Morgunblaðið - 19.03.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Morðið á Benigno Aquino á Filippseyjum
Nýjar kenningar um samsæri
EINN af 16 hermönnum, sem voru
sakfelldir fyrir morðið á Benigno
Aquino, hefur haldið því fram að
hershöfðingi og tveir aðrir menn
hafi lagt á ráðin um morðið, að sögn
fréttastofunnar AP.
Sé frásögnin hermannsins rétt
styður hún þá kenningu að Aquino
hafi verið fórnarlamb samsæris hátt
settra embættismanna. Aquino var
myrtur á flugvellinum í Manila þegar
hann sneri heim úr útlegð í Bandarikj-
unum 21. ágúst 1983. Morðið olli
mikilli ólgu í landinu og ekkja hans,
Corazon Aquino, komst til valda eftir
uppreisn gegn Ferdinand Marcos tæp-
um þrem árum síðar. Hermennimir
16 vom dæmdir í lífstíðarfangelsi
árið 1990, en í réttarhöldunum kom
ekki fram hver fyrirskipaði morðið.
Corazon Aquino er sannfærð um að
Marcos hafí gert það, en hann lést
í útlegð á Hawaii árið 1989.
Samkvæmt AP hefur einn sak-
bqrninganna, Pablo Martinez, haldið
því fram að þrír menn, sem aldrei
vom ákærðir, hafi lagt á ráðin um
morðið, þeirra á meðal Romeo Gatan
hershöfðingi. Gatan hafí sagt sér að
fara með glæpamann, Rolando Gal-
man, á flugvöllinn í Manila og skjóta
hann ef hann myrti ekki Aquino.
Stjórn Marcosar hélt því fram að
Galman væri kommúnisti og hefði
verið einn að verki.
Martinez segir að hermennirnir
hafí skotið Galman eftir að hann
hafí myrt Aquino, eins og stjóm
Marcosar hélt fram.
Dómararnir í réttarhöldunum árið
1990 komust hins vegar að þeirri
niðurstöðu að annar hermaður hefði
myrt Aquino.
Stjórn Filippseyja hefur haft lítinn
áhuga á að láta rannsaka morðið að
nýju, en stærsti flokkurinn, Lakas-
Laban, hvatti til þess að það yrði
gert vegna frásagnar hermannsins.
SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995 B 13
Fullhomlegafrjáls!
M EÐ Freeway 45D FRÁ SIMONSEN
LólasVb? vasatasvrm oq
óWasvvráVjfw '\s\easVa
\avsimaV,ert\ö iJAVAT ASÖ\
S\ertaiv,\éWat oq
m\öq meöteVeqw
Wa'cqw þæqWeqw e\q\o\eto
UotsWrtóaauo oq
iapónsV. Qteöa \Tatn\e\ós\a
U'jooWiVévtosWoa
S Ísíel
SíÖumúla 37 -
S. 91-687570
108 Reykjavík
Fax.91-687447
Evrópsk
umhverf-
isskýrsla
Kaupmannahofn. Morgunblaðið.
ÚT er komin ýtarleg skýrsla um
umhverfismál Evrópu á vegum Evr-
ópsku umhverfísmálastofnunarinnar.
I skýrslunni er safnað saman töl-
fræðilegum upplýsingum og úttekt á
öllum þáttum umhverfisins í Evrópu.
Skýrslan er unnin að tilhlutan Efna-
hagsnefndar Evrópu, er starfar á
vegum Sameinuðu þjóðanna, en er
unnin í samvinnu margra aðila.
Skýrslunni er ætlað að vera undir-
staðan undir evrópskar áætlanir á
sviði umhverfismála næstu árin. Hún
er safn upplýsinga um allt, sem
snertir umhverfísmál álfunnar, bæði
utan og innan þéttbýlissvæða, lönd,
höf og loftið. I töflu um húsakost
íbúa í 35 borgum Evrópu getur til
dæmis að lesa að í Zúrich búa menn
rýmst með um fimmtíu fermetra á
mann, síðan koma íbúar í Osló, Kaup-
mannahöfn, Bergen og íslendingar í
•fímmta sæti með um 40 fermetra á
mann. Framkvæmdastjóri Evrópsku
umhverfisstofnunarinnar er Spán-
veijinn Domingo Jimenez-Beltran.
Ólympíumótið
í bréfskák
Kalda stríð-
inu lokið
Magdeburg. Reuter.
MEIRA en fjórum árum eftir að al-
þýðulýðveldið Austur-Þýskaland
lagði upp laupana hlaut það síðustu
verðlaunin, liðsmenn þess hlutu
bronsverðlaun á 10. Ólympíumótinu
í bréfskák. Keppnin varði í átta ár.
Keppendur verða að leika a.m.k.
tíu leiki á mánuði, þeir póstleggja
leikinn og senda andstæðingnum
hann.
Annað ríki, sem einnig er horfið
af landabréfinu, Sovétríkin, hreppti
gullið en Vestur-Þýskaland silfrið.
Skipuleggjendur Ólympíumótanna
höfðu gefist upp á að bíða eftir úr-
slitum 10. mótsins og hið ellefts
hófst þegar árið 1992. Liðsmenn
Þjóðverja á því eru að sjálfsögðu all-
ir í sama landsliði núna þar sem rík-
in tvö sameinuðust í eitt árið 1990
- en á tíunda mótinu voru þeir enn
andstæðingar.
3ja herbergja
89 t n
4ra herbergja
96 tn
3ja herbergja íbúð frá Ármannsfelli er góð byrjun á íbúðar-
kaupum. Tvö herbergi, bað, þvottahús inni í íbúð, eldhús og
góð stofa. Góðir skápar eru í svefnherbergjum, smekkleg
eldhúsinnrétting og dúkar og teppi á öllum gólfum.
Kaupverð 3ja herbergja ibúðar w.....6.580.000 kr.
Við undirritun samnings ...........200.000 kr.
Húsbréf..........................1... 4.277.000 kr.
1 Lán seljanda.......................1.000.000 kr.
* Þitt framlag við afhendingu........1.103.000 kr.
o
I Meðalgreiðslubyrði á mánuði 32.738 kr.
Hér fara saman mikið rými og einstakt verð. Þrjú svefnherbergi,
stofa, eldhús, bað, þvottahús inni í ibúð og stór geymsla.
íslenskar innréttingar í eldhúsi, herbergjum og á baði eins og í
öllum okkar íbúðum.
Kaupverð 4ra herbergja íbúðar.... 7.135.000 kr.
Við undirritun samnings.......... 200.000 kr.
Húsbréf............................4.637.750 kr.
Lán seljanda ......................1.000.000 kr.
Þitt framlag við afhendingu........1.297.250 kr.
Meðalgreiðslubyrði á mánuði 34.883.kr.
Ármannsfell hf.
Funahöfða 19 • sími 587 3599
Vandaöar íbúöir á hagstœöu veröi