Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 49
FRETTIR
Ur dagbók lögreglunnar
Sérstaklega hugað að
ökuhraða næstu daga
10.-13. mars
LÖGREGLAN þurfti um helgina
að hafa afskipti af 65 einstakling-
um vegna ölvunar, auk fjölmargra
annarra í því ástandi er komu við
sögu ýmissa mála, s.s. hávaða og
ónæðis innan dyra og utan, lík-
amsmeiðinga, umferðaróhappa,
ölvunaraksturs og skemmdar-
verka. Af 420 skráðum tilvikum
í dagbók eru um 130 tengd ölvuðu
fólki með einum eða öðrum hætti
en það mun þó vera óvenju lágt
hlutfall eftir helgi. 34 gistu þó
fangageymslumar um helgina.
Tilkynnt var um 47 umferðar-
óhöpp. Af 7 tilvikum var um að
ræða meiðsli á fólki og í tveimur
tilvikum eru ökumenn grunaðir
um að hafa verið undir áhrifum
áfengis. Afskipti vom höfð af 12
öðram ökumönnum er grunaðir
voru um ölvun við akstur.
Spor þjófsins rakin
Snemma á mánudagsmorgun
var tilkynnt um innbrot í söluturn
í Vesturbænum. Innbrotsþjófur-
inn var á brott þegar lögreglan
kom á staðinn, en sjá mátti greini-
leg spor í nýföllnum snjónum. Þau
var auðveldlega hægt að rekja
að tilteknu húsi og þar var maður
handtekinn en hann hefur nokkr-
um sinnum áður komið við sögu
mála hjá lögreglu. Maðurinn hafði
ekkert upp úr krafsinu að þessu
sinni.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um að maður hefði lent í hrakn-
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
TVEIR óeinkennisklæddir lögreglumenn leiða bíl-
þjófinn, sem stal bíl á Gunnarsbraut, af vettvangi.
ingum í Bláfjöllum. Hann hefði
komist í skála Breiðabloks og
brotið sér þar leið inn til að kom-
ast í skjól. Maðurinn hafði verið
á ferð um Bláfjallaveg í átt að
Suðurlandsvegi þegar hann festi
bifreið sína í skafli skammt norð-
an gatnamótanna. Hann hafði
reynt í þtjár klukkustundir að
losa bifreiðina úr festunni en án
árangurs. Þá hafði hann tekið
ákvörðun um að ganga í átt að
skíðasvæðinu til að fá aðstoð.
Björgunarbifreið var send á stað-
inn. Rúmri klukkustund eftir að
maðurinn hringdi barst honum
aðstoð. Hann var síðan fluttur á
slysadeild Borgarspítalans. Vont
veður var og gekk á með hvössum
og dimmum éljum.
Stal sér mat
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í geymslu fjöl-
býlishúss við Yrsufell. Þar hafði
þjófur komist í frysti og stolið sér
mat, s.s. lambaskrokk og hangi-
kjötslæri. Auk þessa var tilkynnt
um 15 önnur innbrot um helgina.
Skömmu eftir miðnætti á laug-
ardag var tilkynnt um að maður
lægi í götunni við tiltekið hús við
Flókagötu. I ljós kom að þar hafði
maður, sem stolið hafði bifreið,
ekið á tvær mannlausar bifreiðir
og skemmt þær. Hann hafði tek-
ið bifreiðina ófrjálsri hendi á
Gunnarsbraut, en eigandinn hafði
orðið hans var. Sá hafði elt þjóf-
inn á annarri bifreið og náð til
hans á Flókagötu. Manninum
tókst þar að hefta för þjófsins.
Þjófurinn, sem virtist undir áhrif-
um áfengis, var færður á lög-
reglustöðina og boðin næturgist-
ing á vegum hins opinbera.
Um nóttina sást til tveggja
manna vera að reyna að komast
inn í fyrirtæki við Skipholt. Þeir
voru handteknir þar skammt frá
og vistaðir í fangageymslu.
Á 118 í hálkunni
Á laugardagsmorgun varð
harður árekstur á gatnamótum
Hringbrautar og Snorrabrautar.
Þar skullu saman strætisvagn og
fólksbifreið. Ökumenn beggja
ökutækjanna voru fluttir á slysa-
deild.
