenal
Morgunblaðið/Kristinn
Alan Shearer reyndist Arsenal
erfiður á Highbury í gær-
kvöldi. Hann kom Blackburn á
bragðið á 4. mínútu og innsiglaði
sigurinn úr vítaspyrnu í byrjun
seinni hálfleiks en Blackburn vann
3:1 og er efst í ensku úrvalsdeild-
inni með 72 stig. Graeme Le Saux
gerði annað mark gestanna á 18.
mínútu en Stephen Morrow minnk-
aði muninn undir lokin.
Manchester United er þremur
stigum á eftir Blacbum en með
betri markatölu og eru möguleikar
liðanna á titlinum taldir jafnir hjá
veðmöngurum.
Lee Clark og Paul Kitson
tryggðu Newcastle 2:0 sigur gegn
West Ham en Newcastle er í þriðja
sæti með 60 stig eftir 32 leiki.
Útlitið var ekki bjart hjá Ipswich
eftir stundarfjórðung gegn Totten-
ham. Jurgen Klinsmann skoraði á
2. mínútu, 22. mark hans fyrir
Spurs á tímabilinu, og Nick
Barmby bætti öðru marki við
skömmu síðar en þá slakaði Spurs
á. Liðið vann samt 3:0 en Eddie
Younds gerði sjálfsmark skömmu
fyrir leikslok og er staða Ipswich
allt annað en góð.
Bolton í úrsllt
Bolton og Liverpool leika til úr-
slita í deildarbikarnum á Wembley
2. apríl, en Bolton, sem er efst í
1. deild, hefur ekki leikið til úrslita
í bikarkeppni síðan 1958. Liðið
vann Swindon 3:1 í gærkvöldi og
4:3 samanlagt en Liverpool tók
Crystal Palace 1:0 eins og í fyrri
leik Iiðanna á Anfield.
Swindon vann fyrri leikinn 2:1
og þegar Norðmaðurinn Jan Aage
Fjortoft skoraði snemma í seinni
hálfleik leit út fyrir að liðið væri á
leiðinni á Wembley. En Bruce Ri-
och, yfirþjálfari Bolton, var ekki á
sama máli og kaflaskipti urðu þeg-
ar hann skipti Mixu Paateleinen
og Richard Sneekes inn á. Fjórum
mínútum síðar jafnaði Jason
McAteer og fimm mínútum eftir
mark hans bætti Paateleinen öðru
marki við. John McGinlay kom
Bolton síðan áfram með marki
tveimur mínútum fyrir leikslok.
Robbie Fowler gerði 27. mark
sitt fyrir Liverpool á tímabilinu og
það tryggði liðinu sjöunda úrslita-
leikinn í deildarbikarnum sem er
met, en hann gerði einnig eina
markið í fyrri leik liðanna.
SUND
Arnar Freyr
og Logi
bæta sig
ARNAR Freyr Ólafsson og Logi
Kristjánsson, landsliðsmenn í
sundi, sem eru í Bandaríkjunum,
hafa bætt árangur sinn að undan-
förnu. Arnar synti 200 stiku skrið-
sund á 1.38,00 mín. og bætti
árangur sinn í vegalengdinni um
fimm sek. Logp synti 100 stiku
baksund á 55,5 sek. og bætti
árangur sinn um rúma eina og
hálfa sek. og þá synti hann 200
stiku baksund á 1.49,02 mín., bætti
sig um þrjár og hálfa sek.
Þeir félagar koma til landsins
í næstu viku til að taka þátt í ís-
landsmeistaramótinu innanhúss,
sem fer fram í Vestmannaeyjum
um aðra helgi.
KÖRFUKNATTLEIKUR: NJARÐVÍKINGAR HALDA UPPTEKNUM HÆTTI / D2