Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 1

Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 67. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fjallið steyptist niður „ÉG HEYRÐI gríðarlegan gný og hélt að gufurör hefði sprungið eða eitthvað hefði bilað og varð litið fram í rrijölhús þar sem við mér blasti þakpappi, plötur, rusl og snjór á fleygiferð. Bókstaflega allt fór af stað,“ segir ívar Andrésson, tvítugur Seyðfírðingur sem átti ásamt starfs- félögum sínum fótum fjör að launa þegar snjóflóð féll úr fjallinu Bjólfi rétt fyrir klukkan 15.30 í fyrradag. Fióðið stórskemmdi verksmiðju Vestdalsmjöls og hreif með sér um 3.000 fermetra mjölskemmu. „Ég leit upp og sá að allt var að koma, mér fannst sem allt íjallið steyptist niður og síðan streymdi þetta fram af klettunum beint fyrir ofan okkur,“ segir Hallgrímur Jóns- son snjóflóðaeftirlitsmaður, sem var við mælingar á snjóalögum skammt fyrir ofan verksmiðjuna. Formaður almannavarnanefndar segir að misráðið hafi verið að af- létta snjóflóðahættu á fióðasvæðinu, en það var gert hálfum öðrum tíma áður en flóðið féll. Stjórnarformaður Vestdalsmjöls telur tjónið nema 170-200 milljónum króna. ■ Sá allt svart/32-33 Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Vilja hindra átök í Austur-Evrópu ir*íu Routoi* Jafnaðar- menn fagna PAAVO Lipponen, leiðtogi finnskra jafnaðarmanna, bregður á leik og dansar tangó við að- stoðarmann í gær. Jafnaðarmenn bættu við sig 15 þingsætum á sunnudag. Lipponen sagði að myndun nýrrar samsteypustjórn- ar gæti tekið nokkrar vikur. „Þörf er á samstarfi á breiðum grund- velli og öflugri ríkisstjórn. Við útilokum ekkert," sagði hann. Lík- legt þykir að jafnaðarmenn myndi meirihlutastjórn með annaðhvort Miðflokki Eskos Ahos forsætisráð- herra, sem hefur nú 44 þingsæti og tapaði nokkru fylgi, eða Hægri- flokknum sem hlaut 39 sæti. Flest- um sljórnmálaskýrendum þótti í gær ólíklegt að mynduð yrði stjórn þriggja stærstu flokkanna. Mikill vandi bíður/22 Reuter Ráðist gegn skæruliðum Kúrda í N-írak Innrás Tyrkja- hers fordæmd Ankara. Reuter. UM 35.000 tyrkneskir hermenn réð- ust í gær inn í Norður-írak í mikilli hernaðaraðgerð gegn kúrdískum skæruliðum frá Tyrklandi. Var inn- rásarliðið stutt skriðdrekum og stór- skotaliði og flugvélar gerðu árásir á ýmis skotmörk. Ætlunin var að herliðið sækti um 40 km inn í Irak og réðist á meira en 2.000 skæruliða Kúrdíska verka- mannaflokksins, PKK, enTiann berst fyrir sjálfstæðu, kúrdísku ríki í Suð- austur-Tyrklandi. Stjórn Saddams Husseins íraks- forseta hefur í reynd engin völd yfir París. Reuter. YFIR fimmtíu Evrópuþjóðir undirrituðu í gær samkomulag um landa- mæri og réttindi þjóðabrota sem ætlað er að koma í veg fyrir að átök, svipuð þeim sem orðið hafa í lýðveldum gömlu Júgóslavíu, brjótist út í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Samningurinn var undirritaður í París en þar hófst í gær ráðstefna um stöðugleika í fyrrverandi austan- tjaldsríkjum. Var Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, falin ábyrgð og umsjón með samningnum. Fundinn sitja fulltrúar aðildar- þjóða Evrópusambandsins, Eystrasaltsríkjanna, Austur-Evrópuríka og fyrrverandi Sovétlýðvelda. Rússar gagnrýndu í gær Atlantshafsbanda- lagið, NATO, harkalega fyrir að ætla að veita nýjum ríkjum aðild. Frakkar voru fyrstir til að leggja til að undirritaður yrði samningur um stöðugleika í Austur-Evrópu. Honum er ætlað að tryggja að fyrr- verandi austantjaldsríki, sem vilja aðild að vestrænum stofnunum og samböndum, leysi þau deilumál sem líklegt er að geti blossað upp, áður en þau fái aðild að NATO og Evrópusambandinu, ESB. Samþykkt var í gær röð samn- inga er varða landamæri og rétt- indi minnihlutahópa. Ungvetjar norðurhéruðunum vegna þess að Bandaríkin veita Kúrdum þar flug- vélavernd gegn íraska hernum. Fulltrúi Bills Clintons Bandaríkja- forseta sagði í gær að forsetinn skildi vel nauðsyn þess að ráðast gegn skæruliðunum en hann hefði hvatt Tyrki til að fara ekki offari. Iraskir Kúrdar mótmæitu hins vegar í gær innrás Tyrkja. Talsmaður Kúrdíska lýðræðisflokksins í héruðunum sem Tyrkir réðust inn í sagði í gær að PKK hefði engar bækistöðvar á þessum slóðum. Hann skoraði á Tyrki að kveðja herliðið heim. undirrituðu slíkan samning við Sló- vaka en þeim mistókst h'ins vegar að komast að samkomulagi við Rúmena fyrir upphaf ráðstefnunn- ar. Forsætisráðherrar landanna sögðust þó vera nálægt því að ná samkomulagi. Kozyrev gagnrýnir NATO Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sem sækir ráð- stefnuna, réðst í gær á áform NATO um að veita A-Evrópuríkjum aðild. Sagði hann að stækkun bandalags- ins myndi lífga við kaldastríðsdeil- ur. NATO væri þrátt fyrir allt hern- aðarbandalag og í stað þess ætti að koma ný öryggisstofnun. Á finimtudag hefst í Genf fundur Kozyrevs og Warrens Christophers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þar sem málefni NATO verða rædd. ■ Sérstök tengsl við Rússa/23 Þrýstmgur drepur gerla NÝ háþrýstimeðferð til að auka geymsluþol matvæla þykir lofa góðu í Danmörku og vona vís- indamenn hjá dönsku tækni- stofnuninni, DTI, m.a. að hægt verði að vinna bug á salmonellu- sýkingu. Japanar iiafa að sögn Berl- ingske Tidende notað aðferðina í stað hefðbundinnar gerilsneyð- ingar í nokkur ár. Kosturinn við hana er ekki síst að hún hefur engin áhrif á bragð eða fjörefni fæðunnar en gerlar drepast. Frumuveggir gerilsins verða fyr- ir miklum loftþrýstingssveiflum og bresta, sagt er að svonefnd kafaraveiki sé af sama toga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.