Morgunblaðið - 23.03.1995, Page 1
96 SIÐUR B/C/D/E
Sókn Tyrkja sætir
aukinni gagnrýni
Zakho I frak. Brussel. Reuter.
TYRKNESKAR sveitir gerðu hús-
leit í fjölmörgum húsum í bænum
Derkar, skammt frá landamæra-
bænum Zakho í írak í gær. Herma
fregnir að fjöldi bæjarbúa hafi ver-
ið handtekinn vegna gruns um að
þeir væru félagar í kúrdískum
skæruliðasamtökum. Ekki er ljóst
hversu margir voru handteknir en
íraskur stjórnarandstöðuhópur hélt
því fram að þeir skiptu hundruðum.
Allt að 35 þúsund tyrkneskir
hermenn taka þátt í aðgerðunum
gegn Kúrdum í norðurhluta írak.
Dogu Silahcioglu ofursti, talsmaður
yfirstjórnar tyrkneska hersins, vís-
aði því á bug í gær að aðgerðirnar
beindust að óbreyttum borgurum
og sagði fregnir um annað vera
„áróður hryðjuverkamanna".
Tyrkir vísa á bug
að aðgerðirnar
beinist að óbreytt-
um borgurum
Sveitir Tyrkja hafa haldið 40
kílómetra inn í írak og er mark-
mið þeirra að eyðileggja bæki-
stöðvar Kúrdíska verkamanna-
flokksins (PKK). Hermenn í Zakho
sýndu blaðamönnum vopn, þar á
meðal flugskeyti, jarðsprengjur og
sprengjuvörpur, sem þeir sögðu
hafa tekið frá PKK. Heimamenn
sögðu vopnin hins vegar tilheyra
samtökum er berjast gegn stjórn
Saddams Husseins íraksforseta.
Hernaðaraðgerðir Tyrkja sæta
vaxandi gagnrýni á alþjóðavett-
vangi. William Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti
Tyrki í gær til að láta óbreytta
borgara í friði og ljúka aðgerðum
sínum í norðurhluta íraks sem
fyrst.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði ástæðu til að
hafa „alvarlegar áhyggjur“ af mál-
inu og Alain Juppé, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði aðgerðirn-
ar bijóta í bága við grundvallarregl-
ur alþjóðalaga.
Þá herrndu heimildarmenn innan
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
að þar á bæ hefðu menn vaxandi
áhyggjur af herför Tyrkja.
BRESKIR hermenn kveðja
Norður-írland og halda til
bækistöðva í Englandi.
Þáttaskil
á Norður-
Irlandi
London. Reuter.
ÞÁTTASKIL urðu í tilraunum til
að koma á friði á Norður-írlandi í
gær er Michael Ancram aðstoðar-
ráðherra ræddi við stjórnmálaleið-
toga sem tengjast hryðjuverkasveit-
um sambandssinna.
Þykir þetta auka líkur á að
breska stjórnin efni til samskonar
viðræðna við Sinn Fein, stjórnmála-
deild írsku hryðjuverkasamtakanna
IRA, jafnvel á morgun, föstudag.
En með viðræðum Áncrams við
leiðtoga Sambandsflokksins (PUP)
og Lýðræðisflokks Ulster (UDP)
hefur stjórnin í London horfið frá
þeirri stefnu að háttsettir emb-
ættismenn ræði ekki við samtök
sem tengjast n-írskum öfgasam-
tökum.
Breskum hermönnum tók að
fækka á Norður-írlandi í gær.
Harkaleg
átök við
Glasgow
SKOSKIR lögreglumenn tóku
andstæðinga hraðbrautar-
framkvæmda skammt fyrir
utan Glasgow engum vettl-
ingatökum í gær er tilraun var
gerð til að raska framkvæmd-
um við nýjahraðbraut, M-77,
við Pollok. Atökin, sem til
kom, urðu bæði illskeytt og
blóðug. Eru þau hin mestu í
seinni tíð í Skotlandi og voru
níu menn settir á bak við Iás
o g slá. Hér bera fjórir lög-
reglumenn ólman brautaróvin
af vettvangi.
Reuter
Ráðherra
segir af sér
Brussel. Daily Tclcgraph.
