Morgunblaðið - 16.03.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1995
VIÐSKIPTI
Landmælingar fá
mengunarvamarkerfi
Fullkominn
búnaður gerir
úrgagnsefnin
skaðlaus
LANDMÆLINGAR íslands tóku
nýlega í notkun fullkomið
mengunarvarnarkerfi í rekstri sín-
um, vegna notkunar framköllunar-
efna.
Umfangsmikil framköllun fer
fram hjá stofnuninni við loft-
mynda- og kortagerð, að því er
fram kemur í frétt. Við þá fram-
leiðslu eru framköllunarefni notuð
í töluverðu magni og kemur tækja-
búnaðurinn algerlega í veg fyrir
losun framköllunarefnanna í frá-
veitu. í samræmi við mengunar-
varnarreglugerð ber að gera efnin
skaðlaus fyrir losun í fráveitu.
í fréttinni kemur fram að al-
gengt hefur verið í ljósmynda- og
prentiðnaði að vinna úr vökvunum
skaðleg eiturefni, svo sem silfur,
en það er aðeins hægt að takmörk-
uðu leyti, sem eftir þá meðferð er
veitt í fráveitu og því áfram meng-
unarvaldur.
Ennfremur hefur, á mörgum
stöðum, efnum verið safnað eftir
notkun og þau flutt í viðurkennda
förgun. Það krefst hins vegar mik-
illar vinnu og aukameðhöndlunar
með vökvana, sem teljast til spilli-
efna og setja starfsemi í hættu
þar sem þau geta orsakað margs-
konar heilsukvilla.
Fyrir utan mikla vinnu við söfn-
un er kostnaður við förgun umtals-
verður, en með tækjabúnaði þeim
er Landmælingar íslands hafa sett
upp er ferill framköllunarvökva
nú í gegnum sjálfvirk eyðingar-
tæki, í lokuðu kerfi og aukameð-
höndlun efna vegna eyðingar heyr-
ir sögunni til. Förgunarkostnaður
verður nánast enginn, og í reynd
skapast verðmæti sem frekari end-
urvinnslu skapar tekjur. Tækja-
búnaðurinn eyðir vökvanum í lok-
aðri hringrás og er afkastamikill.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 2. tl 4. gr.
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til
samræmis við ný lög um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi
síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlega tillögur, svo og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum
til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á skrifstofu félagsins Grensásvegi 11,2. hæð, frá og með
23. mars, fram að hádegi fundardags.
Stjórn Jarðborana hf.
ilh JARÐBORANIR HF
FRAMKÖLLUN loftmynda fer fram í stærstu framköllunarvél
landsins, en mengunarvarnarbúnaðurinn er hér í forgrunni.
Búnaðurinn er einfaldur í notkun
og krefst einungis lágmarkseftir-
lits af hálfu starfsmanna.
í fréttinni segir að með notkun
búnaðarins hafi Landmælingar
íslands stigið brautryðjendaspor
við meðferð spilliefna í ljósmynda-
rekstri á íslandi, á notkunarstað,
og komið algerlega í veg fyrir los-
un í fráveitu. Fáir hafi tileinkað
sér þessa aðferð hér á landi en
hún sé algeng víða erlendis. Æski-
legt væri að fyrirtæki hérlendis
tileinki sér sömu aðferð og stuðli
þannig að algerlega mengunar-
Iausum rekstri, til hagsbóta fyrir
umhverfið. Með tilkomu mengun-
arvarna hjá Landmælingum ís-
lands, í ljósmynda- og kortagerð,
sé ýtrustu kröfum um umhverfis-
vernd mætt.
Hvar er skýrslan mfn, hvar er spjaldskráin,
hvar er stóra, gula, tveggja gata mappan mtn?
Eina rétta svarið við óreiðu eru góðar hirslur. Skjalaskápar eru réttu
hirslumar á skrifstofuna eða hvem þann stað þar sem röð og regla
þarf að vera á skjölum, möppum og öðrum gögnum.
Kynnið ykkur vandaða og góða skjalaskápa, bæði frá Bisley og
NobörÞeir fást í mörgum stærðum og bjóða upp á fjölbreytta
notkunarmöguleika.
Fáið nánari upplýsingar hjá
Bedco&Mathiesenbf., J
Bæjarhrauni 10,
Hafnarfirði.
Sími 565 1000.
Fyrirtæki — fyrirtæki
Fiársterkur aðili leitar fvrirtækis til kauns
að fullu eða að hluta.
Fullum trúnaði heitið.
Öllum fyrirspurnum svarað.
Svar merkt: „Fyrirtæki - 15777“sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 21. mars.
YKKAR MAÐUR í ÞYSKALANDI
Hafðu samband við
Michael næst
þegar þú þarft
að flytja vörur
til eða frá Þýskalandi
Michael Sigþórsson hefur áralanga
reynslu af inn- og útflutningsmálum.
Hann er fulltrúi Samskipa
í Þýskalandi. Á hverjum miðvikudegi
er skip frá Samskipum í Þýskalandi
og þaðan bjóða Samskip hagstæða
for- og framhaldsflutninga með
traustum samstarfsaðilum.
Ef þú þarft að flytja vörur til eða frá
Þýskalandi er Michael þinn maður.
SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími 569 8300 - Fax 569 8327