Morgunblaðið - 16.03.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMAIMNA
ÍWttrpjttMaMt*
D
1995
FIMMTUDAGUR 16. MARZ
BLAÐ
Framstúlkurnar mæta Stjörnunni
Morgunblaðið/Kristinn
FRAM tryggði sér rétt til að lelka gegn Stjörnunni í úrslltaviðureign kvenna, eftir að hafa lagt Víklng að velli
í gærkvöldi, 20:18. Hér á myndlnni fagna leikmenn Fram sigrinum — Kristín Hjaltested, Hugrún Þorsteinsdótt-
ir, systurnar Díana og Guðríður Guðjónsdætur og Kolbrún Jóhannsdóttlr.
Guðríður fékk leyfi til
að leika með spelkur
GUÐRÍÐUR Guðjónsdóttir, þjálfari og leikmaður Fram, lét sig
hafa það — að leika með sínu liði gegn Víkingum, þó að hún sé
ekki búinn að jafna sig fullkomlega eftir handarbrot. Hún lék
aðeins í vörninni og átti frábærar sendingar fram í hraðaupp-
hlaup. „Læknirinn gaf mér leyfi ef ég spilaði með spelku og ég
finn ekkert fyrir meiðslunum, en á erfitt með að „góma“ knöttinn.
Annars er ég að byrja að þjálfa upp fingurnar — í kvöld,“ sagði
Guðríður eftir leikinn, en hún hefur verið frá í sjö vikur. „Þetta
var ofboðsleg spenna og vörnin var góð. Við stefndum á að fara
ofar en í fyrra, en þá töpuðum við einmitt gegn Víkingum,“ sagði
Guðríður. Verður hún áfram með — I úrslitaleikjunum gegn Stjörn-
unni? „Já, ég mun leika i vörninni, tilbúin að gefa knöttinn fram
í hraðaupphlaup."
■ Leikurlnn / D3
Héðinn kominn
á fulla ferð
Héðinn Gilsson, landsliðsmaður í handknattleik,
sem hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í
vetur, verður betri og betri með hverjum deginum
og þakka forráðamenn Diisseldorf bata Héðins
„undralækninum" Brynjólfí Jónssyni, sem Héðinn fór
til þegar hann kom hingað til lands á dögunum. „Ég
hef nú æft í tvær vikur, eins heima, án þess að finna
til í hásininni. Ég hleyp úti á daginn og æfi með
liðinu á kvöldin. Það borgar sig ekki að ana að neinu
— ég stefni að því að vera kominn á fullt í byrjun
apríl, þegar við tökum þátt í bikarúrslitakeppninni,"
sagði Héðinn. Dússeldorf leikur gegn Fredenbeck í
undanúrslitum 1. apríl og ef liðið vinnur, leikur það
2. apríl úrslitaleikinn gegn sigurvegaranum í leik
Kiel 'og Lemgo.
SKIÐI
Kristinn Björnsson
bætti sig í svigi
KRISTINN Björnsson frá Ólafsfirði lætur ekki
staðar numið í skíðabrekkunum. Um síðustu
helgi sigraði hann tvívegis í risasvigi og í gær
keppti hann í mjög sterkur alþjóðlegu svigmóti
í Caspoggio á Ítalíu. Hann hafnaði í 10. sæti og
hlaut fyrir það 18,25 (FlS)-stig. Þetta er besti
árangur hans í svigi til þessa. Styrkstig mótsins
var 2,90 stig, sem er með því allra sterkasta sem
gerist.
KNATTSPYRNA
Grobbelaar og félög-
um sleppt úr haldi
BRUCE Grobbelaar, markvörðurinn kunni, Hans
Segers og John Fashanu var sleppt úr haldi lög*
reglu í gær eftir yfirheyrslur. Þeir hafa allir
verið ásakaðir um að hafa þegið mútur og beitt
sér fyrir því að hafa áhrif á úrslit leikja með
liðum sínum. Þeir voru í haldi í 36 klukkustund-
ir frá því að þeir voru handteknir á þriðjudag.
Lögreglan enska hefur haft málið til rannsóknar
frá því það kom fyrst fram í dagblaðinu Sun
fyrir fjórum mánuðum og voru yfirheyrslurnar
yfir þremenningunum framhald af þeirri rann-
sókn. David Hewitt, lögfræðingur Grobbelaars,
sagði við fréttamenn eftir að umbjóðanda hans
hafði verið sleppt í gær að markvörðurinn væri
saklaus eins og hann hafi alltaf haldið fram.
Grobbelaar vildi ekkert segja við fréttamenn í
gær annað en að hann þakkaði stuðningsmönn-
um sínum fyrir að styðja sig í þessu máli.
BRUCE Grobbelaar gengur út af lögreglu-
stöðinnl í Southampton, eftlr að hafa verið
tvo daga í haldi.
Bayern Munchen
mætir Ajax og
AC Milan PSG
BAYERN Munchen mætir Ajax í undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða og verður fyrri leik-
urinn á Ólympíuleikvanginum í Miinchen 5. apríl
og seinni leikurinn á Ólympíuleikvanginum í
Amsterdam 19. apríl. Bæði þessi lið hafa unnið
það afrek að verða Evrópumeistari þrjú ár í röð
— Ajax 1971-1973 og Bayem 1974-76. Real
Madrid á metið — vann meistaratitilinn fimm
fyrstu árin sem keppt var um hann, 1956-1960.
París St. Germain og AC Milan mætast í hinni
undanúrslitayiðureigninni og fer fyrri leikurinn
fram í París. Úrslitaleikurinn fer síðan fram í
Vínarborg 24. maí. Þess má geta að flestir veðja
á að Ajax verði Evrópumeistari, en núverandi
meistari er AC Milan, sem hefur mikla mögu-
leika á að leika til úrslita þriðja árið í röð.
KNATTSPYRNA: TÍU LEIKMENN BAYERN MÚNCHEN FÖGNUÐU í GAUTABORG / D3