Þrátt fyrir takmarkað færi var
ökumaður mældur á 118 km
hraða á Sæbraut á laugardags-
kvöld en leyfilegur hámarkshraði
við bestu aðstæður þar er 60
km/klst. Ökumaðurinn var færð-
ur á lögreglustöðina og sviptur
ökuréttindum. Næstu daga mun
lögreglan á Suðvesturlandi huga
sérstaklega að ökuhraða á vegum
á svæðinu. Þeir ökumenn, sem
aka yfir leyfileg hámarkshraða-
mörk, geta búist við að vera
stöðvaðir, áminntir, sektaðir eða
sviptir ökuréttindum, allt eftir
atvikum. Ökumenn eru því hvatt-
ir til að aka ekki hraðar en leyfi-
leg mörk segja til um eða eftir
aðstæðum eins og vera ber. Rétt
er að minna á að marsmánuður
hefur verið með mjög hátt
óhappahlutfall og því full ástæða
fyrir ökumenn að fara varlega
um þessar mundir.
Bifreið valt á Þingvallavegi
Aðfaranótt laugardags varð
gangandi vegfarandi fyrir bifreið
í Lækjargötu. Hann var fluttur á
slysadeild. Á föstudag varð harð-
ur árekstur þriggja bifreiða á
gatnamótum Háaleitisbrautar og
Miklubrautar. Ökumáður einnar
þeirra var fluttur á slysadeild.
Þá var síðdegis tilkynnt um um-
ferðaslys á Þingvallavegi við
Seljabrekku. Þar valt bifreið, en
ökumaðurinn fór sjálfur á slysa-
deild.
Samþykktir vegna kennaraverkfallsins
Komið verði í
veg fyrir rösk-
un á menntun
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
samþykktir vegna kennaraverkfalls-
ins. I þeim flestum er þess getið,
að verkfallið sé farið að hafa áhrif
á fjölda fjölskyldna í landinu og
hafi komið róti á börn og unglinga.
Er skorað á samninganefndir kenn-
ara og ríkisins “ að sýna þá ábyrgð
gagnvart nemendum og foreldrum
að ganga af fullri einurð til samn-
inga.“ Einnig hafa kennarar fundað
til styrktar málstað sínum og þeim
borist stuðningsyfírlýsingar. Hér á
eftir verður getið um nokkrar sam-
þykktir af þessu tilefni.
Komið verði í veg fyrir
röskun á menntun
Skólanefnd Klébergsskóla á Kjal-
arnesi harmar það ástand sem ríkir
í skólamálum og þau varanlegu áhrif
sem það mun hafa á það skólafólk
sem verður fyrir truflunum á mennt-
un þess vegna. Þá segir og: “Jafn-
framt er þess krafist að gerðar verði
þær ráðstafanir að komið verði í veg
fyrir að röskun verði á menntun
barna og unglinga á næstu árum
því slíkt grefur undan virðingu nem-
enda fyrir kennurum og samstarfi
kennara og foreldra."
Stuðningur
við kennara
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga styður kennara í kröfum sínum
fyrir bættum kjörum og breyttu
skipulagi í skólastarfi. Skólahald
verði hins vegar ekki bætt nema
launakerfi kennara verði endurskoð-
að og styðja hjúkrunarfræðingar
kröfur kennara um hækkun grunn-
launa og um launahækkanir vegna
breytinga á skólastarfi.
Fundur kennara á Austurlandi
segir m.a., að verði ekki samið tafar-
laust muni hljótast af því óbætanlegt
tjón á skólastarfi í landinu. Það er
álit kennara að stjórnvöld beri höfuð-
ábyrgð á því ófremdarástandi sem
skapast heffur og þeir bera fullt
traust til samninganefndar kennara
og hvetja hana til að hvika ekki frá
þeirri stefnu sem mótuð hefur verið.
Frá Verkfallsstjórn Vesturlands
Kennarar á Vesturlandi héldu sinn
fund á Akranesi. í samþykkt þeirra
segir m.a. ,að nú sé kominn tími til
að ríkisvaldið standi við fögru orðin
sem látin hafa verið falla og bæti
kjör kennara strax. Fundurinn lýsti
ánægju með frammistöðu samninga-
nefndar kennara og hvatti til að
ekki verði slegið af kröfum um bætt
laun og kjör kennara.
Velferð barnanna
verði leiðarljós
Stjórn foreldrafélags Langholts-
skóla hvetur til samningagerðar með
velferð barnanna að leiðarljósi og
skólanefnd Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi lýsir áhyggjum sín-
um yfir því ástandi sem skapast
hefur vegna verkfalls kennara og
þeim ófyrirsjáanlegu afleiðingum
sem það kann að hafa á skólastarf
vorannar.
