Morgunblaðið - 24.03.1995, Page 1
96 SÍÐUR B/C/D
70. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 24. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mótmæla samyrkjubúskap
RÚMLEGA tíu þúsund bændur og stuðnings- mótmæla áformum stjórnar sósíalista um að
menn Bandalags lýðræðisafla komu saman í taka upp samyrkjubúskap á ný í stað einkarek-
miðborg Sofíu, höfuðborg Búlgariu, í gær til að inna búa.
Kjaradeila á Færeyjum
Opinberir starfs-
menn í verkfalli
Þórshöfn. Morgunblaðið.
MEIRIHLUTI opinberra starfs-
manna í Færeyjum hóf á miðviku-
dag verkfall eftir að viðræður við
landstjómina fóru út um þúfur.
Meðal þeirra tólf félaga sem eru í
verkfalli má nefna skrifstofufólk,
menntaskólakennara, hjúkrunar-
fræðinga, sjúkraliða, hagfræðinga
og lögfræðinga, verkfræðinga og
vélstjóra.
Nokkur félög opinberra starfs-
manna hafa ekki enn farið í verk-
fall en þeir hafa lýst yfir verkfalli
frá og með 1. apríl. Um er að ræða
tíu félög, m.a. starfsmenn póstþjón-
ustunnar.
Verkfallið nú hefur einna mest
áhrif á samgöngur þar sem strætis-
vagna- og feijuferðir liggja niðri.
Starfsfólk á sjúkrahúsum lýsti því
yfir á miðvikudag að veittar yrðu
einhveijar undanþágur frá verkfall-
inu.
Launalækkun gangi til baka
Laun opinberra starfsmanna vom
lækkuð um 8,5% árið 1993 en sú
lækkun átti að ganga til baka í ár.
Þetta hefur verið krafa samninga-
manna félaganna en fulltrúar land-
stjómarinnar segja ekkert svigrúm
til þess. Edmund Joensen, lögmaður
Færeyja, hefur ekki viljað tjá sig
um hvort landstjómin muni setja lög
til að stöðva verkfallið.
Jákup Danielsen, formaður
Starvsmannafelagnum, stærsta fé-
lagsins sem nú er í verkfalli segir
að það muni standa þar til launin
verði hækkuð um 8,5% að nýju.
Dæmdur saklaus
fyrir morð
137 m.kr. í
skaða- og
miskabætur
Ósló. Morgunblaðið.
NORÐMANNINUM Per Liland, 63
ára, sem var í fýrra sýknaður af
morðákæru eftir að hafa setið af
sér lífstíðardóm, hafa verið dæmdar
137 milljónir kr. ísl. í skaðabætur.
Þá vora honum dæmdar um 100
milljónir kr. fýrir æramissi.
Lögmenn Lilands segja hann
sætta sig við niðurstöðuna og að
rétturinn hafi viðurkennt réttmæti
krafna hans.
Upphaflega krafðist hann 240
miljóna í skaða- og miskabætur.
Liland var dæmdur í 21 árs fang-
elsi árið 1970 og tíu ára skilorðs-
bundið fangelsi fyrir morð sem
framin vora í Fredrikstad um jóla-
leytið árið 1969. Hann var sýknað-
ur á síðasta ári er fram komu gögn
sem sönnuðu sakleysi hans.
-----♦ ♦--------
Dollar í
nýrri lægð
London. Reuter.
TÖLUR um mikinn viðskiptahalla
í Bandaríkjunum í janúar grófu
undan dollarnum í gær og gengi
hans gagnvart jeni hefur ekki verið
lægra frá stríðslokum.
Staða dollars gagnvart marki
veiktist líka og gjaldeyrisáhyggjur
áttu þátt í 2,5% lækkun hlutabréfa
í Þýzkalandi. Verð hlutabréfa lækk-
aði einnig í París og London.
