Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 1
Nám^
fiíinil ■<>
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995
BLAÐ
NÁMSKYNNING skólanna, Leitið og þið munuð finna,
verður haldin á þremur stöðum á morgun og stendur frá
kl. 13 til 18. Kynntar eru um 130 námsgreinar frá hátt í
40 skólum í átta kjörnum, auk þjónustuaðila. Kynningin
fer fram í fjórum byggingum Háskóla íslands og í hús-
næði Iðnskólans í Reykjavík og listaskólanna í Laugarnesi.
Skólarnir hafa verið með sameiginlega námskynningu
í nokkur ár. Fyrir ári var uppbyggingunni breytt þannig
að lögð var áhersla á kynningu námsgreina í kjörnum og
segir Ásta Kr. Ragnarsdóttir, forstöðumaður Námsráð-
gjafar Háskóia íslands, að vel hafi tekist til með fyrirkomu-
lagið. Talið er að milli átta og tíu þúsund manns hafi
sótt kynninguna, nemendur framhaldsskóla og grunn-
skóla, aðstandendur þeirra og fleiri.
„Hugmyndin með þessari uppbyggingu er ekki síst sú
að beina athygli nemenda að sem flestum námsmöguleik-
um íslenska skólakerfisins," segir Ásta. „Okkur finnst að
of rík tilhneiging sé til þess að líta svo á að eini möguleik-
inn til náms eftir framhaldsskóla sé Háskóli íslands. Það
nám sem hér er í boði hentar alls ekki öllum, einstakling-
amir eru með svo mismunandi áhugasvið."
„Ef fólk á betur heima í öðru námi en Háskólinn hefur
upp á að bjóða er betra að fólk uppgötvi það fyrr en
seinna. Þess vegna hefur hin hefðbundna skólakynning
verið leyst upp á Námskynningu, athyglinni er beint frá
skólunum sjálfum yfir á hið efnislega innihald námsins
og raunveruleg viðfangsefni þegar fólk kemur út í störf
að loknu námi,“ segir Ásta Kr. Ragnarsdóttir.
■ Dagskrá Námskynningar/C6-7