Predikanir Billys
Grahams samtímis
í 150 löndum
HALDNAR verða
samkomur á vegum
hins þekkta predikara
Billy Graham samtím-
is í 150 löndum með
hjálp nýjustu gervi-
hnattatækni 16.-18.
mars nk. (fimmtudag,
föstudag og laugar-
dag). Hér á landi verða
samkomurnar haldnar
í nýju íþróttahúsi
Fram við Safamýri og
í Glerárkirkju á Akur-
eyri og hefjast kl. 20.
Samkomunum er
fyrst og fremst ætlað Billy Graham
að höfða til almenn-
ings sem sjaldan sækir
kirkju og hefur takmarkaða
reynslu af kristilegu starfi. Þar
munu augu og eyru fólks beinast
til San Juan á Púertó Ríkó með
hjálp breiðtjalds og nýjustu gervi-
hnattatækni. Auk predikunar Bil-
lys Graham munu samkomugestir
njóta tónlistarflutnings margra af
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGINN
11.03.1995
1 W
29)(38
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 0 8.923.433
2.piús5^ 100.710
3. 4af 5 171 7.110
4. 3af 5 5.494 510
Heildarvinningsupphæö: 13.646.153
m ;
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
ÍTALSKI BOLTINN
10. leikvika , I2.mars 1995
Nr.
1.
2.
3.
~T
5.
6.
7.
8.
9.
"ÍÖ7
11.
12.
13.
Leikur:
Röðin:
Parma - Sampdoria l - -
Roma-Torino -X-
Bari - Inter - - 2
Cremonese - Cagliari 1 - -
Juventus - Foggia' 1 - -
Genoa - Brescia 1 - -
Milan - Padova 1 - -
Fiorentina - Reggiana - X -
Ancona - lldincsc - - 2
Palermo - Perugia
Pescara - Piaccnza
Como - Fid.Andria
Venezia - Verona
1 - -
- - 2
1 - -
Heildarvinningsupphæðin:
17 milljón krónur
13 réttir: | 382.130 kr.
12 réttir: 6.530 kr.
11 réttir: 570 kr.
10 réttir: | 180 kr.
fremstu tónlistar-
manna kristilega geir-
ans, segir í fréttatil-
kynningu. Rétt er að
geta þess að allt efni
sem kemur að utan
verður túlkað á ís-
lensku.
Hér er samkirkju-
legt samkomuátak að
ræða. Þjóðkirkjan,
með leikmannahreyf-
ingar eins og KFUM
og KFUK, Ungt fólk
með hlutverk, Hjálp-
ræðisherinn og
Kristniboðssamband-
ið innanborðs, stendur
að átakinu í góðri
samvinnu við hvítasunnumenn og
Veginn, kristið samfélag.
Aðgangur að samkomunum er
ókeypis en samskot verða meðal
samkomugesta 'til að mæta kostn-
aðinum sem er samkomunni fylgj-
andi.
10. leikvika, 11. mars 1995
Nr. Leikur:
Röðin:
Livcrpool - Tottcnham - - 2
C. Palace - Wolves - X -
Coventry - Blaekburn - X -
Chelsea - Leeds - - 2
Lciecster - Notth For. - - 2
Sheff. Wed - Wimblcdor - - 2
West Ham - Norwich - X -
Bolton - Middlcsbro 1 - -
Notts Cnty - Shcff. Utd 1 - -
Southcnd - Luton 1 - -
Burnlcy - Oldham 1 - -
Sunderland - Stoke 1 - -
Charlton - Portsmouth 1 - -
llcildarvinningsupphæðin:
105 milljón krónur
13 réttir: ] 14.056.070
12 réttir: 146.280
11 réttir: j™ 10.310
10 réttir: [ 2.580 1
kr.
kr.
kr.
kr.
Fræðslufundur
um áfallahjálp
FÉLAG leiðbeinenda í skyndihjálp
heldur í samvinnu við Rauða kross
íslands fræðslufund um áfallastreitu
- sálræna skyndihjálp 15. mars nk. á
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, og hefst
fundurinn kl. 20.
Fyrirlesarar eru þau Rúdólf Adolfs-
son, geðhjúkrunarfræðingur, og
Borghildur Einarsdóttir, geðlæknir.
Mótöld í úrvali
lnnbyggð og utanáltggjandi
I*C - Macintosh - PCMCIA14100 band - 28S00 baud
frákr. 14.221,-
> i n v> >11 > > I" H
V *BQÐEIND-
Austurströnd 12. Síini 561-2061. Fax 561-2081