FRANK Vandenbroucke, utanríkis-
ráðherra Belgíu og aðstoðarforsæt-
isráðherra, sagði af sér í gærkvöldi
vegna aðildar að
spillingarmáli.
Vandenbroucke
játaði að hafa haft
vitneskju um leyni-
legan bankareikn-
ing sem notaður var
til að vista mútufé
sem greitt var
flokki hans,
Flæmska jafnaðarmannaflokknum.
V andenbroucke var formaður
flokksins árið 1991 er ítölsku flug-
vélaverksmiðjurnar Agusta greiddu
í sjóði flokksins jafnvirði rúmlega
100 milljóna króna.
Uppbygging Irana
ógnun á Persaflóa
Abu Dhabi. Reuter.
WILLIAM Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, vakti í gær
athygli á því að íranir hefðu flutt
6.000 manna herafla, efnavopn og
eldflaugar til eyja í mynni Persa-
flóa. Sagði hann þessa liðsflutninga
kunna að skapa ógnun við olíuflutn-
inga. Perry er í vikulangri heimsókn
til nokkurra ríkja við Persaflóann.
Perry hefur vakið athygli á því
að íranir kunni einn daginn að ráða
yfir um helmingi af olíuflæði heims.
Hernaðaruppbygging þeirra á
■H
Grunað um
gastilræði
JAPANSKA lögreglan fann 34
stórar flöskur af samskonar
leysiefni og notað var i gastilræð-
inu í Japan á mánudag, í leit í
húsum sértrúarsafnaðar i gær.
Fimm forystumanna safnaðarins
voru handteknir og sex menn,
sem talið er að söfnuðurinn hafi
haldið nauðugum, var bjargað.
Myndin er af ungu safnaðarfólki
sem mótmælti húsleitinni.
■ Lögreglan finnur efni/ 19
eyjunum í Hormuz-sundi bendi til
þessa. „Hún getur aðeins þýtt ógn-
un við skipaflutninga á svæðinu,“
sagði varnarmálaráðherrann. Deilt
er um yfirráð eyjanna og hafa Sam-
einuðu arabísku furstadæmin gert
tilkall til hluta þeirra. Perry nefndi
ekki hvaða eyjur um ræðir en
bandaríska varnarmálaráðuneytið
hefur gefið upp að ein þeirra sé
Abu Musa.
Perry segir Persaflóa vera „líf-
línu“ olíuríkjanna á svæðinu og lyk-
il að orkulindum. Hefur hann hvatt
leiðtoga Saudí-Arabíu, Kúveit og
Bahrain til að styrkja varnir sínar
gegn nágrannaríkjunum írak og
Iran. Embættismenn bandaríska
varnarmálaráðuneytisins hafa lýst
því yfir að enn sem komið er ráði
þeir yfir nægum liðsafla á og við
Persaflóa til að bera sigurorð af
Irönum, komi til átaka.
Dúman mótmælir
valdbeitingn á Krím
Moskvu. Rculcr.
NEÐRI deild rússneska þingsins,
dúman, lýsti í gær þungum
áhyggjum vegna þeirrar ákvörð-
unar yfirvalda í Úkraínu að nema
stjórnlög úr gildi á Krím og leggja
niður starf forseta.
í samþykkt dúmunnar var sagt
að úkraínska þingið hefði niður-
lægt 2,7 milljónir Rússa á Krím.
Var látinn í ljósi ótti um að
ákvörðunin ógnaði stöðugleika á
svæðinu.
I yfirlýsingunni var stjórn Borís
Jeltsíns forseta beinlínis gagnrýnd
fyrir linkind í garð yfirvalda í
Kænugarði. Jeltsín á þó erfitt um
vik með að taka undir kröfur
Krímverja um aðskilnað frá Úkra-
ínu. Hendur hans eru að nokkru
bundnar vegna herfarar rússneska
hersins gegn sjálfstæðishreyfingu
i Kákasushéraðinu Tsjetsjníju.
Tveir þriðju íbúa Krímskaga eru
af rússnesku bergi. Leiðtogar
Krímveija vilja tengjast Rússlandi
nánum böndum og jafnvel lúta
rússneskum yfirráðum.
Þingið í Krím storkaði stjórninni
í Kænugarði í gær með því að
setja forsætisráðherrann Anatolíj
Frantsjúk af en hann var sakaður
um að vera alltof vilhallur Úkra-
ínustjórn.