Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 1
 C 1995 MIDVIKUDAGUR 15. MARZ BLAÐ SKVASS KNATTSPYRNA Bolton tilbúið að greiða 200 þús. pund fyrir Guðna ALLT er enn óráðið með hvort Guðni Bergsson, landsliðsfyr- irliði í knattspyrnu, gerir samning við enska 1. deildarliðið Bolton. Guðni hefur áhuga á að ganga til liðs við Bolton og Bruce Rioch, fram- kvæmdastjóri félags- ins, vill endilega gera samning við Guðna, samkvæmt upplýsing- um frá félaginu og er tilbúinn að greiða 200 þúsund pund fyrir hann. Vandamálin virðast samt vera nokkur því samkvæmt heimildum frá Bolton vill Valur fá eitthvað greitt gangi Guðni til liðs við Bolton og það flækir málið ef Rioch getur ekki fengið á hreint hveijum hann á að greiða fyrir íslenska landsliðsmanninn. Theódór S. Halldórsson, formaður knatt- spyrnudeildar Vals, sagði að Valsmenn myndu ekki setja stein í götu Guðna við samningagerð við Bolton. „ Við erum að reyna að hjálpa honum að leysa þetta mál, en auðvitað tengist þetta Val því hann fer úr Val. En þetta snýst fyrst og fremst um það hvort Tottenham hafi þriggja ára sölurétt á honum eða hvort Guðni hafi fijálsan sölurétt að hluta tii.“ HANDKNATTLEIKUR Guðjón L. og Gunn- ar dæma í Kuwait HANDKNATTLEIKSDÓMARARNIR Guðjón L. Sigurðsson og Gunnar Kjartansson eru í Kuwait, þar sem þeir dæma í úrslitakeppni meistaradeildarinnar þar í landi. Stefán Arn- aldsson og Rögnvald Erlingsson eru í Þýska- landi, þar sem þeir dæma leik Hameln og Gran- ollers í undaúrslitum EHF-keppninnar í kvöld — fyrri leik liðanna. Klm Magnús Nlelsen tekur þátt í Opna breska meistaramótlnu í skvassl í Cardiff. Fyrstur íslendinga til að keppa á Opna breska meistaramótinu Þetta verður rosa- lega spennandi SKVASSSPILARINN Kim Magnús Nielsen verður fyrsti íslendingurinn til að taka þátt í Opna breska meistaramótinu í skvassi, sem hefst í Cardiff í Wales á morgun, en Kim Magn- ús heldur utan í dag. Kim Magnús mætir Pakistanan- um Mohammad Hafeez í fyrstu umferð undankeppninnar og eigast þeir við á morgun. „Ég veit akkúrat ekkert um þennan Pakist- ana, en veit að þeir eru mjög góðir í skvassi. Sem dæmi má nefna að árið 1993 byrjaði Zarak Khan í for- keppninni en hann komst í gegnum allt o g datt ekki út fyrr en í undanúr- slitum. Núna er hann í tólfta sæti í heiminum og verður meðal kepp- enda núna,“ sagði Kim Magnús í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég er mjög jarðbundinn í sam- bandi við þátttöku mína í þessu móti og markmiðið er að vinna ein- hveija leiki. Þetta verður rosalega spennandi og ég gæti best trúað að maður yrði í trans allan tímann, að sjá alla þá bestu. Mótið er það stærsta og sterkasta sem haldið er í heiminum á hveiju ári þannig að það má líkja þess við að einhver Islendingur færi að keppa í tennis á Wimbledon. Það hefur verið erfítt að komast inn. Ég sótti um í fyrra en komst ekki inn þá.“ Kim Magnús æfir skvass sex daga vikunnar í Veggsporti og að undanförnu hefur hann æft enn meira og með stuðningi Skandia og . Einskips getur hann farið á þetta ~fnót. Hann fer einn á mótið og seg- ir að það hefði verið betra að hafa einhvern með sér, en mörg dýr verk- efni séu á þessu ári og það kosti allt peninga. Hann segir að til standi að halda Norðurlandamót hér á land fljótlega og að alþjóðamótið í febr- úar hafí kostað sitt. Kim Magnús segist ætla að gera sitt besta, en talsvert yfir 200 kepp- endur verða á mótinu. „Ég held ég hafi næga tækni til að standa mig vel en það sem vantar er meiri hraði inn í leikinn og þeim hraða næ ég ekki hér heirna," sagði Kim Magnús. Morgunblaðið/Sverrir KORFUKNATTLEIKUR Keflavíkurstúlkur deildarmeistarar KEFL AVÍKURSTÚLKUR tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna með því að sigra ÍS, 79:33, á heimavelli sínum í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er um deildarmeistaratilinn í kvennaflokki, en Keflavík hefur verið íslandsmeistari kvenna síðustu þijú árin. „Þetta var mun betra en við bjuggumst við því við misstum þtjár úr byijunarliðinu okkar fráþví í fyrra,“ sagði Anna María Sveinsdóttir, fyrirliði Keflavíkurliðsins, eftir sigurinn í gærkvöldi. „Ungu stúlkurnar sem tóku við hlutverki þeirra stúlkna sem yfirgáfu okkur hafa staðið sig mjög vel. Við töpuðum aðeins þremur leikjum, fyrir KR, Breiðabliki og Grindavík. Við eigum enn eftir einn leik, gegn KR, í deildinni en úrslit í þeim leik skipta okkur ekki máli. Svo er bara að halda áfram á sömu braut í úrslitakeppn- inni ogtaka íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð,“ sagði fyrirliðinn. Keflavík mætir Grindavík í undanúrlitum um íslandsmeistara- titilinn, en í hinum undanúrslitaleiknum mætast KR og Breiða- blik. Fyrstu leikirnir í undanúrslitum fara fram 24. mars. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki leikur til úrslita og þá þarf þrjá vinninga. . BORÐTENNIS: VIKINGUR STODVAÐ119 ARA SIGURGONGU KR/C4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.