Morgunblaðið - 19.03.1995, Síða 25

Morgunblaðið - 19.03.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ1995 B 25 _____ N N uua fjGL YSINGAR Framleiðslufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir starfskrafti hálfan dag- inn eftir hádegi. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af almennum skrifstofustörfum, svo sem vélritun, tölvunotkun, skjalavörslu og inn- og útflutningspappírum. Viðkomandi þarf að hafa góða ensku- og þýskukunnáttu. Ef þú getur unnið sjálfstætt og hefur áhuga á að vinna hjá vaxandi fyrirtæki, þá sendu inn umsókn til afgreiðslu Mbl., merkta: „H - 2424“, fyrir 27. mars nk. Lyfjafræðingur Lyfjanefnd ríkisins óskar eftir lyfjafræðingi til starfa. Um fullt starf er að ræða. Mikil- vægt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og Norðurlandamáli. Umsóknir, ásamt afriti af starfsréttindaskír- teini, prófskírteini og upplýsingum um fyrri störf, sendist til Lyfjanefndar ríkisins, Eiðis- torgi 15, pósthólf 180, 172 Seltjarnarnesi, fyrir 19. apríl nk. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Upplýsingar gefur Guðbjörg Kristinsdóttir, skrifstofustjóri nefndarinnar, í síma 612111. Viltu spila eftir eigin nótum ? FASTEIGNASALA. VIÐSKIPTA- & LÖGFRÆÐINGAR. Fvrirtœkið er nýstofnuð fasteignasala í Reykjavík. Um er að rœða aðila, sem byggir á 25 ára reynslu með traust og áreiðanleika að baki. Leitað er að tveimur til þremur rekstraraðilum að nýrri fasteignasölu. Viðkomandi munu taka virkan þátt í uppbyggingu á mjög svo áhugaverðu fyrirtœki, sem mun leggja áherslu á nýjar leiðir við markaðssókn til aukinna gœða og öryggis á sviði fasteignaþjónustu, ráðgjafar og sölu. Um eignaraðild verður að rœða. Hœfniskröfur eru að umsœkjendur séu viðskiptafrœðingar, lögfrœð ingar eða rekstrarfrœðingar að mennt. Aðilar með löggildingu á sviði fasteignasölu eða með reynslu áhugaverðir. Áhersla er löað á heiðarleika, frumkvœði, sjálfstœði og ábyrgð. Um er að rœða áhugavert tœkifœri fyrir dugandi einstaklinga konur eöa karla Vegna fyrirhugaörar ímyndar starf- seminnar er sérstaklega leitað eftir konum. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi skrifstofunni, sem opin er frá kl. 10-16, en viðtalstímar eru frá kl. 10-14. V ST Starfsrádningar hf Sudurlandsbraut 30 • 5. hceð ■ 108 Reykjavik , Simi: 588 3031 ■ Fax: 588 3010 Cutný HarÓardóttir Framreiðslumaður Metnaðarfullur framreiðslumaður með góða reynslu óskast til starfa á nýju veitingahúsi. Umsóknareyðublöð fást á staðnum. HUMARHÚSIÐ Amtmannstíg 1, (áður Búmannsklukkan). Hönnun/innsláttur Rótgróið fyrirtæki óskar eftir starfsmanni í hálft starf, hugsanlega fullt. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af eftirfarandi: Paradox gagnagrunni, PhotoShop, teiknifor- ritinu FreeHand eða CoralDraw. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af umbroti. Um er að ræða framtíðarstarf. Umsóknir óskast sendar til afgreiðslu Mbl. fyrir 24. mars nk., merktar: „L - 18062.“ Ný barnafataverslun Vanur starfskraftur óskast í nýja barnafata- verslun, sem verður opnuð í kringum mán- aðamót mars-aríl í miðbænum í Reykjavík. Æskilegur aldur 30-50 ára. Reyklaus vinnu- staður. Góð framkoma og snyrtimennska. Svör ásamt upplýsingum sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 24. mars, merkt: „Barnafataverslun - 18064“. Skattstjórinn í Reykjavík Laus er til umsóknar staða hjá embætti skattstjórans í Reykjavík við atvinnurekstrar- skrifstofu. Um er að ræða starf er varðar skattskil rekstraraðila. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið prófi í viðskiptafræði af reikningshalds- og endurskoðunarsviði. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað, sem umsækjandi vill taka fram, þurfa að berast embættinu fyrir 3. apríl 1995. Sveinbjörn Strandberg, starfsmannastjóri, veitir nánari upplýsingar og tekur við umsóknum. Skattstjórinn íReykjavík, Tryggvagötu 19, 150 Reykjavík, sími 603600. Laus staða Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík auglýsir til umsóknar stöðu forstöðumanns tölvudeildar. Umsækjandi skal hafa háskólapróf í tölvu- fræðum eða hliðstæðum greinum. Mikil áhersla er lögð á reynslu og þekkingu í tölvu- málum, þ.m.t. af nær- og víðnetum. Auk þess er reynsla í stjórnunarstörfum æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síð- ar en 1. maí nk. Nánari upplýsingar um stöðuna gefa for- stöðumaður tölvudeildar og/eða starfs- mannastjóri borgarverkfræðings. Umsóknum, ásamt upplýsingum um nám og starfsferil, skal skila eigi síðar en 31. mars nk. til starfsmannastjóra borgarverkfræð- ings, Skúlatúni 2, sími 563-2300. Heilsustofnun NLFÍ Heilsustofnun NLFÍ auglýsir eftir lækni til starfa Viðkomandi þarf að hafa orku- og endurhæf- ingarlækningar sem sérgrein. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í greiningu og meðferð verkjavandamála frá stoðkerfi. Um er að fæða fullt starf. Staðan veitist frá 1. september nk. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Upplýsingar veitir Guðmundur Björnsson, yfirlæknir, í síma 98-30300. S k i n öf H a i r C a r e Preparations Verslunarstörf Óskum eftir að ráða förðunar- eða snyrti- fræðing í verslun okkar. Einnig kemur til greina einstaklingur með reynslu og þekk- ingu á förðun og förðunarvörum. Að auki leitum við eftir starfsmanni í hálfsdagsstarf. Umsækjendur þurfa að hafa: - Reynslu af þjónustu- og sölustörfum. - Frumkvæði og þjónustulund. - Áhuga á náttúrulegum snyrtivörum. - Áhuga á umhverfis- og velferðarmálum. Æskilegur aldur er 25 ára eða eldri. Vinsamlegast sendið ítarlegar, skriflegar um- sóknir ásamt Ijósmynd fyrir 26. marz nk. til: The Body Shop, pósthólf 1742, 121 Reykjavík. Leikskóla- og dagvistarfulltrúi Félagsmálaráð Vestmannaeyja auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 50% tímabundna stöðu leikskóla- og dagvistarfulltrúa hjá Vest- mannaeyjabæ. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Þetta er tímabundið starf til eins árs vegna afleysinga í ársleyfi félags- málastjóra. Leikskólakennaramenntun áskilin. Áhugasámir leikskólakennarar vinsamlegast hafið samband við Guðrúnu Jónsdóttur, félagsmálastjóra, í síma 98-11088. Fjármálastjóri Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða fjármálastjóra til starfa frá og með 1. júní nk. Helstu verksvið eru almenn fjármálastjórn, framkvæmdaeftirlit og umsjón og eftirlit með bókhaldi skólans. Um er að ræða framtíðar- starf. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar af skólastjóra Bændaskólans. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist: Bændaskólanum á Hvanneyri, 311 Borgarnes. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.