Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 1
ÞRAUTIR \
Heimilisfang:
MYIMDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
E
BLAÐ
PRENTSMIÐJA MORGUNBLA ÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 J
Afmæli indíánastelpunnar
Mogginn
Pétur Atli Antonsson, 10
ára, Laugavöllum 19, Egils-
stöðum, lét þessa frábæru
mynd fylgja með í umslagi
með lituðum Hefðarköttum.
Þú ert mjög drátthagur, svo
ekki sé dýpra tekið í árinni,
Pétur Atli. Kærar þakkir.
Einu sinni var indíánastelpa
sem átti bráðum afmæli. Hana
langaði mjög mikið í indíánatjald,
stórt og fallegt. Hún bauð mörg-
um indíánakrökkum í afmælið.
Svo rann afmælisdagurinn
upp, það var mjög heitt þennan
dag.
Allir krakkarnir komu í af-
mælið. í miðju afmælinu kom
pabbi hennar og færði henni
stóran pakka og í pakkanum
var stórt og fallegt indíána-
tjald og ein rauð og ein blá
fjöður.
Endir.
Höfundur þessarar bráð-
skemmtilegu og spennandi
sögu er Hildigunnur Úlfsdótt-
ir, 9 ára, Aragötu 7, Reykja-
vík. Hildigunnur mynd-
skreytti söguna líka svo hún
blasir við sjónum bráðlifandi.
Hafðu kærar þakkir fyrir.
Hefdarketf irnir í fallhlíf um
Kettlingarnir þrír svífa niður
og það sést í lappimar á möm-
munni og pabbanum (Hróa) efst,
að sögn höfundar. Einn er að
lenda á milli hóla.
Yst til hægri sést í þijá vini
pabbans eða Hróa á hvolfi - fall-
andi til jarðar.
Fuglinn segir: „Skrýtið - fljúg-
andi kettir!“
Þessi skemmtilega mynd og
spennandi saga eru eftir hinn 5
ára Sigurstein J. Gunnarsson,
Eggertsgötu 12, Reykjavík.
Já, vel á minnst, krakkar, þær
streyma í stríðum straumum til
okkar myndirnar frá ykkur í lita-
leiknum um Hefðarkettina. Þeg-
ar þessi orð eru sett á tölvuna
hafa nokkur hundruð umslög
borist til stúlknanna í móttök-
unni hér á Mogganum í Kringl-
unni 1. Þakka ykkur fyrir dugn-
aðinn!
SKIPTIMARKAÐUR
Mig vantar...
og þarf að losa
mig við ...
Krakkar!
Hvernig væri nú að nýta
sér Myndasögur Moggans og
koma á fót skiptimarkaði.
Mogginn kemur út sex
daga vikunnar í meira en
50.000 eintökum, pæliði í
því. Og eins og þið vitið,
koma Myndasögurnar út á
miðvikudögum. Það ætti því
að vera um auðugan garð að
gresja hvað skiptin áhrærir.
Eitt ykkar vantar kannski
tiltekinn límmiða, annað
tölvuleik, þriðja postulíns-
bolla, fjórða fjarstýrt módel,
geisladisk, kassabíl,
barbídúkku, blað, bók eða
eitthvað allt annað. Þá er nú
mikill munur að geta sent út
neyðarkall til fleiri þúsund
krakka í gegnum gamla góða
Moggann.
Þið sendið okkur bréf með
óskum ykkar um skipti og
auðvitað verðið þið að láta
fullt nafn og heimilisfang
fylgja með. Við birtum nafnið
ykkar og heimilisfang og
hvers þið óskið. Síðan hafið
þið samband hvert við annað
eftir þörfum og - kannski
eignist þið nýja vini í kaup-
bæti!
Við ríðum á vaðið hér á
síðunni með bréfi sem barst
til okkar með óskum um
skipti.
Heimilisfang Skiptimark-
aðarins er:
Myndasögur Moggans
Skiptimarkaður
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík