Morgunblaðið - 21.03.1995, Side 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
67. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjallið
steyptist
niður
„ÉG HEYRÐI gríðarlegan gný og
hélt að gufurör hefði sprungið eða
eitthvað hefði bilað og varð litið fram
í rrijölhús þar sem við mér blasti
þakpappi, plötur, rusl og snjór á
fleygiferð. Bókstaflega allt fór af
stað,“ segir ívar Andrésson, tvítugur
Seyðfírðingur sem átti ásamt starfs-
félögum sínum fótum fjör að launa
þegar snjóflóð féll úr fjallinu Bjólfi
rétt fyrir klukkan 15.30 í fyrradag.
Fióðið stórskemmdi verksmiðju
Vestdalsmjöls og hreif með sér um
3.000 fermetra mjölskemmu.
„Ég leit upp og sá að allt var að
koma, mér fannst sem allt íjallið
steyptist niður og síðan streymdi
þetta fram af klettunum beint fyrir
ofan okkur,“ segir Hallgrímur Jóns-
son snjóflóðaeftirlitsmaður, sem var
við mælingar á snjóalögum skammt
fyrir ofan verksmiðjuna.
Formaður almannavarnanefndar
segir að misráðið hafi verið að af-
létta snjóflóðahættu á fióðasvæðinu,
en það var gert hálfum öðrum tíma
áður en flóðið féll. Stjórnarformaður
Vestdalsmjöls telur tjónið nema
170-200 milljónum króna.
■ Sá allt svart/32-33
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Vilja hindra átök
í Austur-Evrópu
ir*íu Routoi*
Jafnaðar-
menn fagna
PAAVO Lipponen, leiðtogi
finnskra jafnaðarmanna, bregður
á leik og dansar tangó við að-
stoðarmann í gær. Jafnaðarmenn
bættu við sig 15 þingsætum á
sunnudag. Lipponen sagði að
myndun nýrrar samsteypustjórn-
ar gæti tekið nokkrar vikur. „Þörf
er á samstarfi á breiðum grund-
velli og öflugri ríkisstjórn. Við
útilokum ekkert," sagði hann. Lík-
legt þykir að jafnaðarmenn myndi
meirihlutastjórn með annaðhvort
Miðflokki Eskos Ahos forsætisráð-
herra, sem hefur nú 44 þingsæti
og tapaði nokkru fylgi, eða Hægri-
flokknum sem hlaut 39 sæti. Flest-
um sljórnmálaskýrendum þótti í
gær ólíklegt að mynduð yrði
stjórn þriggja stærstu flokkanna.
Mikill vandi bíður/22
Reuter
Ráðist gegn skæruliðum Kúrda í N-írak
Innrás Tyrkja-
hers fordæmd
Ankara. Reuter.
UM 35.000 tyrkneskir hermenn réð-
ust í gær inn í Norður-írak í mikilli
hernaðaraðgerð gegn kúrdískum
skæruliðum frá Tyrklandi. Var inn-
rásarliðið stutt skriðdrekum og stór-
skotaliði og flugvélar gerðu árásir á
ýmis skotmörk.
Ætlunin var að herliðið sækti um
40 km inn í Irak og réðist á meira
en 2.000 skæruliða Kúrdíska verka-
mannaflokksins, PKK, enTiann berst
fyrir sjálfstæðu, kúrdísku ríki í Suð-
austur-Tyrklandi.
Stjórn Saddams Husseins íraks-
forseta hefur í reynd engin völd yfir
París. Reuter.
YFIR fimmtíu Evrópuþjóðir undirrituðu í gær samkomulag um landa-
mæri og réttindi þjóðabrota sem ætlað er að koma í veg fyrir að átök,
svipuð þeim sem orðið hafa í lýðveldum gömlu Júgóslavíu, brjótist út
í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Samningurinn var undirritaður í
París en þar hófst í gær ráðstefna um stöðugleika í fyrrverandi austan-
tjaldsríkjum. Var Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, falin
ábyrgð og umsjón með samningnum. Fundinn sitja fulltrúar aðildar-
þjóða Evrópusambandsins, Eystrasaltsríkjanna, Austur-Evrópuríka og
fyrrverandi Sovétlýðvelda. Rússar gagnrýndu í gær Atlantshafsbanda-
lagið, NATO, harkalega fyrir að ætla að veita nýjum ríkjum aðild.
Frakkar voru fyrstir til að leggja
til að undirritaður yrði samningur
um stöðugleika í Austur-Evrópu.
Honum er ætlað að tryggja að fyrr-
verandi austantjaldsríki, sem vilja
aðild að vestrænum stofnunum og
samböndum, leysi þau deilumál
sem líklegt er að geti blossað upp,
áður en þau fái aðild að NATO og
Evrópusambandinu, ESB.
Samþykkt var í gær röð samn-
inga er varða landamæri og rétt-
indi minnihlutahópa. Ungvetjar
norðurhéruðunum vegna þess að
Bandaríkin veita Kúrdum þar flug-
vélavernd gegn íraska hernum.
Fulltrúi Bills Clintons Bandaríkja-
forseta sagði í gær að forsetinn skildi
vel nauðsyn þess að ráðast gegn
skæruliðunum en hann hefði hvatt
Tyrki til að fara ekki offari. Iraskir
Kúrdar mótmæitu hins vegar í gær
innrás Tyrkja. Talsmaður Kúrdíska
lýðræðisflokksins í héruðunum sem
Tyrkir réðust inn í sagði í gær að
PKK hefði engar bækistöðvar á
þessum slóðum. Hann skoraði á
Tyrki að kveðja herliðið heim.
undirrituðu slíkan samning við Sló-
vaka en þeim mistókst h'ins vegar
að komast að samkomulagi við
Rúmena fyrir upphaf ráðstefnunn-
ar. Forsætisráðherrar landanna
sögðust þó vera nálægt því að ná
samkomulagi.
Kozyrev gagnrýnir NATO
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sem sækir ráð-
stefnuna, réðst í gær á áform NATO
um að veita A-Evrópuríkjum aðild.
Sagði hann að stækkun bandalags-
ins myndi lífga við kaldastríðsdeil-
ur. NATO væri þrátt fyrir allt hern-
aðarbandalag og í stað þess ætti
að koma ný öryggisstofnun.
Á finimtudag hefst í Genf fundur
Kozyrevs og Warrens Christophers,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
þar sem málefni NATO verða rædd.
■ Sérstök tengsl við Rússa/23
Þrýstmgur drepur gerla
NÝ háþrýstimeðferð til að auka
geymsluþol matvæla þykir lofa
góðu í Danmörku og vona vís-
indamenn hjá dönsku tækni-
stofnuninni, DTI, m.a. að hægt
verði að vinna bug á salmonellu-
sýkingu.
Japanar iiafa að sögn Berl-
ingske Tidende notað aðferðina
í stað hefðbundinnar gerilsneyð-
ingar í nokkur ár. Kosturinn við
hana er ekki síst að hún hefur
engin áhrif á bragð eða fjörefni
fæðunnar en gerlar drepast.
Frumuveggir gerilsins verða fyr-
ir miklum loftþrýstingssveiflum
og bresta, sagt er að svonefnd
kafaraveiki sé af sama toga.