Morgunblaðið - 12.03.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MARZ 1995 21
LISTIR
Kviðdómur í vanda
KVIKMYNPIR
Iííóborgi n
Uns sekt er sönnuð „Trial
By Jury“ ★ Vz
Leikstjóri: Heywood Gould. Aðalhlutverk:
Joanne Whalley-Kilmer, Armand Assante,
Gabriel Byrne, William Hurt.
Spennumyndin Uns sekt er sönn-
uð (engin tengsl við samnefnt og
betra réttarhaldsdrama með Harri-
son Ford) segir frá ungri konu sem
situr í kviðdómi í réttarhöldum yfir
einum helsta glæpaforingja New
York-borgar. Svo öruggt sé að hann
verði ekki dæmdur sekur lætur
mafíósinn kúga konuna til að hleypa
öllu í bál og brand í kviðdóminum.
Þannig getur dómurinn ekki náð
samhljóða niðurstöðu þótt allt bendi
til að mafíósinn sé margfaldur
morðingi.
Ekki ókunnugt efni í réttarhalds-
drama en formúlumynd þessi gerir
ekki mikið nýtt með það. Hún virð-
ist jafnvel fara úr leið til að minna
okkur á hvað í raun hér er á ferð-
inni útjöskuð tugga. Það tekst ekki
að skapa nokkra spennu eða hasar
í frásögninni. Áhorfendurnir gjör-
þekkja persónumar og það sem
meira er, leikararnir þekkja þær
eins og lófana á sér. Reynt er að
ná einhveijum anda sakamála-
mynda fimmta áratugarins en það
virkar tilgerðarlegt.
Kannski hefði mátt gleyma um
stund að hér er gömul klisja á ferð-
inni ef einhver minnsta spenna
leiddi hugann frá þvi, en svo er
ekki. Sviplaus Joanne Whalley-
Kilmer fer með hlutverk fórnar-
lambsins sem sest í kviðdóminn
full réttlætiskenndar en kemst að
því að máláferli hafa ekkert með
réttlæti að gera þegar mafíósinn
nauðgar henni (reyndar er látið eins
og það skipti minnstu máli) og hót-
ar því að drepa son hennar og föð-
ur ef hún gerir ekki það sem hann
vill. Armand Assante leikur glæpa-
foringjann, allur reigður,. eins og
hani og með gamalkunna stæla úr
öðrum myndum en tekst hvorki að
vera ógnandi né sérlega greindar-
legur. Gabriel Byrne er saksóknar-
inn sem vill negla alla bófa ræki-
lega útaf einhverju óljósu í fortíð-
inni og William Hurt er kannski í
mesta lummuhlutverkinu því hann
leikur óþokka sem er hreint sérdeil-
is góður inn við beinið. Hurt lítur
veiklulega út með undarlega liðað
hárið eða kannski er hann bara
þreyttur á að fá ekkert bitastæðara.
Arnaldur Indriðason
;ni
/Ow /elsluferfl
"'Alsace í Frakklandi
.
.900
með Atias- eða
tcard og gegn framvísun
' Atias- og Gullkorthafa.
fyrir handliafa Atlas-
eða Gullkorta Eurocard
12. -16. maí
Fararstjóri: Jón Karl Einarsson
Alsace er eitt fegursta hérað Frakklands og draumaveröld þeirra
sem vilja kynnast góðum vínum og setjast að veisluborði með
krásum sem eiga fáa sína líka.
Ferðatilhögun: Flogið er til Lúxemborgar og ekið þaðan tii
Strassborgar þar sem gist er í tvær nætur. Strassborg er perlan í
Alsace, gömul og heillandi menningarborg og aðsetur Evrópuráðsins.
Skoðunarferðir um borgina, m.a. farið í gamla bæinn þar sem eru
fjölmargar verslanir með listmuni, fornmuni og vandaða minjagripi.
Ekið til Molsheim, miðstöðvar vínyrkju á þessum slóðum; vínsmökkun.
- Frá Strassborg er ekin svonefnd "Alsace-vínleið" til Colmar þar
sem gist er eina nótt. Skoðunarferð um þennan töfrandi bæ og ekið
m.a. til Eguisheim í vínsmökkun í "Cave Wolfsberger". Frá Colmar er
ekið til Nancy þar sem gefsttækifæri til að versla. Þaðan haldið til
Lúxemborgar. I Lúxemborg verður gist í eina nótt og mönnum gefst
kostur á að njóta þess sem höfuðborg hertogadæmisins býður
gestum sínum.
'lnnifalið: flug, gisting í tvibýli með morgunverði, akstur og skoðunarferðir
og íslenskfararstjórn.
URVAL UTSYN
Lágmúla 4 sími 569 9300. í Hafnarfiröi simi 565 2366.
í Keflavik sími 1 13 53. áAkureyri simi 2 50 00.
á Selfossi stmi 21 666 - og bjá umboðsmönnum um land allt.
BORGARLJOS
K E Ð
EVROPUVERÐ
N
EVROPUVERí)
☆3.1
Mínútugrill
EVRÓPUVERÐ
☆ ☆
Steinasteik
EVRÓPUVERÐ
☆ *☆
☆2.590
Hraðsuðukönnur
Brauðrist
EVRÓPUVERÐ
☆ *☆
☆
3.890,-☆
☆
Matvinnsluvél
EVRÓPUVERÐ
-A- ☆
Kaffíkanna
EVRÓPUVERÐ
☆ *☆
☆
.490,-*
☆
EVROPUVERÐ
Akranes Rafþfönustt Sigurdórs S:12156
ítafjöröur Straumur hf. S:3321
Akureyri Radiovinnustsfan S: 22117
Akureyri Siemsns-bú&in S: 27788
Egihstaöir Svainn Guömundsssn S:11438
Setíoss Áivirkinn hf S: 23480
Keflavík Raffaúö R.Ó. S: 13337
Reykjavík Borgarijós S:81268«
Reykjavík Húsgagnahöllin S:871199
Hafnarfjöröur Rafbúöin S: 53020
Höfn Verslunin lóniö S: 82125
BORGARLJÓS
K
A N