Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 Einmana kóngulóin Cinu sinni var einmana ir, 7 ára, Frostafold 105, ■■kónguló. Allt í einu sagði Reykjavík, er höfundur þessar- hún: Þetta er leiðinlegt, ar sögu og hún myndskreytti enginn vill leika við mig. hana líka. Flott hjá þér, Sigur- Sigurdís Jara Brynjólfsdótt- dís mín. Múrarinn klári Ekki er hann Magnús Jónsson múrari óttasleginn á mynd- inni. Ó nei, hann var fenginn til þess að lagfæra múrinn í kringum hús Múrarafélags ís- lands. Þannig er að hann varð hlutskarpastur í samkeppni allra múrara á landinu, því að hann einn áttaði sig á, um hvað málið snerist. Að vita hversu marga múrsteina vantaði til þess að fylla í eyðuna. Eruð þið jafn glögg, börnin góð, og hann Magnús? Þið fáið skorið úr því á bak- síðunni, þar sem lausnin er - en fyrst reynið þið upp á eigin spýtur að fylla í eyðuna. Brandarar „Halló skralló, myndablað! Ég heiti Harpa Rut og hér eru nokkrir brandarar. Viljiði vera svo væn að birta þá.“ Harpa Rut Björnsdóttir, 11 ára, Sætúni, Borgarfírði eystri, eins og þú sérð, birtum við brandarana hér með. Kær- ar þakkir og kveðjur austur til allra krakka, stórra og smárra. Kennarinn: Hvaða tennur taka menn seinast? Gvendur: Gervitennur. Anna: Ég held að mamma mín skilji ekki börn. Beta: Hvers vegna? Anna: Hún lætur mig í rúmið þegar ég er glaðvakandi, en segir mér að fara á fætur þeg- ar ég er syfjuð. Kennarinn: Palli, getur þú sagt mér hvar Rauða hafið er á kortinu? Palli: Nei, það get ég ekki, ég er litblindur. Siggi: Langar þig til að koma í afmælið mitt? Bjössi: Já takk. Hvar áttu heima? Siggi: Grundarstíg 99. Hringdu bara með olnbogan- um á bjöllunni. Bjössi: Með olnboganum? Siggi: Já, þú getur varla ætlað að koma tómhentur. Hverju skeikar? IV hveija þessara fjögurra mynda vantar tvennt, sem fínnst á hinum myndunum. Getið þið fundið þetta tvennt á hverri mynd? Lausnimar er að fínna á baksíðunni. Meira um skiptimark- aðinn Þið sendið okkur bréf með óskum ykkar um skipti og við birtum það. Þið látið fullt nafn og heimilisfang fylgja með og SÍMANÚMER ykkar er nauðsynlegt svo að auð- velt og fljótlegt sé fyrir ykk- ur að ná sambandi hvert við annað. Og þá er nú aldeilis mál til komið að taka til máls eða þannig. Skilið? Já, ég vissi það, þið eruð ekki svo galin. Púslið . Klipptu ferhyrninginn í fjóra hluta eftir strikunum. Fjar- lægðu svarta hlutann með spum- ingamerkinu og í-eyndu nú að búa til nýjan ferhyming með þremur hlutunum sem eftir eru. Það er enga lausn að fínna í blaðinu, hún er í kollinum á þér. Góða skemmt- un.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.