Morgunblaðið - 17.03.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
IHio rgititfrfoðiíi
1995
FOSTUDAGUR 17. MARZ
BLAÐ
Reuter
Helgi Sigurðsson
með draumamark
gegn Nurnberg
HELGI Sigurðsson skoraði tvö mörk og lagði
upp önnur tvö fyrir varalið Stuttgart, sem gerði
góða ferð á þriðjudaginn til NUrnberg, þar sem
liðið vann stórsigur, 2:6. „Annar markið mitt
var sannkallað draumamark — ég tók knöttinn
viðstöðulaust með vinstri fæti rétt fyrir utan
vítateig og hamraði knöttinn upp í markhorn-
ið,“ sagði Helgi, sem vonast til með að fá tæki-
færi til að leika með Stuttgart gegn Frankfurt
á laugardaginn í úrvalsdeildinni — í Frankfurt.
„Ég hitaði stöðugt upp í leiknum gegn Kaisers-
lautern um síðustu helgi, en fékk ekki að koma
inná,“ sagði Helgi.
Dortmund verður
fyrir blóðtöku
SVISSNESKI landsliðsmaðurinn Stephane
Chapuisat hjá Dortmund mun ekki leika meira
með liðinu á keppnistímabilinu. Liðbönd í
vinstra hné hans gáfu sig í gær á æfingu. „Þetta
er mikið áfall fyrir okkur, sem kostar okkur
minnst tiu mörk í úrslitabaráttunni í úrvals-
deildinni,“ sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari Dort-
mund. Chapuisat er annar markahæsti leikmað-
urinn í Þýskalandi, með tólf mörk. Chapuisat,
sem er 25 ára, gerði þriggja ára samning við
liðið á dögunum.
Tveir fengu að sjá .
rauða spjaldið og
átta það gula
Þ AÐ var hart barist þegar Real Zaragoza og
Feyenoord áttust við í Zaragoza í Evrópu-
keppni bikarhafa í gærkvöldi. Þýski dómarinn
Markus Merk hafði mikið að gera — hann rak
tvo leikmenn af leikvelli og sýndi átta öðrum
leikmönnum gult spjald. Þar í hópi var Spán-
veijinn Jesus Garcia Sanjuan, sem fer í leik-
bann. Heimamenn, sem hafa ekki tapað á La
Romarera-leikvellinum síðan í október 1993,
fögnuðu sigri, 2:0, og tryggðu sér sæti í undan-
úrslitum. Argentínumaðurinn Juan Esnaider
skoraði fyrra markið og Miguel Pardeza það
seinna. Leikmenn Feyenoord þoldu ekki mót-
lætið — Peter Bosz var rekinn af leikvelli á 85.
mín. fyrir brot á Oscar Celada og síðan fékk
Ungveijinn Jozsef Kiprich reisupassann, eftir
að hafa fengið að sjá sitt annað gula spjald.
Zaragoza, Arsenal, Chelsea og Sampdoríá
eru komin í undanúrslit Evrópukeppni bikar-
hafa, en dregið verður í keppninni í dag ásamt
UEFA-keppninni, þar sem þýsku liðin Dort-
mund og Leverkusen, ásamt ítölsku liðunum
Juventus og Parma verða í hattinum.
KORFUKNATTLEIKUR
Skallagrímsmenn snéru
við í Melasveitinni
lan Wright
fagnar í
Frakklandi
Ian Wright, miðheiji Arsenal,
sem hefur skorað í öllum Evrópu-
leikjum í vetur, sést hér fagna
marki sínu, 1:0, gegn Auxerre í
Evrópukeppni bikarhafa, sem
tryggði Lundúnarliðinu sæti í
undanúrslitum. Arsenal á mögu-
leika að verða fyrsta liðið í 35
ára sögu Evrópukeppni bikar-
hafa, til að vinna bikarinn tvö ár
i röð, en sl. keppnistímabil vann
liðið Parma í úrslitaleik í Kaup-
mannahöfn, 1:0.
■ Frásögn / C4
Skallagrímsmenn komust ekki
til Njarðvíkur í gær þar sem
verður var farið að færast í auk-
anna. Þeir lögðu upp frá Borgar-
nesi með langferðabifreið klukk-
an hálf fjögur, en þegar þeir voru
komnir i Melasveitina var færðin
orðin það slæm, að ljóst var að
þeir myndu aldrei ná til Njarðvík-
ur fyrir klukkan átta. „Það var
ákveðið að snúa við, enda komnar
fréttir um að illfært væri um
Hvalfjörð og Kjalarnes,“ sagði
Tómas Holton, leikmaður og
þjálfari Skallagrímsmanna, sem
komu aftur heim klukkan fimm.
„Færðin er fljót að versna, því
að rétt áður en við lögðum af
stað, kom langferðabifreið til
Borgarnesar frá Reykjavík, sem
var tvo og hálfan tíma á leiðinni.“
Skallagrímsmenn tóku létta
æfingu í gærkvöldi, til að und-
irbúa sig fyrir baráttuna gegn
Njarðvík — og tóku þeir sérstak-
lega fyrir skot á æfírigunni. Vildu
greinilega stylla byssurnar vel
fyrir viðureignina við Njarðvík-
inga, sem verður í kvöld kl. 20.
Þá leika leika einnig Grindavík
og Keflavík í undanúrslitum —
annar leikur liðanna verður svo á
sunnudaginn. Þá verður leikur
Skallagríms og Njarðvíkur í
Borgarnesi sýndur beint í sjón-
varpi.
HAIMDKIMATTLEIKUR: KA-MENIM SÓTTIR HEIM Á AKUREYRI / C2