Dollarinn lækkaði í Tókýó þrátt
fyrir íhlutun Japansbanka eftir að
þær fréttir bárust að viðskiptahalli
Bandaríkjanna í janúar hefði aukizt
um 68,4% í 12,23 milljarða dollara
vegna metinnflutnings og sam-
dráttar í útflutningi.
Aðgerðir gegn Kúrdum kalla einangrun yfir Tyrki
Tollabandalag við ESB
er hugsanlega í hættu
Tyrkir segjast hafa fellt 200 kúrdíska
hryðjuverkamenn í norðurhluta frak
Ankara, Moskvu. Reuter.
TYRKIR vora gagniýndir hart og óvægilega af bandamönnum sínum í gær
vegna herfararinnar á hendur Kúrdum í norðurhluta íraks og eiga á hættu
að einangrast. Héldu þeir áfram loft- og stórskotaliðsárásum á stöðvar
kúrdískra skæraliða í gær, fjórða daginn í röð, en heimildir herma að þeir
hafi ekki haft hendur í hári margra liðsmanna óvinasveitanna. Alain Juppé,
utanríkisráðherra Frakklands, lýsti því yfír í gær að aðgerðimar ógnuðu
nýgerðum samningi um tollabandalag Evrópusambandsins og Tyrklands.
Um 35.000 tyrkneskir hermenn
hafa tekið þátt í herförinni gegn
liðsmönnum Verkamannaflokks
Kúrdistans (PKK) sem eiga grið-
land í írak. Hafa tyrknesku sveit-
irnar sótt allt að 40 km inn fyrir
írösku landamærin í þeim tilgangi
að uppræta hryðjuverkastarfsemi
PKK. Kváðust Tyrkir hafa fellt 200
hryðjuverkamenn af um 2.500 sem
taldir eru leynast í Kúrdistan.
Rússar létu í gær í ljós áhyggjur
vegna frétta um að óbreyttir borg-
arar hefðu særst í sókn Tyrkja
gegn skæruliðum Kúrda í norður-
hluta íraks. Grígoríj Karasín, tals-
maður utanríkisráðuneytisins, ít-
rekaði fyrri áskoranir yfírvalda í
Moskvu um að aðgerðunum yrði
hætt sem fyrst.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, varaði Tyrki við í gær
og sagði að áframhald á aðgerðum
yrði einungis til þess að skaða enn
frekar orðstír Tyrkja erlendis sem
væri þó allslæmur fyrir.
Alain Juppé utanríkisráðherra
Frakklands sagði að aðgerðirnar
væra miklu umfangsmeiri en eftir-
för eftir glæpamönnum á flótta.
Hann átti í gær viðræður við
Tansu Ciller, forsætisráðherra
Tyrklands, og Murat Karayalcin
utanríkisráðherra og sagði að þeim
loknum að Evrópusambandið færi
fram á að aðgerðunum yrði lokið
sem fyrst. Þær myndu að auki tor-
velda mjög að fá samninginn um
tollabandalag staðfestann á Evr-
ópuþinginu. „Ef kosið yrði á morg-
un er ég ansi hræddur um að út-
koman yrði ekki jákvæð,“ sagði
Juppé. Búist er við að Evrópuþing-
ið taki samninginn til umræðu í
september.
Af hálfu tyrkneska hersins hef-
ur því verið mótmælt að óbreyttir
borgarar hafi særst í aðgerðunum.
Sérfræðingar í hernaði telja að
herförin hafi ekki skilað tilætluð-
um árangri. Aukinn viðbúnaður í
austurhluta Tyrklands á undan-
förnum vikum hvað mannafla,
skriðdreka og stórskotavopn
áhrærir, hafi verið það sýnilegur,
að skæruliðar hafi haft nógan tíma
til að laumast á brott frá búðum
sínum innan írösku landamæranna
og leita skjóls annars staðar.
Herma heimildir, að enn hafi ekki
komið'til skotbardaga við vopnað-
ar sveitir PKK.
Reuter
UNG kúrdísk stúlka gengur fram hjá tyrkneskum skriðdreka í
norðurhluta írak með systur sína í fanginu.